Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Stewart grét er hann tilkynnti andlát fjölskylduhundsins: „Hann var tilbúinn. En ég var það ekki“

Jon Stewart brotn­aði niður við upp­tökur á þætti sínum The Daily Show í fyrra­dag en þar til­kynnti hann að fjöl­skyldu­hund­ur­inn Dipper, væri dáinn.

Grínist­inn Jon Stewart, sem snéri nýlega til baka sem stjórn­andi The Daily Show, eftir að hafa stigið til hliðar árið 2015, hélt til­finn­inga­þrungna ræðu um hund­inn sinn Dipper, sem lést á sunnu­dag­inn. Sagði hann frá and­lát­inu í lok þátt­ar­ins en átti erfitt með sig.

Sagði Stewart frá því hvernig fjöl­skyldan eign­að­ist Dipper en hann fengu þau í dýra­at­hvarfi í New York fyrir um 13 árum síðan en hund­ur­inn hafði misst einn fót­inn þegar hann varð fyrir bíl. Börn Stewarts stungu upp á að selja bolla­kökur fyrir utan dýra­at­hvarfið til að safna pen­ing fyrir það en Dipper var þá aðeins um árs gam­all en honum var stillt upp hjá þeim á sölu­básnum. Þau tóku svo hund­inn með sér heim. Þegar Stewart segir frá því, byrj­uðu tárin að flæða niður kinnar hans og hann sló í borðið og sagð­ist hafa haldið að hann næði að kom­ast lengra inn í sög­una, áður en hann brotn­aði saman.

„Og í heimi góðra stráka, var hann sá besti,“ sagði Stewart um leið og hann barð­ist við tárin. „Hann kom með í The Daily Show, á hverjum degi. Hann var partur af hunda­gengi þátt­ar­ins, Parker, Quali, Dipper, Riot. Og Dipper beið. Og við komum og tókum upp og Dipper beið eftir að ég kláraði.“

Sagði hinn 61 árs grínisti að Dipper hefði hitt þau öll, leik­ara, rit­höf­unda, for­seta og kon­unga. „Og hann gerði eitt sem Tali­bönum tókst ekki,“ sagði hann og hélt áfram, „honum tókst að hræða Malala Yousafzai.“ Sýndi hann þá klippu af því er Dipper gelti að paki­stönsku bar­áttu­kon­unni, sem var ekk­ert voða­lega vel við það.

Eftir að mynd­skeiðið klárað­ist sagði Stewart, með erf­ið­is­munum, að Dipper hefði dáið á sunnu­dag­inn. „Hann var til­bú­inn. Hann var þreyttur. En ég var það ekki,“ sagði Stewart og áfram hélt hann, „Og fjöl­skyldan, við vorum öll saman, sem betur fer, við vorum öll með honum. En maður minn, ég óska þess að einn dag­inn finnið þið þannig hund, hund sem er bestur.“

Lauk hann svo þætt­inum á sama máta og alltaf og sagði: „þín Zen stund (e. Your Moment of Zen,“ og birti mynd­band af Dipper leika sér í snjónum.

Hið hjart­næma mynd­skeið má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027