Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Prestur sækir rétt sinn gagnvart biskupi Íslands

Séra Skírnir Garðarsson.
Séra Skírnir Garð­ars­son.

„Ég hef falið lögmönnum að sækja rétt minn gagnvart biskupi,“ segir séra Skírnir Garðarsson, sem nýverið var rekinn úr embætti héraðs­prests á Suður­landi. Hann segist ekki vilja tjá sig frekar um brott­rekstur sinn en hann hefur verið gerður útlægur frá Þjóð­kirkjunni og má ekki vinna nein prests­verk í hennar nafni.

Agnesi Sigurðar­dóttur, biskupi Íslands, hefur verið sent bréf frá lögmanni séra Skírnis, Sigurði Kára Kristjáns­syni hæstarréttarlögmanni, þar sem þess er krafist að biskupinn dragi yfir­lýsingar sínar til baka hvað varðar þjónustulok prestsins og að honum verði heimilað að snúa aftur í embætti sitt fyrir kirkjuna. Biskup hefur viku til að svara séra Skírni sem mun fara fram á miska- og skaða­bætur frá kirkjunni verði ekki orðið við kröfunum.

Ekki rekinn, segir biskup

Agnes staðfesti þjónustulok prestsins fyrir kirkjuna í nýlegri yfir­lýsingu og segir þar ástæðuna vera brot á trúnaðar­skyldu. Hún segir það hins vegar misskilning í fjölmiðla­umfjöllun að presturinn hafi verið rekinn því réttindi séra Skírnis verði að öllu virt samkvæmt ráðningar­samningi. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Mannlífs þá neitar Agnes viðtali og vísar í áður­nefnda yfir­lýsingu sína. Þá sömu yfir­lýsingu og nú er krafist að hún dragi til baka. Séra Skírnir er í veikinda­leyfi þessa dagana og vill ekki láta hafa neitt eftir sér um stöðu mála, annað en stað­festingu þess efnis að ætla nú að sækja rétt sinn gagnvart Agnesi biskup.

Í annað sinn

Líkt og Mannlíf hefur áður greint frá er þetta í annað sinn sem séra Skírnir hrökklast úr embætti sínu fyrir Biskups­stofu en í báðum tilvikum hafnar Agnes því að hafa rekið hann. Hvorki nú sem héraðs­prest né áður sem sóknar­prest í Lága­fellssókn. Í viðtali við Stundina á sínum tíma fullyrti séra Skírnir hins vegar að biskup hafi sett honum afarkosti, annaðhvort yrði hann fluttur eða rekinn. „Biskup setti mér þá kosti að skrifa undir eða að ég yrði færður til með handafli. Eftir nokkra fundi skrifaði ég nauðugur undir. En ég var bugaður og lét undan ítrekuðum þrýstingi, símtölum og tölvu­póstum frá Biskups­stofu. Það var svo harkalega að þessu staðið að ég fékk ekki einu sinni að kveðja söfnuð minn,“ sagði Skírnir við Stundina árið 2018. Í yfir­lýsingu biskups segir Agnes þetta vera misskilning og segir prestinn hafa sjálfan óskað eftir flutningi í starfi.

Engin svör

Samkvæmt lögum má ekki reka prest nema að undan­genginni skriflegri áminningu. Það var ekki gert í tilfelli séra Skírnis en biskup hefur talið það óþarfa þar sem ekki væri verið að reka prestinn. Mannlíf hefur ítrekað óskað svara hjá Biskups­stofu og spurt þar meðal annars hvort ekki hafi komið til greina að fram­lengja andmæla­frest séra Skírnis í ljósi þess að presturinn væri í veikinda­leyfi. Biskup hefur engu svarað og þar liggja nokkrar ósvaraðar spurningar sem bíða svara.

Agnes Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands

Spurningar Mannlífs til Agnesar Sigurðar­dóttur, biskups Íslands:

1) Gildir ekki lengur um presta það ákvæði laga um opinbera starfs­menn sem veitir þeim rétt til andmæla, og skriflegrar áminningar áður en til uppsagnar kemur?

Sjá grein 21: https://www.althingi.is/lagas/150a/1996070.html

2) Ef þið teljið ákvæðið enn gilda um presta, hvers vegna var Skírni Garðars­syni ekki veitt skrifleg áminning í þessu tilviki?

3) Kom ekki til greina af hálfu Biskups­stofu að fresta andmæla­rétti Skírnis Garðars­sonar og ákvörðun ykkar fram yfir það tímabil sem viðkomandi hafði sýnt fram á veikindi sín?

4) Hvernig ætlið þið að mæta kröfum séra Skírnis Garðars­sonar sem nú hafa verið sendar Biskups­stofu?

Sagt hefur verið frá því að tölvu­póstum séra Skírnis Garðars­sonar hafi verið lekið til Biskups­stofu er hann starfaði sem sóknar­prestur í Lága­fellssókn. Eftir því sem Mannlíf kemst næst úrskurðaði nefnd innan Þjóð­kirkjunnar í þá veru að brotið hafi verið gegn Skírni og í úrskurði Persónu­verndar frá 24.10.2017 er það einnig staðfest að áfram­sending tölvu­pósta Skírnis hafi verið ólögmæt.

5) Ætlar biskup að beita sér gagnvart því að brotið hafi verið á séra Skírni Garðars­syni er hann starfaði sem sóknar­prestur í Lága­fellssókn, eins og úrskurðirnir sýna?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim