Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Gulli Briem á tímamótum: „Ég er að enduruppgötva sjálfan mig, sem manneskju og sem tónlistarmann“

Afmælisbarnið
Afmæl­is­barnið Mynd: https://gr1993records.com/

Gunnlaugur Briem eða Gulli Briem eins og hann er gjarnan kallaður á stór­afmæli í dag. „Er hann fertugur í dag?“ gætu einhverjir spurt sig. Nei, trommarinn síungi er sextugur í dag. Þið lásuð það rétt, Gulli er sextugur í dag.

Gulli er hvað þekktastur fyrir að trommu­slátt í hljóm­sveitinni Mezzoforte en hann hefur einnig spilað með böndum á borð við Ljósin í bænum, Dúndrið, Model, Mannakorn, Park project og Ófétin. Þá hefur hann gefið út nokkrar sóló­plötur undir nafninu Earth affair og leikið inn á plötur hjá öðrum lista­mönnum.

Mannlíf sló á þráðinn hjá Gulla og spurði hann hvort og hvernig hann hyggðist halda upp á tímamótin.

„Ég er með allskonar fögnuði. Ég byrjaði nú í morgun á því að fagna með því að fá mér stór­hátíðar kaffi­bolla sjálfur. Svo fór ég upp að Helgu­fossi þar sem ég gerði öndunar­æfingar og henti mér svo í fossinn. Ég átti svona stund með sjálfum mér og náttúru­öflunum, fjöllunum. Svo átti ég góðan hádegis­verð með yngri dóttur minni og nokkrum vinum. Svo er ég með matarboð fyrir fjöl­skylduna annað kvöld. En svo er ég með tvö önnur afmæli, ég ætla að halda tvenna tónleika í október sem uppselt er á. Þá verða tvö afmæli eftir sitthvora tónleikana. Ég er annars bara mjög þakklátur fyrir að vera ofan jarðar og við góða heilsu. Og er bara að njóta lífsins.“

En hvað er framundan hjá Gulla, fyrir utan tónleikana í október?

„Ég er að skipuleggja tónleika í Noregi í nóvember. Það er sem sagt bara ég og svo norskt line up. Þetta eru frábærir hljóðfæra­leikarar. Ég er að gera þetta svona í tilefni ársins og breyta út af vananum og spila með nýju fólki. Ég er að endur­uppgötva sjálfan mig, sem manneskju og sem tónlistar­mann. Og það er fínt tilefni til að gera það núna. Þetta er svona „total makeover“ og það er bara helvíti gaman. Þetta er mjög skemmtilegt og áhugavert ferðalag. Ég er hress og kátur og opinn fyrir ævintýrunum sem bíða mín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum