Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

„Batman“ handtekinn á Kanarí

Hand­tekinn með hamar og peninga­kassa

Klæddist Batman-grímu við innbrot en fatavalið kom upp um hann
Klæddist Batman-grímu við inn­brot en fata­valið kom upp um hann Mynd: Bengt Nyman

Lögreglan á spænsku eyjunni Fuerteventura hefur handtekið mann eftir stór­furðulegt innbrot í verslun í ferðamanna­bænum Corralejo. Þjófurinn reyndi að fela auðkenni sitt með því að klæðast grímu teiknimynda­sögu­hetjunnar Batman, en sú ákvörðun virtist fremur vinna gegn honum en með.

Innbrotið átti sér stað snemma morguns mánudaginn 12. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu braut maðurinn glerhurð á inngangi verslunarinnar og hafði á brott með sér peninga­kassa sem innihélt um 500 evrur í reiðufé, eða tæpar 75 þúsund íslenskar krónur. Við innbrotið olli hann jafnframt tals­verðum skemmdum á húsnæðinu, sem metnar eru á tæpar 112 þúsund krónur (€750).

Batman á öryggismyndavélum

Myndefni úr öryggis­myndavélum verslunarinnar reyndist lögreglunni lykillinn að lausn málsins. Á upptökunum sást innbrots­þjófurinn greini­lega klæddur Batman-grímu. Þótt andlitið væri falið þá vakti fatnaður hans mikla athygli rann­sakenda, en maðurinn var í okurgulum (gulleit hálf­brúnum) buxum, svartri hettu­peysu og í svörtum stígvélum.

Lögreglu­menn áttu ekki í miklum vandræðum með að staðsetja mann í bænum sem klæddist nákvæmlega eins fötum og sást til á upptökunum.

Vísaði lögreglunni á felustaðinn

Eftir að maðurinn var hand­tekinn viðurkenndi hann brotið og leiddi lögregluna á staðinn þar sem hann hafði falið Batman-grímuna og hamarinn sem hann notaði til að brjóta gler­hurðina.

Lögreglunni tókst einnig að endur­heimta peninga­kassann sjálfan og rúmlega helminginn af stolna fénu, eða um 253 evrur. Maðurinn hefur nú verið kærður fyrir innbrot og var fluttur fyrir dómstól í héraðs­höfuð­borginni Puerto del Rosario þar sem málið verður tekið fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár