Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

ÖBÍ fer í mál við Reykjavík

„Réttindi fatlaðs fólks eru ekki valkvæður útgjalda­liður“

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Er borg­ar­stjóri Reykja­víkur Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

ÖBÍ réttinda­samtök hafa höfðað mál fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur gegn Reykja­víkurborg vegna fjárhags­áætlunar borgarinnar fyrir árið 2026 á notenda­stýrðri persónulegri aðstoð (NPA). NPA er þjónusta sem gerir fötluðu fólki kleift að taka stjórn á eigin lífi og aðstoð.

Málið verður þingfest í dag, fimmtudaginn 4. júní 2026, og krefst ÖBÍ viðurkenningar á því að borgin hafi með samþykkt áætlunarinnar brotið gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með lang­varandi stuðnings­þarfir.

Þegar fjárhags­áætlunin var samþykkt í borgar­stjórn 2. desember 2025 lágu fyrir að minnsta kosti 42 samþykktar umsóknir um NPA sem biðu þess eins að þjónustan yrði fjár­mögnuð. Að baki hverri umsókn er fatlaður einstaklingur sem borgin hefur þegar staðfest að eigi rétt á aðstoðinni en fær hana ekki.

„Reykja­víkurborg hefur sjálf viðurkennt rétt þessara 42 einstaklinga til aðstoðar en kýs samt að fjármagna hana ekki. Réttindi fatlaðs fólks eru ekki valkvæður útgjalda­liður sem má fresta milli ára, þau eru lögbundin og borginni ber að standa við þau,“ segir Alma Ýr Ingólfs­dóttir, formaður ÖBÍ réttinda­samtaka.

Fjárhags­áætlunin gerir ekki ráð fyrir neinni fjölgun NPA-samninga á árinu 2026 og hafa borgar­yfirvöld sjálf staðfest að umsóknirnar verði ekki fjár­magnaðar á árinu.

Notenda­stýrð persónuleg aðstoð gerir fötluðu fólki kleift að lifa sjálf­stæðu lífi á eigin forsendum og stjórna því sjálft hver aðstoðar það, við hvað og hvenær. Þjónustu­formið er lögfest útfærsla á rétti fatlaðs fólks til sjálf­stæðs lífs samkvæmt 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hefur lagagildi hér á landi.

Á meðan samþykktar umsóknir sitja ófjármagnaðar á biðlista er fólki í reynd meinað að taka þátt í daglegu lífi, námi, atvinnu og félags­lífi til jafns við aðra. Sá tími verður ekki bættur eftir á.

Með málinu vill ÖBÍ fá úr því skorið hvort sveitar­félögum sé heimilt að samþykkja umsóknir um lögbundna þjónustu en skilja fólk síðan eftir á biðlista árum saman með því að fjármagna hana ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim