Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Óskar rithöfundur og Agnes biskup deila hart: „Það er engin stofnun sem starfar svona“

Óskar Magnússon vill endirskoða kjör biskups. Myndin er samsett.
Óskar Magn­ús­son vill end­ir­skoða kjör bisk­ups. Myndin er sam­sett.

Mjög svo hart var tekist um húsnæðismál biskups­stofu á Kirkju­þingi, eins og RÚV greinir frá.

Rithöfundurinn og bóndinn Óskar Magnússon sagði Agnesi biskup hafa sagt nei þegar framkvæmda­nefnd þjóð­kirkjunnar taldi sig hafa fundið ákjósanlegt húsnæði í Borgar­túni; biskup sagði það byggt á kjafta­sögum:

„Það er ekki gott að byggja skoðanir á kjafta­sögum, baktali og röngum upplýsingum.“

Þá kom fram að framkvæmda­nefnd kirkju­þings kynnti sýna fyrstu skýrslu; nefndin tók formlega til starfa 1. janúar síðastliðinn; henni er ætlað að annast eftirlit með fjárhag og rekstri Þjóð­kirkjunnar.

Nefndinni var líka falið að ráða framkvæmda­stjóra rekstrar­stofu. Eftir að hafa farið yfir umsóknir og viðtöl þá var það Birgir Gunnarsson, fyrr­verandi bæjar­stjóri á Ísafirði, sem var ráðinn.

Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að meðal annarra verkefna hafi verið að leita leiða til að lækka húsnæðis­kostnað kirkjunnar, en Biskups­stofa flutti árið 2020 úr húsnæði sínu á Lauga­veginum og yfir í Katrínartún.

Það húsnæði var hins vegar talið of dýrt og of stórt fyrir starfsemina.

Fulltrúar Biskups­stofu vildu að starfsemin yrði flutt í safnaðar­heimili Grensás­kirkju; segir framkvæmda­nefndin í skýrslunni að slíkt hafi ekki verið tímabært enda hefði þurft að ráðast í dýrar framkvæmdir sem og kaup á húsnæðinu.

Segir líka að á meðan leitað væri og mögulega náð að jafnvægi í rekstri kirkjunnar væri skynsamlegra að leigja skrifstofu­húsnæði; en til að koma til móts við óskir fulltrúa Biskups­stofu hafi framkvæmda­nefndin ekki getað annað en að skipta rekstrinum tíma­bundið í tvennt: Rekstrar­stofan yrði til húsa við Suður­landsbraut; Biskups­stofa í safnaðar­heimili Grensás­kirkju.

Rithöfundurinn og bóndinn Óskar Magnússon – einnig fyrr­verandi marg­faldur forstjóri ýmissa fyrir­tækja – er fulltrúi Suður­prófasts­dæmis á kirkju­þinginu; hann er maður með skoðanir og tók til máls áþinginu; taldi þess niður­stöðu vera til marks um „djúp­stæðan klofning“ milli Biskups­stofu og rekstrar­sviðs.

Óskar sagði að Birgir Gunnarsson væri hæfur maður sem hefði verið ráðinn til að leysa eitt stærsta vanda­málið sem kirkjan væri að glíma við í dag; sagði hann hafa fundið hentugt húsnæði, en þá hefði biskup bara sagt nei.

„Það er engin stofnun sem starfar svona,“ sagði Óskar.

Agnes biskup svaraði Óskari; sagði það að kenna biskupi eingöngu um væri byggt á kjafta­sögum; Agnesi hefði hins vegar ekki þótt það mikil kurteisi af framkvæmda­nefndinni þegar hún boðaði hana á sinn fund og tilkynnti henni að biskups­stofa þyrfti að flytja:

„Allt starfs­fólkið var tilbúið að leggja það á sig að vera í litlu húsnæði þar til framtíðar­staður yrði fundinn en það var ekki vilji fyrir því og þess vegna var farið á tvo staði út í bæ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim