Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Samkvæmt heimildum Heimildarinnar

Fram er kominn nýr fjöl­miðill, Heimildin, sem varð til við sameiningu Stundarinnar og Kjarnans. Er nokkuð öruggt að slá því fram að þarna er sé kominn fram á sjónar­sviðið öflugur frétta­miðill sem sérhæfi sig í flóknum og erfiðum frétta­málum enda saman komnir á einn stað helstu rannsóknar­blaðamenn landsins og það undir dyggri stjórn Helga Seljan sem vakið hefur athygli og aðdáun marga fyrir að stinga á mörgum þeim kýlum sem samfélagið hefur þjáðst af í gegnum tíðina.

Er óhætt að segja að nú skjálfi margir spillingar­pésarnir á beinunum, þegar Heimildin er orðin að veruleika. Sést það til dæmis á skrifum bloggara hlið­hollum ákveðinna viðfangs­efna Seljan og Co. sem heldur því fram að Stundin og Kjarninn hafi sameinast af neyð vegna peninga­skorts og að um hafi verið að ræða hið séríslenska kennitölu­flakk. Slíku vísa ritstjórar hins nýja miðils til föður­húsanna og segja fjárhags­stöðu beggja fjöl­miðlanna hafa verið góða og að Heimildin hafi orðið til þegar þau áttuðu sig á að miðlarnir tveir væru betri sameinaðir en í hvor í sínu lagi.

En þá að nafninu. Heimildin er kannski ekki besta nafnið sem hægt var að finna á nýjan frétta­miðil, en það er auðvitað smekks­atriði. Blaðamenn nota þetta orð oft og iðulega „samkvæmt heimildum“ og því orðið vel kunnuglegt innan stéttarinnar en kannski pínu klaufalegt fyrir fjöl­miðilinn ef þeir ætla að vitna í heimild sína í frétt og segja „samkvæmt heimildum Heimildarinnar“ en það er svo sem léttilega hægt að komast hjá því með því að tala um blaðið eða miðilinn í staðinn. Jón Gnarr er einn af þeim sem hafa gagnrýnt nafnið en einhver Twitter-snillingurinn kom með þá hugmynd að kalla miðilinn Kjarnorku­stundina, sem ég verð að viðurkenna að hljómar vel og svolítið „in your face.“ Ég held að Heimildin venjist nú samt og að það muni ekki einu sinni taka langan tíma. Ef inni­haldið er gott, skiptir nafnið varla máli.

Fjölmiðla­pistill þessi birtist í nýjasta vefblaði Mannlíf sem má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim