Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jón Bjarki uppfyllti ósk afa síns: „Ekkert vit í að endurtaka leikinn“

„Það var eitthvað gríðarlegt mikilvægi falið í því að reyna að fanga, þó ekki væri nema brotabrot af veröld þeirra, áður en það yrði um seinan,“ segir Jón Bjarki Magnússon, sem dag nokkurn fékk þá hugmynd um að fylgja afa sínum og ömmu og skrásetja tilveru þeirra með mynd­brotum. Hann fann sig knúinn til að útbúa verkefni sem myndi festa á mynd þau augnablik sem aldrei yrðu endur­tekin. Hægt og rólega fór myndefnið að safnast saman og útkoman varð að Hálfum Álfi, heimildar­mynd sem tekin verður til sýninga í vikunni.

Í samtali við Mannlíf segir Jón Bjarki það hafa tekið strembið ferli að útbúa svona mynd, svo gott sem án fjármagns, og hafi einnig verið gríðarleg áskorun að finna jafnvægi milli hlutverka kvikmynda­gerðarmanns og aðstand­anda. Að sögn kvikmynda­gerðar­mannsins voru jarðar­förin lengi afa hans mikið hjartans mál og krafðist hann þess af Jóni Bjarka að hún yrði fest á upptöku.

„Afi var 98 ára og amma 95 þegar tökur hófust og verkefnið allt því eins konar kapphlaup við tímann.“ segir hann. Þá var dauðinn þarna á sveimi á meðan ferlinu stóð og bauð það upp á mikla óvissu að stunda heimilda­myndagerð í nálægð hans.

„Afi veiktist til dæmis heiftar­lega á meðan á ferlinu stóð og var lagður inn á spítala nær dauða en lífi. Ég var staddur í Vínarborg þegar þetta gerðist og var kominn til Íslands nokkrum dögum síðar. Það reyndi oft verulega á að gera þessa mynd og á svona stundum þurfti ég að vega og meta í hvaða hlutverki ég væri, segir Jón Bjarki og bætir við:

„Í þessu tilviki lagði ég mynda­vélina á hilluna til þess að vera til staðar fyrir hann.“

Þá rifjar Jón Bjarki upp annað atvik úr tökum þegar amma hans brast í skyndi­lega söng en þá var hún að þylja Svarkinn eftir Grím Thomsen. „Þarna var þessi gamla kona, sem hafði framan af verið svolítið feimin fyrir framan mynda­vélina, skyndi­lega farin að syngja af lífs og sálar­kröftum fyrir framan mig, eitthvað sem ég hafði aldrei áður séð hana gera,“ segir Jón Bjarki.

„Ég þurfti að hafa mig allan við til að ná þessu augna­bliki á filmu og var hreint ekki viss um hvernig hefði til tekist. Ég bað hana því um að gera þetta aftur svo ég gæti undirbúið skotið betur en þá fór hún að hlæja, virtist hissa á því að vera farin að syngja með þessum hætti fyrir barna­barnið. Henni þótti ekkert vit í að endurtaka leikinn. Mómentið var farið og þessi taka yrði því að duga.“

Dyr að nýjum víddum

Jón Bjarki útskrifaðist með BA í ritlist úr Háskóla Íslands árið 2012 og hefur starfað í blaða­mennsku í yfir áratug. Síðustu ár hefur heimilda­myndagerðin hins vegar átt hug hans allan og vonast hann til þess geta lagt áfram rækt við hana. Vegurinn að þeirri braut fór þó smám saman að myndast um haustið 2016 þegar hann hóf meistaranám í sjónrænni mannfræði við Freie Universitat í Berlín.

„Ég hafði lengi haft áhuga á heimilda­myndagerð en vissi ekki hvert fyrsta skrefið í þá átt ætti að vera, auk þess sem mér þótti forvitnilegt að kynnast aðferðum mann­fræðinnar betur. Námið hentaði mér vel og opnaði dyr að víddum sem ég hafði lengi vitað að væru þarna en þekkti vart leiðirnar um. Það má segja að maður hafi þarna fengið í hendurnar ákveðinn verkfæra­kassa sem reynslan kennir manni síðan að nota,“ segir Jón Bjarki.

Þessi áhersla mann­fræðinnar á að dvelja lengi með þeim sem fjallað er um, að kynnast lífi þeirra innan frá ef svo má segja, og að leyfa efninu að spretta frá þeim er eitthvað sem mér finnst skipta sífellt meira máli þegar kemur að þess konar heimilda­myndagerð sem ég hef mestan áhuga á. Maður reynir sitt besta til þess að þýða það sem annars er falið yfir á form sem aðrir geta skilið.“

Þegar allt breyttist

Hálfan Álf fram­leiðir Jón Bjarki ásamt unnustu sinni Hlín Ólafs­dóttur, sem semur einnig tónlistina fyrir verkið. Myndin var valin inn á kvikmynda­hátíðina Skjald­borg en hátíðinni var frestað fram á sumar vegna kórónu­veirunnar.

„Í kjölfar andláts afa beið amma auðvitað spennt eftir því að geta vonandi fylgt myndinni eftir í bíó, mögulega á Skjald­borgar­hátíðina þá um vorið, svo framarlega sem við kæmumst inn. Hún var orðinn verulega spennt fyrir þessari hugmynd og ætlaði sér sko aldeilis vestur á Patreks­fjörð ef þetta gengi eftir, þrátt fyrir að vera þá orðin 99 ára gömul.

Eftir að hátíðinni var frestað fram á sumar og gamla konan féll frá í byrjun maí breyttist auðvitað allt, svo hún náði því miður ekki heldur að sjá myndina á hvíta tjaldinu,“ segir Jón Bjarki.

Féllu frá með skömmu bili

Afi og amma Jóns Bjarka, þau Trausti Breið­fjörð Magnússon og Hulda Jóns­dóttir, féllu frá með skömmu bili, hann í mars 2019 og hún í maí 2020. Kvikmynda­gerðar­maðurinn segir Hálfan Álf fjalla að hluta til um það að fylgja afa hans eftir ofan í gröfina, en hvorugt þeirra náði að sjá loka­útkomu myndarinnar. Þó hafi þau fengið að sjá svokallað grófklipp og lýsir leik­stjórinn þeirri upplifun sem afar mikil­vægri og súrsætri.

„Afi var fluttur inn á Hrafnistu þegar við náuðum loks að sýna þeim myndina, en við fengum að setja upp sérstaka sýningu fyrir íbúa heimilisins sem og ömmu gömlu, í sameiginlegu stofurými á deildinni hans afa. Þetta var falleg stund þar sem við jöpluðum á poppi og sötruðum á límonaði á meðan ræman leið í gegn við góðar viðtökur viðstaddra. Þau gömlu voru bæði hæstánægð með afraksturinn þó þau hafi kvartað svolítið yfir því hve illa þau sáu á sjón­varpið og hve lítið þau heyrðu á stundum,“ segir Jón Bjarki.

„Það er vissulega sárt að þau hafi ekki fengið tækifæri til þess að sjá sig á hvíta tjaldinu, enda voru þau að einhverju leyti fædd í þetta hlutverk. Að sama skapi er verulega ánægjulegt að mér hafi þó tekist að draga ríkulega persónu­leika þeirra fram með þessum hætti áður en það var um seinan. Þó að þau eigi þess ekki lengur kost að vera á meðal áhorf­endanna í bíósalnum þá eru þau samt sem áður einhvern veginn ennþá yfir og allt um kring þegar kemur að verkinu sjálf. Ég vona og trúi að þau séu stolt af þeirri mynd sem okkur tókst að skapa í sameiningu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Húsið var reist árið 1978
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto