Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fréttamálið: Ofbeldisalda skellur á unglingana okkar

Myndin tengist ekki þeim atvikum sem um er rætt í greininni.
Myndin teng­ist ekki þeim atvikum sem um er rætt í grein­inni.

Undan­farið ár hefur hver fréttin rekið aðra þar sem sagt er frá grófu ofbeldi unglinga og ungmenna á höfuð­borgar­svæðinu og má með sanni kalla það bylgju. Barnamála­ráðherra sagði nýlega að þörf væri á átaki til að sporna gegn þessari þróun. Því er verkefna­stjóri á neyðar­móttöku Land­spítalans sammála, en þar mæla menn aukna hörku í líkams­árásum þessa aldurs­hóps.

Hnífsstungur og kynferðisbrot

Fréttir hafa borist undan­farið af auknu ofbeldi meðal unglinga og ungmenna. Sést það helst meðal annars á meira ofbeldi í miðbæ Reykja­víkur en stungu­árásum hefur fjölgað sem og alvarleg kynferðis­brot svo fátt eitt sé nefnt. Sem nýlegt dæmi má nefna að í ágúst­mánuði réðust nokkrir unglings­piltar á 16 ára gamlan dreng og stungu hann í bakið og var talið mikið mildi að drengurinn lifði árásina af, enda blæddi mikið. Gerendurnir voru 17 og 18 ára. Þá var meint kynferðis­brot í Fjölbrauta­skóla Suður­lands, þar sem báðir aðilar voru undir lögaldri, mikið í umræðunni fyrir stuttu. Nýjasta málið er frá miðjum september en þá var ráðist á 18 ára dreng með þroska­skerðingu í undir­göngum við Sprengi­sand í Reykjavík og reynt að hafa af honum hjól en hann var á leið á íþrótta­æfingu. Í kjölfarið var hann stunginn þrisvar sinnum. Pilturinn var fluttur á gjörgæslu þar sem hann undir­gekkst aðgerð. Gerendurnir voru þrír unglings­piltar.

Vett­vangur glæps­ins.

Í ársskýrslu Stígamóta fyrir síðasta ár, kemur fram að mikla athygli hafi vakið hversu margir ofbeldis­manna, sem leitað hafi til samtak­anna, hafi verið undir lögaldri er þeir frömdu brotin. Þar kemur fram að af þeim 700 brota­mönnum sem safnað var upplýsingum um á síðasta ári, hafi 107 þeirra eða 16.7 prósent, verið á aldrinum 14-17 ára. Ennfremur kemur fram í skýrslunni að 66.4 prósent brota­þolanna sem leitaði til Stígamóta árið 2021 hafi verið yngri en átján ára er þau voru fyrst beitt kynferðis­ofbeldi.

Kynferðismálum fjölgar á ný eftir Covid

Hulda Hrönn Björgúlfs­dóttir, verkefna­stjóri á neyðar­móttöku Lands­spítalans fyrir þolendur kynferðis­ofbeldis, sagði í viðtali við Mannlíf að aukin harka sé að færast í líkamsárásarmál, þá sérstak­lega hjá ungu fólki en áður en hún varð verkefna­stjóri vann hún á bráða­móttökunni í 15 ár.

Bráða­mót­taka Land­spít­al­ans.

„Fólk hefur áhyggjur af því, árásirnar eru orðnar grófari, verið er að nota hnífa og fleiri vopn og hópárásir þar sem ekkert er gefið eftir. Þetta er ekki kýlingar eins og þekktist í gamladaga. Fólk einhvernveginn svífst einskis og við vitum ekki alveg hvað veldur en við höldum að þetta tengist internetinu. Þar er allt orðið svo opið,” sagði Hulda.

Sagði hún einnig að kynferðis­afbrotum meðal ungs fólks sé að aukast aftur eftir nokkra lægð síðustu tvö árin. „Við tengjum þetta við Covid, því að flest kynferðis­brotamál sem koma til okkar tengjast skemmtana­lífinu. Það eru engar samgöngu­takmarkanir lengur og fólk er að fara út á djammið á skemmtistöðunum og í partý en kynferðis­brotin eiga sér ekki stað á skemmtistöðunum heldur í heima­húsum eftir djammið að mestu. Þetta er ekki meira en fyrir Covid en er að fara upp í svipaðan fjölda og fyrir Covid.“ Aðpurt segir Hulda að kynferðis­brotin séu þó ekki mælanlega grófari en áður. „Þetta er mjög svipað og hefur verið þó það komi grófar árásir inn á milli, en það hefur kannski ekki verið mikið í umræðunni. Ég á þá við árásir þar sem áverkar eru sýnilegir en tek fram að allar árásir eru auðvitað hryllilegar.“

Hulda segir einnig í samtali við Mannlíf að grunur sé um að kynferðis­brotin komi oft vegna klám­notkunar ungmenna. Samkvæmt skýrslu Mennta­vísinda­stofnunar um börn og netmiðla sem kom út á árinu, hafa tæplega þrír af hverjum tíu nemendum í 8. bekk horft á klám á netinu en hlut­fallið hækkar svo með árunum. Rúmur helmingur nemenda í 10. bekk hefur horft á klám og 70 prósent framhalds­skólanema.

Dæmi um nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar

„Strákar virðast fá sínar hugmyndir um það hvað kynlíf er eða haldað að það sé, ég veit það ekki, úr klámi. Það virðist vera ofsalega mikil harka í þessu, þó að það séu til allskonar hugmyndir um kynlíf þá ertu kannski ekki í því á fyrsta stefnu­móti.“ En hvað er hægt að gera til að sporna við þessari þróun? „Það er hellings vinna í gangi núna, það eru lands­samráðs­fundir og það á að fara að reyna að búa til einhvern farveg og auka fræðslu í skólum. Það er það sem mér finnst að þurfi að gera.“

Annað dæmi úr könn­un­inni

Átak nauðsynlegt

Eitthvað þarf að gera því varla vill þjóðin lifa í samfélagi þar sem börnin þeirra eiga það í hættu að verða fyrir hnífs­stungum og hópárásum þegar þau fara út á meðal jafnaldra sinna. En eru ráðamenn með puttann á púlsinum? Í viðtali í Bítið á Bylgjunni í lok ágúst, sagði barnamála­ráðherrann Ásmundur Einar Daðason að sérstakt átak þurfi til svo kveða megi niður þá ofbeldis­bylgju sem skollið hefur yfir meðal íslenskra unglinga og ungmenna. Sagði hann það standa til að koma á fót stýrihópi sem muni skoða ofbeldismál barna og leiðir til að sigrast á þeim vanda.

Ásmundur Einar Daðason

„Ég átti fund nýlega með ríkis­lögreglu­stjóra til að ræða þessi mál. Ég hef líka verið að ræða þetta við lögregluna, við dómsmála­ráðherra. Ég held að við þurfum að fara í aukið átak þegar kemur að þessum málum. Við þurfum að fara inn í skólana, við þurfum að fara í fyrir­byggjandi aðgerðir,“ sagði Ásmundur í viðtalinu og hélt áfram: „Ég verð að viðurkenna að ég er ekki með svörin við því hvað við getum gert og hvernig. Þess vegna höfum við verði í samtali um það. Við þurfum að setja vinnu af stað og erum að undirbúa að setja í gang einhvers konar stýrihóp sem fer ofan í þessi mál og skoðar það sem lítur að ofbeldis­málum barna, þar sem þau eru gerendur og þar af leiðandi þolendur líka.“

Þannig að já, ráðamenn virðast vera með puttann á púlsinum en hvort lausn þeirra á þessum vanda muni duga til verður tíminn einn að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis