Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Uppnám í vél Flugleiða til Minneapolis: Dómari úr Hafnarfirði trylltist og varð flugdólgur

Uppnám varð um borð í vél Flugleiða, FI-653, sem var á leið til Minneapolis þegar dómari við héraðsdóm Reykjaness missti stjórn á sér og veittist að flug­freyjum með ofbeldi. FBI handtók manninn við komuna til Banda­ríkjanna og var flug­dólgurinn sendur með lögreglu­fylgd heim til Íslands. DV ræddi við hann eftir heim­komuna. Hann bað um nafnleynd en gerði lítið úr atvikum.

flug­freyju­mar voru óþarf­lega við­kvæmar

„Eftir 11. september gætir mikillar viðkvæmni í flugi. Það hafa ekki færri en fjórir Íslendingar verið sendir heim frá Banda­ríkjunum vegna einhvers sem kom upp á í fluginu. Mitt mál er því ekkert einsdæmi,“ sagði hann stuttu eftir heim­komuna.

Dómarinn, sem starfaði í Hafnar­firði, sagðist þó hafa skilning á aðgerðum Flugleiða gagnvart sér enda sé félagið að halda uppi virðingu á alþjóð­legum flug­leiðum.
„En hitt er annað mál að flugfreyjumar voru óþarflega viðkvæmar. Ég var bara leiðinlegur fullur maður sem var settur í rangt sæti. Vegna persónulegra mistaka móðgaði ég flug­freyju. Það er fullur Íslend­ingur í hverri flugvél sem fer til útlanda á vegum Flugleiða svo ég var engin undan­tekning,“ sagði dómarinn og kvaðst hafa haft þá venju um árabil að
„ferðast fullur“ og hingað til hafl hann sloppið við vandræði.

Atvikin urðu með þeim hætti að dómarinn, sem var á ferðalagi í persónu­legum erinda­gjörðum, varð ósáttur vegna þess að hann fékk ekki að sitja við hlið eiginkonu sinnar. Hann sat í öftustu röð, drakk yfir sig og varð gripinn ölæði. Hann veittist að fólki og sló meðal annars tvær flug­freyjur og að auki þann þriðja úr áhöfninni. Aðra flug­freyjuna sló hann í andiit en hina i handlegg. Árni G. Sigurðsson flug­stjóri sem þekkti manninn reyndi að róa flug­dólginn. Úr varð að lögreglu­maður, sem var í hópi farþega, var settur við aðra hlið hans og fílefldur farþegi við hina hliðina.

FBI mætti á svæðið

Flug­dólgurinn róaðist og lofaði bót og betrun þegar hálfur annar timi var eftir af fluginu til Minneapolis. Eftir aö vélin var lent rann aftur æði á hann og bandaríska alríkis­lögreglan, FBI, kölluð til. Dómarinn drukkni var hand­tekinn og leiddur í jámum i gegnum hóp ferða­félaga sinna og fangelsaður. Hann svaf úr sér vímuna. Við yfirheyrslu ytra var honum tilkynnt að hann yrði sendur heim til Íslands með næstu flugvél. Að þessu sinni í gæslu þriggja FBI-manna. Flug­leiðir þurftu að leggja til fímm sæti til að tryggja heimfór hans því
ásamt lögreglu­mönnunum þremur ákvað eigin­konan að fylgja manni sínum heim í stað þess að halda áfram ferðalagi sínu ein.

Maðurinn þurfti að greiða kostnaðinn sem hlaust af uppnáminu og að auki fékk hann ekki að fara til Banda­ríkjanna næstu árin. Guðjón Amgrímsson, upplýsinga­fulltrúi Flugleiða, sagði að félagið liti þetta mál alvarlegum augum. Hann sagði að félagið myndi funda með flug­liðunum úr umræddu flugi og að farið yfír málið í heild sinni.

Við fengum okkur bara nokkra öll­ara

Eftir því sem næst verður komist er það tann­læknir sem fyrstur hlaut þá „nafnbót“ að vera flug­dólgur. Það var um aldamótin. Eftir það hefur orðið komist inn í íslenska tungu og nokkrir einstaklingar hafa fengið það viðurnefni. Tveimur árum áður en dómarinn gerðist dólgur komst tann­læknirinn Ómar Konráðssoní fréttirnar þegar honum var vísað úr vél Flugleiða á leið til Minneapolis. Sá var á ferðalagi með vinkonu sinni og hjónum frá Vestmanna­eyjum.  Ómari og vinkonu hans var vísað úr vélinni ásamt manninum frá Eyjum. Þótti framkoma þeirra og drykkja í flug­vélinni vera öðrum til ama. Tann­læknirinn þvertók fyrir það að hafa gengið of langt.

„Þetta eru ekkert annað en ofsóknir af hálfu Flugleiða. Við fengum okkur bara nokkra öllara í vélinni eins og gerist og gengur og fyrir bragðið á að banna mér að fljúga um aldur og ævi með Flug­leiðum. Ég á þetta ekki skilið,“ sagði hann í samtali við DV á þeim tíma og vildi ekki kannast við meint ólæti. Að vísu hefði Vestmanna­eyingurinn reykt eins og strompur í vélinni og slegið flug­freyju en sjálfur hefði hann verið til friðs þrátt fyrir „nokkra öllara.“
Hann sagði vinkonu sína hafa þurft að hreyfa sig í vélinni vegna
æðaþrengsla. „Það þoldu farþegarnir ekki enda voru þetta aðallega vistmenn af
elli­heimilinu Grund sem hafa ama af flestu.“

Í viðtalinu sagðist meintur flug­dólgur ætla að kæra Flug­leiðir því hann hefði orðið fyrir töluverðu fjárhags­legu tjóni vegna atviksins. Töluverð rannsókn áttiu sér stað vegna málsins og um þrjátíu manns voru
yfir­heyrðir; þar á meðal áhöfn og einhverjir farþegar. Tann­læknirinn var settur í flugbann og í mars árið á eftir sagði DV frá því að hann yrði að fara sjóleiðina í sumar­fríið og
hafði þá þegar bókað sér far með Norrænu til þess að geta heimsótt
dóttur sína erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti