Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þessi kona væri drottning Íslands hefðum við tekið upp konungsveldi

Um tíma stóð til að Ísland yrði konungveldi en ekki lýðveldi. Stefán Pálsson sagn­fræðingur fer á Facebook yfir afleiðingar þess en samkvæmt honum þá væri konan á myndinni hér fyrir ofan líklega drottning Íslands um þessar mundir.

„Hér sjáum við glaðbeitta fjöl­skyldu á leiðinni í bíó fyrir fáeinum árum. Móðirin, Jósefína, er í miðjunni. Kærastinn hennar til tveggja ára þegar myndin var tekin, Kenneth Schmidt, er þessi vörpulegi maður í fína vestinu. Þau eiga núna eitt barn saman. Hinir krakkarnir eru börn Jósefínu frá fyrra hjóna­bandi. Takið sérstak­lega eftir tánings­piltinum Júlíusi. Núna er hann 21 árs gamall,“ skrifar Stefán.

Hann heldur svo áfram:  „Á sínum tíma datt einhverjum í hug að sniðugt væri að sjálfstætt Ísland yrði ekki lýðveldi heldur konungs­veldi. Fyrsti þjóð­höfðingi konungs­veldisins Íslands hefði samkvæmt þessum plönum orðið Knútur prins, sem hefði orðið konungur Danmerkur ef erfða­reglunum hefði ekki verið breytt til að hleypa Margréti Þórhildi að þrátt fyrir að vera kona. Þessi breyting var öðrum þræði gerð vegna þess að Dönum leist alveg mátulega á Knút, sem þótt m.a. óþarflega áhuga­samur um málefni slökkviliðsins. Knútur mun hafa verið skotinn í hugmyndinni um að drottna yfir Íslandi. Hann hafði gefið elsta syni sínum nafnið Ingólfur. Flestum ber saman um að Ingólfur sé föðurbetrungur.“

Miðað við þetta þá hefði Knútur orðið konungur til ársins 1976. „Gerum okkur nú í hugarlund að Knútur hefði fengið giggið. Bessa­stöðum hefði verið breytt í konungs­höll og Knútur konungur hefði ríkt hér á landi frá stríðs­lokum til dauðadags árið 1976. Líklegt má telja að Íslendingar hefðu fylgt fordæmi Dana og látið krúnuna erfast til elsta barns óháð kyni. Þá hefði Elísabet prinsessa tekið við valda­taumunum og í stað þess að vinna í dönsku utan­ríkis­þjónustunni hefði hún verið drottning Íslands til dauðadags 2018, þá 83 ára gömul.“

Hann gefur sér að þetta fólk hefði hagað sér nokkuð veginn eins og í alvörunni. „Þar sem við gefum okkur í þessari tímalínu að fjölskyldu­hagir persóna og leikenda hefðu þróast nákvæmlega eins og í raun­veru­leikanum, þá deyr Elísabet fyrsta af Íslandi barnlaus. Þá er loksins komið að Ingólfi. Drengnum sem fæddist annar að ríkis­erfðum í Danmörku en var svo svikinn um völdin. Ingólfur fyrsti konungur var kominn fast að áttræðu þegar hann var krýndur og líklega þótti honum tómt vesen að þurfa að flytja til Bessa­staða á gamals aldri, en hér átti hann svo sem marga vini og passaði sig á að halda íslensk­unni við ef svona kynni að fara,“ segir Stefán.

Flókin erfðaröð hefði svo valdið því að konan á myndinni hefði orðið drottning. „Ingólfur konungur er hins vegar barnlaus og þegar þetta er ritað, í september 2022, er hann orðinn 82 ára gamall og þótt hann sé nokkuð sprækur þá verður hann tæpast eilífur. Blessunar­lega áttu barn­leysingjarnir Elísabet fyrsta og Ingólfur fyrsti þó bróður sem eignaðist erfingja. Það var Kristján greifi sem lifði það ekki að sjá Ingó bróður taka við af Betu systur. Kristján náði þó að koma erfða­efninu áfram sem fyrr segir. Eignaðist þrjár dætur.

Elst er Jósefína, konan á myndinni. Þegar Ingólfur fellur frá verður hún Jósefína drottning Íslands. Þetta gerir það að verkum að hún ratar stundum í slúður­dálkana í Hjemmet. Júlíus sonur hennar og væntanlegur arftaki í fyllingu tímans kemst hins vegar reglulega á lista yfir álitlegustu piparsveinana í slúður­pressunni enda ekki margir verðandi ríkis­arfar á lausu.

…segið svo að það væri ekki gaman að hafa konungs­veldi á Íslandi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum