Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Algjörir drullusokkar: „Við stefnum á toppinn“

Drullusokkarnir hafa þekkst mjög lengi og voru að gefa út nýtt lag
Drullu­sokk­arnir hafa þekkst mjög lengi og voru að gefa út nýtt lag

Sumir vilja ekki vera kallaðir drullu­sokkar en Bergur og Sebastían vilja það.

Rapp­sveitin Drullu­sokkarnir hefur átt góðu gengi að fagna þrátt fyrir utan aldur meðlima sveitarinnar. Þeir eru frændur sem heita Bergur og Sebastían og eru aðeins 15 og 16 ára gamlir. Lögin þeirra Kvenna­gull og Pabba­peningar hafa vakið athygli fyrir snjalla texta og frumleika en slíkt hefur sárlega vantað í íslenskt rapp undan­farin ár. Hljóm­sveitin gaf út lagið VÖKUNÓTT fyrr í dag en með þeim í laginu er DAVITH.

„Við höfum verið alveg óaðskiljanlegir síðan í barnæsku vegna þess að við erum frændur og höfum verið bestu vinir alla tíð,” sögðu þeir um hvernig þeir kynntust.

„Við vorum kallaðir Drullu­sokkarnir af fjölskyldu­meðlimum áður,“ sögðu þeir um hvernig Drullu­sokkarnir urðu til. „Bergur hefur verið í tónlistinni frá barnæsku þar sem hann hefur æft á gítar, trommur, klarínett og ýmislegt annað en ekkert heillaði hann eins og píanóið, sem hann hefur núna æft í mörg ár. Bergur byrjaði að búa til takta og ýmis lög í hálfgerðu gríni fyrir löngu heima hjá sér í Banda­ríkjunum,“ en svo flutti Bergur til Íslands. Á sama tíma var Sebastían búinn að semja lög með vinum sínum og vissi að frændi sinn var að gera tónlist svo þeir ákváðu í fram­haldinu að byrja vinna saman.

„Kanye West, Birnir, Gísli Pálmi, Travis Scott, Kendrick Lamar, Herra Hnetu­smjör, Elton John, Ásgeir Trausti, Coldplay, David Bowie, Queen, The Weeknd, Fleetwood Mac,“ eru nöfnin sem koma upp í huga piltana þegar þeir eru spurðir á hvað þeir hlusta. „Við hlustum líka á „latin“ tónlist. Við hlustum á mjög fjöl­breytta tónlist og höfum smekk fyrir öllu en þetta eru helstu tónlistar­mennirnir sem við hlustum á, og tökum innblástur frá.“

„Bergur hlustar rosalega mikið á Kanye West vegna þess að hann er svo fjöl­breyttur og horfir upp til hans sem „producer“ og lista­maður. Bergur var alinn upp við tónlist Queen, David Bowie og öðrum á listanum, en kynnti sér tónlist Elton John með því að kenna sjálfum sér á píanó. Bergur bjó í Banda­ríkjunum í 6 ár og er með innblástur frá bandarísku rappi og tónlistar­menningu þaðan,“ en sjálfur sækir Sebastían meira í íslenskt rapp og voru Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauti hans fyrstu kynni á íslensku rappi. Hann tekur þó fram að hann hlusti á mjög fjöl­breytta tónlist en skilar sér alltaf aftur í íslenska rappið.

Piltarnir sögðu að það sé engin ein leið til að búa til lag. Lagið Pabba­peningar var gert út frá hugmynd að tónlistar­myndbandi meðan hugmyndin að laginu Kvenna­gull kom frá föður Bergs

„Við höfum verið að plana að gefa út plötu síðan áður en að við gáfum út Pabba­peningar og erum við með nokkur lög í vinnslu fyrir hana. Bergur er samt sem áður að fara í skiptinám til Japans þannig plata er ekki áætluð á næstunni. Við viljum heldur ekki gefa út plötu fyrir fá eyru og viljum byggja upp stóran hlustendahóp áður en það gerist. Við stefnum á toppinn,“ sögðu þeir og ætla ekki stoppa fyrr en þangað er komið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt