Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Helgi Hrafn segir fordóma ríkja í umræðu um kynferðisofbeldi

„Ég heyri karlmenn næstum því aldrei tala um kynferðis­ofbeldi nema þegar þeir tala um útlendinga“

Helgi Hrafn Gunnarsson
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Er fyrr­ver­andi þing­maður Pírata. Mynd: Alþingi

Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrr­verandi þingmaður Pírata, gagnrýnir fordóma í umræðu um kynferðis­ofbeldi og innflytjendur í pistli sem hann birti á samfélags­miðlum.

„Ég heyri karlmenn næstum því aldrei tala um kynferðis­ofbeldi nema þegar þeir tala um útlendinga,“ skrifar Helgi. Á sama tíma verði margir þeirra ósáttir þegar rætt sé um nauðgunar­menningu, virkt samþykki og mörk, þar sem þeim finnist ósann­gjarnt að vera stimplaðir nauðgarar fyrir að vera karlmenn.

Hann segir slíkar alhæfingar vissulega ósann­gjarnar, en bendir jafnframt á að sama eigi við þegar innflytjendur af tilteknum uppruna séu stimplaðir kynferðis­afbrotamenn vegna brota einstakra einstaklinga. Að hans mati byggi hvort tveggja á sömu hugsun: að dæma fólk út frá kyni, uppruna eða litar­hætti.

„Að fordæma fólk á grund­velli litar­háttar, uppruna eða kyns, er rangt,“ skrifar Helgi Hrafn og bætir við að fordómar séu bæði ósann­gjarnir og skaðlegir, óháð því hvaða hópi þeir beinast gegn.

Í pistlinum fjallar hann einnig um samfélagsleg vandamál og mismun­andi tölfræði milli hópa, sem hann segir hvorki rétt að afneita né gera að aðal­atriði. Lausnin við óheil­brigðum viðhorfum til kynferðislegrar hegðunar sé hins vegar fræðsla og samtal fremur en hatur og fordómar.

Helgi Hrafn segir baráttu fyrir slíkri fræðslu hafa sýnt sér að áhugi margra á lausnum hverfi þegar umræðan færist frá fordómum yfir í uppbyggilegt samtal. Að hans mati snúist umræðan því oft síður um vanda­málin og frekar um að réttlæta ótta og hatur.

Hann segir að einungis sé hægt að ræða raun­verulegar lausnir þegar fordómar séu teknir út fyrir sviga og umræðan byggð á „vitsmuna­hyggju og stað­reyndum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var synjað um heimsókn

Fanginn missti heimild til samfélagsþjónustu og fékk ekki að ljúka afplánun á Vernd.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis