Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Dóttir Obama-hjónanna breytir um listamannanafn – Hyggur á frama í kvikmyndaheiminum

Malia Ann Obama
Malia Ann Obama Mynd: Trausti Hafsteinsson

Elsta dóttir Barack og Michelle Obama, hefur tekið upp nýtt lista­manna­nafn.

Malia Obama, dóttir fyrr­ver­andi for­seta Bandaíkj­anna, Barack Obama og Michelle Obama, er upp­renn­andi hand­rits­höf­undur en hún hefur nú tekið upp nýtt lista­manna­nafn. Í raun er ekki um nýtt nafn að ræða en hún hefur sem sagt ákveðið að taka út Obama nafnið á kredit­listum við verk sín og setja í stað­inn milli­nafn sitt Ann. Er hún sem sagt nú titluð sem Malia Ann.

Nýjasta verk hennar er stutt­myndin The Heart en hún bæði skrif­aði hand­ritið og leik­stýrði. Áður hafði hún verið í hand­ritsteym­inu sem skrif­aði þætt­ina Swarm.

Fram kemur í frétt E online að ástæðan fyrir því að Malia Obama, sé nú titluð Malia Ann á kredit­listum, sé lík­leg­ast sú að hún vilji ná árangri og frama af eigin verð­leikum en ekki vegna þess að hún á Obama-hjónin fyrir for­eldra, sem sjálf eru komin með kvik­mynda­fram­leiðslu­fyr­ir­tæki.

Þrátt fyrir að fyrr­ver­andi for­seta­hjónin séu orðin kvik­mynda­fröm­uðir, mættu þau ekki á Sundance kvik­mynda­há­tíð­ina 2024, fyrr í þessum mán­uði en þangað mætti Malia, sem er 25 ára en þar gekk hún í fyrsta skipti á rauða dregl­inum. Hún var þar til að sýna stutt­mynd­ina The Heart.

Malia segir að stutt­myndin sé „svo­lítið skrítin, lítil saga, hálf­gerð dæmi­saga um mann sem syrgir and­lát móður sinnar, eftir að hún skilur eftir sig óvenju­lega beiðni í erfða­skrá sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027