Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ögmundur um VG og Sjálfstæðisflokkinn: „Annar hvor flokkurinn svíkur alltaf sína kjósendur“

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson Mynd: YouTube-skjáskot

Ögmundur Jónasson segir í viðtali í hlað­varpinu Ein pæling að það hafi alltaf verið sín skoðun að vinstri menn ættu aldrei að starfa með Sjálfstæðis­flokknum. Hann segir að það hlyti alltaf að verða þannig, ef sjálfstæðis­menn og vinstri græn færu saman í stjórn, að þá væri annar hvor flokkurinn að svíkja sína kjósendur.

Aðspurður hvort Vinstri Grænir eða Sjálfstæðis­flokkurinn hafi svikið sína kjósendur segir hann að Sjálfstæðis­flokkurinn hafi fengið miklu meira af sínu fram í núverandi stjórnar­samstarfi. Áður hefðu vinstri­menn barist fyrir jöfnuði og að samfélagið sem væri skipulagt út frá þeirri grunn­hugsun. Einnig var hægt að ganga út frá því að vinstri­menn væru andvígir hernaðar­hyggju og hernaðar­bandalögum. Nú væru menn aftur á móti að tala um að einkavæða vegina, hleypa fjárplógs­mönnum í vasa almennings á þjóð­veginum, hlaupa í fangið á NATO-foringjum og flytja hergögn á átaka­svæði. Grunn­prinsipin séu einfald­lega horfin. Hernaðar­hyggjan, einka­væðingin og markaðs­hyggjan sé búin að taka yfir.

Í umhverfis­málum segir Ögmundur Sjálfstæðis­flokkinn einnig ráða ríkjum, með umhverfis­ráðherra sem hefur aldrei tekið þátt í þeim mála­flokki að undan­skyldu því að mögulega gefa öndunum brauð. Nú ætti hins vegar að virkja hverja sprænu og þetta væri gert í skjóli og með þátttöku Vinstri­hreyfingarinnar græns framboðs.

„Það er annað með þessi umhverfismál. Sko Sjálfstæðis­menn, Umhverfis­ráðherra, hann hefur ekki sinnt umhverfis­málum mikið meira en að gefa öndunum svona í gegnum tíðina.“

Ögmundur segist í raun hafa miklar áhyggjur af vinstri­mönnum á Íslandi, sama um hvaða flokk væri að ræða. Það væri ekki hægt að mynda vinstri­stjórn á Alþingi vegna þess að þar sé enga vinstri­menn að finna. Með þessu áfram­haldi væru stjórn­málin öll færð yfir á „hægra sullið“ eins og hann kallar það.

ÞH: „Í sambandi við vinstrið, útaf því þú ræðir það líka í bókinni þinni, þú hefur áhyggjur af vinstrinu með tilliti til þess að vera misviljug til þess að eiga samræður og umræður um málefni. Hvar finnst þér vinstrið standa í dag? Með  tilliti til samræðna, umræðna og vilja til að sjá skoðana­hliðar annarra?“

ÖG: „Mér finnst það vera illa statt, mjög illa statt. Og ég segi nú í loka­kaflanum í bókinni að það er ekki hægt að mynda vinstri­stjórn á Íslandi því að til þess þyrftu að vera vinstri menn á Alþingi, en ég kæmi ekki auga á þá.“Ögmundur segir á öðrum stað í viðtalinu: „Það hefur verið þannig í pólitíkinni, að það eru svona ákveðinn grunnur sem skipting stjórn­málaflokka hefur byggt á…. Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef alltaf verið því andvígur, alltaf, að við sem erum á þessum kannti störfum með Sjálfstæðis­flokknum, ég hef alltaf verið andvígur því. Ekki vegna þess að mér sé illa við Sjálfstæðis­menn, alls ekki. Ég vil respektera þeirra skoðanir eins og annarra. En ef við færum saman í stjórn þá svíkur annar hvor sína kjósendur.“ÞH: „Telur þú að það hafi gerst í þessu stjórnar­sambandi?“

ÖG: „Já, já, já heldur betur. Heldur betur. Og þá svíkur annar hvor. Og það sem var, þú gast gengið út frá því að vinstri­mennirnir vildu jafnaðar­samfélag og vildu skipuleggja samfélagið á þeim grunni. Þú gast líka gengið út frá því að þeir væru andvígir hernaðar­bandalagi, og hernarhyggju. Þú gast gengið út frá því að gagn­aðilinn væri á öndverðu meiði í báðum málum. Og nú eru þessi grunn­prinsip horfin af vinstri­vængnum. Þau eru horfin. Þau eru ekki þarna. Það er verið að tala um að einkavæða vegina. Það er verið að tala um að hleypa fjármagns­mönnum ofan í vasana á okkur á þjóð­veginum og allstaðar. Og það er farið að selja andrúms­loftið hérna. Og bíddu, hvað eiginlega endar þetta? Menn eru hlaupandi upp í hálsinn á NATO foringjum og eru harðdrægustu NATO-sinnar sem finnast, flytja hergögn á stríðs­vettvang. Þetta er farið.“

ÞH: „Hvort hafa kjósendur Sjálfstæðis­flokksins eða Vinstri grænna verið sviknir meira í þessu stjórnar­sambandi?“ÖG: „Ég held að Sjálfstæðis­flokkurinn sé að ná sínu fram miklu meira heldur en vinstri menn. Það held ég að sé ekki nokkur spurning. Það er annað með þessi umhverfismál. Sko Sjálfstæðis­menn, Umhverfis­ráðherra, hann hefur ekki sinnt umhverfis­málum mikið meira en að gefa öndunum svona í gegnum tíðina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim