Það var rétt eftir miðnætti í gærkvöldi þegar lögreglu barst tilkynning um slys á veitingastað í miðbænum. Þar hafði ágreiningur komið upp á milli tveggja félaga sem endaði með því að annar þeirra datt niður stiga og slasaðist á enni. Var hann fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á Bráðadeild í kjölfarið. Íbúi í Árbænum hafði samband við lögreglu fyrr um kvöldið vegna mikillar fíkniefnalyktar. Skömmu síðar mætti lögregla á vettvang, handtók tvo menn og handlagði fíkniefnin.
Í Mosfellsbæ kom gangandi vegfarandi að meðvitunarlausum manni við biðstöð Strætó. Blæðing var frá höfði mannsins sem virtist hafa dottið aftur fyrir sig. Þegar lögregla og sjúkrabíll mættu á vettvang hafði maðurinn sem betur fer rankað við sér en var hann fluttur á bráðadeild til aðhlynningar. Síðar um nóttina var slökkviliðið kallað út vegna elds á svölum íbúðar í Árbæ. Íbúum hafði tekist að slökkva eldinn en svalirnar voru fullar af dósum. Ekki er vitað um upptök eldsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir