Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Jón Gnarr og Edda Björgvins leika hjón: „Ég á fulla von á að þessir þættir muni slá í gegn“

Jón Gnarr og Kolka Heimisdóttir.
Jón Gnarr og Kolka Heim­is­dóttir. Mynd: Facebook

For­seta­fram­bjóð­and­inn Jón Gnarr hefur heldur betur um nóg að snú­ast þessa dag­ana.

Jón Gnarr skrif­aði færslu í morgun þar sem hann lýsti ansi stífri dag­skrá sinni þessi dægrin en hann mun til að mynda brátt leika í nýjum sjón­varps­þáttum ásamt Eddu Björg­vins­dóttur.

„Gær­dag­ur­inn var vel pakk­aður af verk­efnum. Byrjaði dag­inn á fyrsta sam­lestri á sjón­varps­þáttum sem ég er að gera ásamt Ragnari Braga­syni. Þeir heita Felix og Klara og fjalla um full­orðin hjón sem leikin eru af mér og Eddu Björg­vins­dóttur. Síðast þegar við Raggi unnum saman þá gerðum við Vakt­irnar og miðað við alla umgjörð og leik­ara­val þá á ég fulla von á að þessir þættir muni slá í gegn.“

Og þetta er ekki eina leik­ara­verk­efni Jóns.

„Klukkan fjögur lá leiðin í Borg­ar­leik­húsið þar sem verið er að setja upp leik­ritið And Björk of course sem ég hef verið að leika í fyrir norðan í vetur. Það verður sýnt í Borg­ar­leik­hús­inu út apríl. Við tókum æfingu og rennsli með tón­list og ljósum og æfðum inn­komur og útgöngur til 22.00. Rétt fyrir átta fékk ég að skjót­ast fram ásamt Kolku Heim­is­dóttur kosn­inga­stjóra mínum til að henda til­kynn­ing­unni um for­seta­fram­boðið í loftið. Og svo hélt æfingin bara áfram einsog ekk­ert hefði í skorist.“

Að lokum þakk­aði Jón fyrir við­brögðin sem hann hafi fengið eftir að hafa til­kynnt um for­seta­fram­boðið í gær­kvöldi og benti fólki á að hægt er að styðja hann fjár­hags­lega á heima­síðu hans.

„Ég þakka fyrir þau góðu við­brögð sem ég hef fengið, öll fal­legu orðin og skila­boðin. Ef fólk vill styðja mig fjár­hags­lega, sem ég sann­ar­lega þarfn­ast þá eru upp­lýs­ingar á heima­síð­unni jongn­arr.is. Annars hlakka ég bara mikið til þess­arar ævin­týra­ferðar og hlakka til að sjá ykkur öll og hitta á förnum vegi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar og kallaði eftir uppgjöri bótasjóða.
Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027