Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þakkar Sólveigu Önnu fyrir baráttuna: „Ég dáist enn að baráttuþreki hennar“

Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er samsett.
Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er sam­sett.

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir endur­birti ljóð sem hún samdi til Sólveigar Önnu Jóns­dóttur, á Facebook og þakkaði henni fyrir að standa vörð um fátæka fólkið.

Leik­konan ást­sæla Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

Aðdáun Stein­unnar Ólínu, leikkonu á verkalýðs­foringjann Sólveigu Önnu hefur ekki farið framhjá mörgum enda hefur Sólveig verið ötul í baráttu sinni fyrir bættari kjörum skjólstæðinga sinna undan­farið, þó eflaust megi rökræða hversu vel tókst til að lokum.

Í nýrri færslu á Facebook birtir Steinunn Ólína ljósmynd af Sólveigu Önnu og þakkar henni fyrir unnin störf í þágu verka­lýðsins.

Þá endur­birti hún ljóð sem hún samdi til verkalýðs­foringjans í fyrra en færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Þetta orti ég til Sólveigar Önnu í febrúar í fyrra. Ég dáist enn að baráttu­þreki hennar og einurð í vinnu sinni fyrir fátækasta fólkið á vinnu­markaðinum og hversu óhrædd hún er að mæta andstæðingum verkalýðs­baráttu á Íslandi sem eru bæði valda­miklir og grimmir.

Ég þakka henni jafnframt að hafa haft stórkostleg áhrif á stétt­vitund fólks á Íslandi og að hafa vakið baráttu fyrir betra samfélagi og bættum kjörum almennings upp frá dauðum.

Sólveig kallar sannarlega eftir annarri samfélags­gerð. Hún kallar eftir því að okkur sé ekki sama um fátækt fólk og hvernig því reiðir af.

Ort til Sólveigar Önnu 16. Febrúar 2022.

Vittu til að vorsins

vakna jarðar blóm

Úr skugganum þau skríða

og skarta björt mót sól

Um andann skalt ei efast

því ekkert bindur laust

Tækifærin gefast

gæfuna þú hlaust

Þau sem verkin vinna

vökul stór og smá

Virðing fyrst þau finna

er frelsi andans ná

þeir sem græða en gefa

ei gömlum höndum gaum

sáran þurfa að sefa

sorgarinnar flaum

Því ekkert er á jörðu

eign þess sem ekki sér

þá þreyttu, þjáð’ og börðu

þeir vinna störfin hér

Vittu til að vorsins

vakna jarðar blóm

Úr skugganum þau skríða

og skarta björt mót sól“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim