Linda Pétursdóttir, áhrifavaldur og fegurðardrottningin, hefur opnað á ástina á ný eftir þrjú einhleyp ár. Nú þegar aðventan er gengin í garð segir hún verið tilbúin í rómantískt samband á nýjan leik.
„Hér og nú þá ætla ég að stíga þetta skref og opna fyrir rómantíkinni og ég bara segi það að ég hlakka til að taka á móti ástinni. Uppáhalds tíminn minn til að vera ástfangin eru jólin. Mér finnst það algjörlega æðislegt. Þannig það er aldrei að vita hvað gerist,“ segir Linda í nýjasta hlaðvarpsþættinum sínum, Lífið með Lindu.
„Ég tek mér yfirleitt langan tíma á milli sambanda og mér hefur alltaf þótt gott að vera ein með sjálfri mér. Ég er sjálfstæð og ég þarf ekki á karlmanni að halda fjárhagslega til að sjá fyrir mér á neinn hátt. Það er komið að því að nú er ég tilbúin að opna á rómantíska ást aftur í lífi mínu. Ég ætla bara að segja það, ég ætla bara að setja það hér út í kosmósið að núna er ég tilbúin að hitta góðan mann, traustan mann, heimsmann, einhvern mann sem bætir við líf mitt,“ segir fegurðardrottningin.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir