Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heiðra minningu Gunnars Gunnarssonar á óvenjulegan máta

Bókin verður lesin á um 30 tungu­málum

Veröld
Veröld Hús Vigdísar Mynd: Háskóli Íslands

Í til­efni þess að fimm­tíu ár eru liðin frá and­láti Gunnars Gunn­ars­sonar, skálds og rit­höf­undar á Skriðuklaustri, verður efnt til sér­stakrar minn­ing­ar­dag­skrár laug­ar­dag­inn 15. nóv­em­ber í Veröld – húsi Vigdísar og Eddu – húsi íslensk­unnar. Við­burð­ur­inn ber yfir­skrift­ina Að til­heyra engum bók­menntum og er hluti af viku íslensk­unnar.

Gunn­ars­stofnun stendur fyrir dag­skránni í sam­starfi við Bók­mennta­borg­ina og fleiri aðila. Fyrri hluti dags­ins fer fram í Auðarsal þar sem haldið verður opið mál­þing um Gunnar, bók­menntir inn­flytj­enda og skáld­sögu hans Aðventu. Þar munu fræði­menn og rit­höf­undar ræða hvernig Gunnar var í raun eins konar inn­flytj­enda­höf­undur bæði í Danmörku og á Íslandi, auk þess sem staða höf­unda af erlendum upp­runa verður til umræðu.

Eftir hádegi, klukkan 13, hefst ein­stakur upp­lestur á Aðventu þar sem um þrjá­tíu les­arar flytja text­ann á yfir tutt­ugu tungu­málum í rýmum Veraldar og Eddu. Vera Ill­uga­dóttir les íslensku útgáf­una, en aðrir les­arar eru meðal ann­ars sendi­herrar, þýð­endur, rit­höf­undar, fræði­menn og bók­menntaunn­endur.

Aðventa verður lesin í heild sinni og tekur lest­ur­inn um tvo klukku­tíma. Gestir geta annað hvort setið í ró og hlýtt eða gengið milli mál­heima til að upp­lifa fjöl­breytn­ina.

Skáldsagan hefur verið þýdd á yfir tutt­ugu tungu­mál og á síð­ustu tíu árum hafa bæst við fimmtán nýjar þýð­ingar. Sú nýjasta er enska þýð­ing Philips Roughton, sem kom út hjá Penguin Random House í Bret­landi í októ­ber.

Nánar má lesa um dag­skrána á www.skriduklaustur.is.

Aðgangur er ókeypis á báða við­burði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027