Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Leigir út 56 stúdíóíbúðir og hagnast vel: „Davíð Oddsson úthlutaði mér lóð“

Viðar Guðjohnsen er athafna­maður, fyrr­verandi fram­bjóðandi og á fasteign í Mörkinni þar sem hann leigir út stúdíó­íbúðir og hefur hagnast vel

Viðar Guðjohnsen er athafnamaður
Viðar Guðjohn­sen er athafna­maður Hefur átt fast­eign í ára­tugi í Mörkinni er hann leigir út með góðum hagn­aði Mynd: X-D

Viðar Guðjohnsen, athafna­maður og fyrr­verandi fram­bjóðandi, á fasteign í Mörkinni þar sem hann leigir út stúdíó­íbúðir. Eignina hefur hann átt í yfir þrjá áratugi og hefur hagnast vel. Hann ræðir um leigu­markaðinn og herbergja­hótel í viðtali við blaða­manninn Inga Frey Vilhjálmsson í frétta­skýringa­þættinum Þetta helst.

Viðar Guðjohnsen var ekki þekktur er hann bauð sig fram í leiðtoga­prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík fyrir sjö árum síðan.

Hann hefur verið ansi hreint stórtækur leigusali lítilla íbúða núna í meira en þrjátíu ár:

„Ég hafði samband við Davíð Oddsson sem úthlutaði mér lóð. Davíð Oddsson borgar­stjóri. Af því ég ætlaði að leigja efnaminna fólki. Hann hafði trú á mér og ég hafði trú á honum,“ segir Viðar sem á og rekur fasteign í Mörkinni í Reykjavík. Þar er hann með heilar 56 leigu­einingar: Stúdíó­íbúðir og líka „skonsur“ eins og hann orðar það sjálfur, í útleigu.

Mikil umræða hefur verið varðandi útleigu á litlum íbúðum og herbergjum á höfuð­borgar­svæðinu. Sem og aðstæður erlends verka­fólks á leigu­markaði eftir mann­skæðan eldsvoða á Hjarðar­haga fyrir stuttu síðan.

Í einhverjum tilfellum er búið að breyta húsnæðinu án þess að afla tilskilinna leyfa, þannig að bruna­vörnum er ábótavant í slíku húsnæði, eins og slökkivliðsstjórinn í Reykjavík, Jón Viðar Matthíasson, benti meðal annars á fyrir skömmu og hefur áður gert.

Formaður leigjenda­samtakanna, Guðmundur Hrafn Arngrímsson, hefur kallað eftir að settar verði einhverjar skorður á eignar­hald tiltekinna einstaklinga og eignarhalds­félaga á íbúðum.

Þá aftur að Viðari.

Í ársreikningi fyrir­tækis hans er heldur utan um fasteignina í Mörkinni og útleigu hennar, kemur það fram að félagið var með rúmlega 90 milljóna króna tekjur árið 2023 og hagnaðurinn var ríflega 33 milljónir. Fyrir­tækið var með 79 milljóna króna tekjur árið 2022, rúmlega 30 milljóna hagnað það árið.

Kemur fram í máli Inga Freys að fasteigna­matið á þessu 56 leigu­eininga húsi Viðars er 880 milljónir króna. Brunabóta­matið er 1260 milljónir. Skuldir félags Viðars á móti þessum eignum eru tæplega 53 milljónir króna og því óhætt að segja að leigu­fyrirtæki Viðars sé afskaplega vel statt fjárhags­lega.

Viðar segir að hann okri ekki á leigu­verðinu, en að hann hagnist engu að síður ágætlega og segir að sumir sem leigi hjá honum hafi búið lengi í Mörkinni, jafnvel í einhver 30 ár:

„Já, já. Ég hagnast en hagnaðurinn fer í að byggja nýtt húsnæði. Ég er á bíl sem er 25 ára gamall, þú sérð hvernig útgangurinn á mér er, ég passa upp á hluti, mér líður ekkert illa þó að ég sé ekki á fancy bíl, ég spara úti um allt. Ég er ekkert að gera út af því að ég vilji gefa peninga. Hvað hef ég á móti? Ég hef leigutaka sem mér líkar vel og þykir vænt um“ segir Viðar sem vill meina að búseta Íslendinga og erlendra ríkis­borgara í herbergja­hótelum sé ekki vandamál á leigu­markaði.

Viðar segir að þessi þróun sé svar við miklum innflutningi fólks frá öðrum löndum til Íslands:

„Þetta er í raun innrás; Þetta er bara stríð sem við erum komin í,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Peningar

Kröfu­hafar Skagans 3X boðaðir á fund

Félagið var úrskurðað gjaldþrota í júlí 2024. Kröfuhafar geta nú kynnt sér tillögu að úthlutun úr þrotabúinu.
  • Kaup­máttur jókst um 5,8 prósent frá upphafi kjara­samninga­lotunnar

  • Skiptum lokið á þrotabúi Talays

  • Elís segist hafa tapað 100 milljónum í viðskiptum við fjárfesta

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyrirtæki með fyrrum lands­liðsmanni

  • Landsliðs­konur í ný störf