Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ásdís Olsen klessti á vegg og ákvað að breyta öllu: „Ég hef ekkert að skammast mín fyrir“

Ásdís Olsen.
Ásdís Olsen.

Ásdís Olsen segist ekki kunna að ritskoða sig og breyta sjálfri sér eftir áliti annarra. Ásdís, sem er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, fer í þættinum yfir það að þora að fara eigin leiðir:

„Ég er frekar opinská og hef tilhneigingu til að segja bara það sem ég er að hugsa og stundum finnst sumum það of mikið. Ég er kannski í grunninn stundum „naive“ og það kemur fyrir að fólk í kringum mig segir að ég ætti að plotta meira og hugsa um það sem ég segi, en það er bara ekki ég. Ég verð alltaf sáttari og sáttari við að þora bara að vera alltaf ég sjálf og vera sama um hvað öðrum finnst. Ég hef ekkert að skammast mín fyrir og átta mig stundum ekki á því af hverju við getum ekki bara tjáð okkur meira og þorað að vera skrýtin í augum einhverra. Líklega kemur þetta líka auðveldar þegar maður er búinn að fyrirgefa sjálfum sér og öðrum og losa sig við skömm. Ef að það sem að maður segir truflar aðra mjög mikið hefur það yfirleitt ekkert með mann sjálfan að gera.“

Ásdís hefur um árabil kennt núvitundar­hugleiðslu og jákvæða sálfræði. Hún segir að það ferðalag hafi byrjað á því að hún klessti sjálf á vegg.

„Þetta ferðalag byrjaði eiginlega með því að ég fékk ofsa­kvíðakast og þurfti að fara upp á bráða­móttöku og hélt að ég væri að deyja. Þegar það kom svo í ljós að það var ekkert líkamlegt að mér, neyddist ég til að skoða hvað það væri í hugsunum mínum sem væri að valda því að tauga­kerfið færi í svona rosalega flækju. Á endanum varð það eiginlega stærsta opinberun lífs míns að sjá fyrir alvöru þessi varnar­kerfi, þar sem hausinn á manni er að segja manni að maður sé í lífshættu í tíma og ótíma. Þegar ég fór svo á fullt í að læra um núvitund og hugleiðslu áttaði ég mig á því að ég var búinn að læra endalaust af hlutum í öllu mínu námi, en ekki um minn eigin huga og hvernig hann starfar. Ég man að þegar ég byrjaði að læra þessa hluti hugsaði ég með mér að þetta ætti að vera kennt í grunn­skólum og að það væri galið að við færum í gegnum allt þetta nám án þess að læra um okkar eigin huga og hugsana­kerfi.“

Ásdís segist mikið hafa velt því fyrir sér hvernig væri hægt að breyta því kerfi sem við höfum komið okkur upp og segist sannfærð um að það væri hægt að haga hlutunum öðruvísi, okkur öllum til hagsbóta:

„Ég held að þetta ætti að vera einhvern vegin allt öðruvísi og við höfum villst af leið. Mér finnst ákveðin úrkynjun vera í gangi af því að við erum komin svo langt frá því sem er eðlilegt. Það er einhver vinnu­markaður og vinnutími sem stjórnar lífum okkar. Dagvistun snýst um hvað hentar vinnu­markaðnum, skóla­kerfið er hannað eftir því hvenær foreldrarnir eru í vinnu og svo framvegis. Ég er menntunar­fræðingur og hef í mörg ár verið mjög upptekin af uppeldis- og fjölskyldu­málum. Það er augljóst að við höfum upp til hópa of lítinn tíma til að vera frjáls og vera saman. Ég held að það sé á margan hátt stærsta verkefnið okkar að skoða þetta og gera breytingar. Meira að segja þegar við horfum á öll heilsufars­vandamálin og sálræn vandamál, þá er það beintengt því að við höfum ekki náð að sinna uppeldis­málunum nógu vel. Það er mín skoðun að ef við myndum hlúa betur að barna­fjölskyldum og gefa meiri tíma til að sinna börnum betur og gefa þeim meiri tíma, þá værum við að leysa mikið af öðrum vanda­málum. En það er ekki hægt að vera einn eða ein í þessu og þess vegna þyrftum við að taka okkur saman um að gera breytingar.“

Ásdís segir að við séum komin á árið 2023 og það sé rétt að byrja að skoða hvort við getum ekki tekið upp nýjar leiðir

„Þróun mannsins og samfélagsins er komin miklu lengra og kerfin ættu að taka mið af því. Foreldrar mínir og foreldrar þeirra voru í harðri lífs­baráttu og allir þurftu að standa sig bara til að uppfylla grunn­þarfir. Þannig að það er ekki óeðlilegt að það hafi búið til hugmyndina um að standa sig borgara­lega og önnur gildi í þá hátt. Nú eru bara aðrir tímar, þar sem við eigum að vera komin með möguleika á að taka skref í þá átt að opinbera okkur sjálf meira, fara eigin leiðir og hætta að láta óttann við grunn­þarfirnar stýra alltaf för. Auðvitað þurfa margir góðan ramma og það er mikilvægt að láta hlutina ekki bara vera einhvern vegin, en við erum komin á tíma þar sem gervi­greind er að fara að leysa gríðar­lega margt af hólmi. Þá hlýtur að vera eðlilegt að við skoðum að breyta samfélags­kerfum sem miðuðust við allt aðra tíma.“

Þáttinn með Ásdísi og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim