Rapparinn og Óskarsverðlaunaleikarinn Will Smith braut lög.
Undanfarin ár hafa verið sveiflukennd fyrir einn besta leikara 21. aldarinnar en þrátt fyrir leiksigur ofan á leiksigur í stórkostlegum myndum á borð við Men In Black, Ali, Bad Boys 2 og King Richard hugsa flestir um augnablikið á Óskarsverðlaununum árið 2022 þegar hann sló grínistann Chris Rock í andlitið eftir að grínistinn hafði gert grín að veikindum eiginkonu Will Smith. Leikarinn vann síðar um kvöldið sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir leik í myndinni King Richard.
Á föstudaginn í síðustu viku var leikarinn stöðvaður af lögreglumönnum í Malibu þar sem leikarinn var að keyra of hratt. Samkvæmt heimildum fjölmiðla í Los Angeles var leikarinn að keyra á 100 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraðinn er 72. Vegurinn sem Wild Wild West-leikarinn keyrði eftir er þekktur fyrir alvarleg slys en 58 einstaklingar hafa látist þar undanfarin 14 ár.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir