Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Paris Jackson krefst 600 milljóna dala úr dánarbúi föður síns

Paris Jackson segir systk­inin enn ekki hafa fengið þær greiðslur úr fjöl­skyldu­sjóði sem erfða­skrá föður þeirra kveður á um.

Ágreiningur um arfinn
Ágrein­ingur um arf­inn Paris Jackson segir fjöl­skyldu­sjóð­inn enn ekki hafa verið fjár­magn­aðan. Mynd: Instagram skjáskot

Paris Jackson, dóttir tón­list­ar­manns­ins Michaels Jackson, hefur farið fram á að dóm­stóll í Los Angeles fyr­ir­skipi að 600 millj­ónir dala, jafn­virði um 77 millj­arða íslenskra króna, verði færðar úr dán­ar­búi föður hennar í fjöl­skyldu­sjóð sem ætl­aður er henni og bræðrum hennar, Prince og Bigi.

Í beiðni sem lögð var fram fyrir dóm­stólum 29. októ­ber heldur Paris því fram að meira en 17 árum eftir and­lát föður þeirra hafi sjóð­ur­inn enn ekki verið fjár­magn­aður, þrátt fyrir að dán­ar­búið hafi skilað millj­örðum dala í tekjur.

Paris beinir gagn­rýni sinni meðal ann­ars að John Branca, sem fer með umsjón dán­ar­bús­ins. Hún sakar hann um að hafa of mikil yfir­ráð yfir fjár­munum systk­in­anna og ráða því hvort og hvenær þau fái greitt úr arf­inum.

Samkvæmt erfða­skrá Michaels áttu börnin þrjú að byrja að fá tekjur úr sínum hluta sjóðs­ins þegar þau næðu 21 árs aldri. Þá átti að greiða þeim þriðj­ung af höf­uð­stólnum þegar þau yrðu þrí­tug, helm­ing þess sem eftir stæði við 35 ára aldur og afgang­inn þegar þau yrðu fer­tug.

Paris heldur því fram að þetta hafi ekki gengið eftir og að systk­inin hafi í stað­inn fengið lægri fjár­hæðir sem Branca ákvarði hverju sinni. Hún segir að þessi staða geri þau háð honum og dragi úr mögu­leikum þeirra á að hafa eft­ir­lit með stjórnun dán­ar­bús­ins.

Segir hundruð milljarða vera til ráðstöfunar

Í máls­gögnum sínum bendir Paris á að dán­ar­búið hafi aflað umtals­verðra fjár­muna með sölu eigna og við­skipta­samn­ingum.

Meðal ann­ars nefnir hún sölu á hlut dán­ar­bús­ins í EMI Music Publ­is­hing til Sony árið 2018 fyrir 287,5 millj­ónir dala, sölu á Never­land-setr­inu árið 2020 fyrir 22 millj­ónir dala og samn­ing við Sony árið 2023 sem skil­aði 750 millj­ónum dala fyrir hlut í hug­verka­rétt­indum Michaels.

Samkvæmt máls­gögn­unum hafi þessar þrjár ráð­staf­anir einar skilað meira en einum millj­arði dala áður en skattar og annar kostn­aður voru greiddir.

Dán­ar­búið hafi jafn­framt skilað meira en 2,5 millj­örðum dala í brúttó­tekjur fram til árs­loka 2024. Þá hafi um 850 millj­ónir dala verið í reiðufé og sam­bæri­legum eignum. Paris telur að um 600 millj­ónir dala séu til­tækar til úthlut­unar þegar tekið hefur verið til­lit til mögu­legra skuld­bind­inga.

Hún fer fram á að dóm­stóll­inn fyr­ir­skipi Branca að færa 600 millj­ónir dala, eða þá fjár­hæð sem dóm­stóll­inn telur við­eig­andi, í fjöl­skyldu­sjóð­inn. Hún krefst einnig þess að lög­fræði­kostn­aður hennar verði greiddur úr eignum dán­ar­bús­ins.

Dánarbúið hafnar ásökununum

Tals­maður dán­ar­bús Michaels Jackson hafnar ásök­unum Parisar og segir að ekki sé hægt að fjár­magna sjóð­ina að fullu fyrr en ýmsum laga­legum ágrein­ings­málum hafi verið lokið.

Þar vegi þyngst ágrein­ingur við banda­ríska skatta­yf­ir­völd, IRS, sem hafi kraf­ist um 700 millj­óna dala í skatta og við­ur­lög. Dán­ar­búið hafi náð að lækka þá kröfu veru­lega en mál­inu sé ekki lokið og nið­ur­staðan geti enn breyst.

Tals­mað­ur­inn segir jafn­framt að ásak­anir um að Branca hafi haldið eftir greiðslum eða skert greiðslur til erf­ingj­anna séu „hreinn til­bún­ingur“. Meira en 200 millj­ónum dala hafi þegar verið úthlutað eða varið í þágu Parisar og ann­arra rétt­hafa.

Tals­maður Parisar hafn­aði þessum skýr­ingum og sagði dán­ar­búið reyna að beina athygl­inni frá eigin van­rækslu. Paris hefði lengi kallað eftir því að sjóð­ur­inn yrði að minnsta kosti fjár­magn­aður að hluta, en Branca hefði haft bæði heim­ild og skyldu til þess fyrir löngu.

Ágrein­ing­ur­inn er hluti af víð­tæk­ari deilum Parisar við þá sem fara með dán­arbú föður hennar um fjár­mál þess og stjórnun. Hún hefur meðal ann­ars gagn­rýnt greiðslur til stjórn­enda og kraf­ist frek­ari upp­lýs­inga um ráð­stöfun fjár­muna.

Dómstóll í Los Angeles mun taka beiðni hennar fyrir 4. des­em­ber.

Michael Jackson lést 25. júní 2009, þá fimm­tugur að aldri. Hann til­nefndi fjöl­skyldu­sjóð sinn sem eina erf­ingja dán­ar­bús­ins og John Branca var meðal þeirra sem fengu það hlut­verk að ann­ast umsýslu þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Myndbönd af meintu móðurskipi náðust sama dag og flugumferð stöðvaðist í Bandaríkjunum.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram