Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sá illa farin hross í Mosfellsdal: „Við eigandann vil ég segja að hann ætti að hundskammast sín“

Illa farið með góð dýr.
Illa farið með góð dýr. Mynd: Aðsend

Einstaklingur sem Mannlíf ræddi við segir ástand á ákveðnum hrossum í Mosfellsdal vægast sagt slæmt.

„Í byrjun þessara viku var birt mynd af horuðu hrossi inn á facebook síðu íbúa í Mosfellsdal. Það hafði sloppið út úr girðingu sem er ekki hestheld. Sama hross hafði farið út í þrjú skipti áður,“ sagði einstaklingurinn sem ekki vill koma fram undir nafni. Sagðist hann hafa kíkt á svæðið þegar fréttist af þessum hrossum á Facebook.

Hrossin í Mos­fells­sveit.

„Ég blanda mér í málið þegar ég frétti af þessum hrossum upp í Dal. Fór og skoðaði þetta umrætt hross sem er svo grind­horað að ég hef bara aldrei tekið á jafn horuðum grip. Bara skinn og bein. Þessi hryssa er mjög illa farin. Eigandi þessara hrossa hefur ekki einu sinni haft fyrir því að draga undan frá því í fyrra sumar. Ofvaxnir aftur­hófar og hræðilegir hófar á einu hrossinu sem ég er ekki viss um hvort sé hægt að bjarga,“ sagði einstaklingurinn við Mannlíf.

Ekki er mikið kjöt á þessu greyi.

Segist einstaklingurinn hafa tilkynnt málið til Mast og hringt í lögregluna og sagt þeim frá slysa­hættunni sem stafaði frá lélegum girðingum.

„Ákvað að tilkynna þetta til Mast undir eins. Ég hringdi einnig í lögregluna og sagði þeim frá þessari slysa­hættu. Girðingin er niðri að mestu leiti og leikur einn fyrir hrossin að komast yfir ef þeim dettur það í hug. Mest er ég hissa að það skuli ekki hafa orðið slys en fyrir einhverjum árum varð banaslys á svipuðum slóðum eftir að hestur slapp úr girðingu og hljóp í veg fyrir bíl. Lögreglan hafði samband við eftirlits­mann hjá Mosfellsbæ. Ég hringdi einnig í sama aðila og þá segir hann mér að það sé komin rúlla inn til hrossanna. Ég áréttaði við hann að það yrða að laga girðinguna strax,“ sagði einstaklingurinn og bætti við: „Dýra­eftirlits­menn komu frá Mast og þau sögðust ekki hafa náð hryssunni. Ég hef náð henni í öll þau skipti sem ég hef farið þarna upp eftir.“

Veiklu­legar girð­ingar

Ummælandi Mannlífs er auðsjáanlega ekki ánægður með Mast. „Nú fer þetta í svokallaðan og kunnulega feril hjá Matvæla­stofnun. Ég hringdi í Mosfellsbæ í dag og lýsti þungum áhyggjum af bæði velferð skepnanna og einnig slysa­hættuna sem er yfir­vofandi. Ég endaði daginn þegar að ljóst var að ekkert væri að gerast í þessum málum hjá neinni stofnun, að hringja í lögregluna og las þeim pistilinn. Nú er ég búin að koma þessu á framfæri og vona að Mast og Mosfellsbær taki sig saman í andlitunu og geri eitthvað strax í málinu.“

Þetta er ljótt.
Ljótt að sjá.

Að lokum snéri hann orðum sínum að eiganda hrossanna:

„Við eigandann vil ég segja að hann ætti að hund­skammast sín og að mínu mati ætti hann ekki að koma nálægt skepnum, miðað við þessa framkomu við hrossin sín. Ef þú hefur einhvern manndóm í þér ættirðu að gefa hrossin þín sjálf­viljugur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim