Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Rúturnar teknar af númerum: „Þetta er mikið áfall“

|Gray Line
|Gray Line

Gray Line ætlar ekki að segja upp starfs­fólki. Stjórnar­formaður fyrir­tækisins er ánægður með útspil stjórn­valda. Umsvif fyrir­tækisins hafa dregist saman um 99% og hópferða­bílarnir hafa verið teknir af númerum.

Eitt stærsta ferða­þjónustu­fyrirtæki landsins, Gray Line, hefur tekið 80 prósent af rútum sínum af númerum. Þórir Garðarsson stjórnar­formaður segir í samtali við Mannlíf að umsvif félagsins séu í dag eitt prósent af því sem áður var.

Gray Line Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hjá Gray Line starfa um 120 manns. Þórir segir að ekki standi til að segja upp fólki og þar muni mikið um það útspil stjórn­valda að gefa fólki kost á greiðslu 75% launa í gegnum atvinnu­leysis­trygginga­sjóð. „Það fara allir í 25% laun hjá okkur,“ segir Þórir um stöðuna. Hann segir að þegar þriggja mánaða uppsagnar­fresti væri lokið þyrfti fyrir­tækið sennilega á sínu góða starfs­fólki að halda á nýjan leik. „Þannig að það er ekki á stefnu­skrá hjá okkur.“

„Svo förum við inn í hýðið okkar og bíðum þetta af okkur“

Þórir segir að langflestir starfs­menn Gray Line séu fastráðnir. Hann segir að fáeinar ferðir hafi ekki verið blásnar af og fyrir­tækið reyni að koma til móts við þá ferðamenn sem enn séu hér á landi. „Svo förum við inn í hýðið okkar og bíðum þetta af okkur,“ segir hann um COVID-19. Þórir er bjartsýnn á góða viðspyrnu og að ferðamanna­straumurinn aukist hratt um leið og það versta er yfir­staðið. Aðspurður segir hann að ferðamenn eigi i langflestum tilvikum rétt á endur­greiðslu á þeim ferðum sem bókaðar hafi verið. Hann segir að þeir séu almennt skilnings­ríkir vegna þeirrar stöðu sem upp sé komin.

Þórir Garð­ar­son Mynd / Aðsend

Þurfa lánsfé fyrir launum

Spurður hvernig Gray Line hyggist standa undir 25% af launa­kostnaði með aðeins 1% umsvif svarar Þórir því til að út úr því verði að finna. „Við verðum að fá fullan launa­kostnað í mars, apríl og maí. 50% af innkomunni fer í laun. Það þarf að vera einhver innkoma til að borga fyrir það.“ Hann nefnir að sennilega muni fyrir­tækið leita að lánsfé þegar línur skýrist. Hjá því verði ekki komist.

„Þetta er eitthvað sem enginn átti von á. Við erum búnir að taka númerin af 80% af flotanum okkar. Það munar um hverja krónu þegar svona gerist; tryggingar og bifreiða­gjöld.“ Samkvæmt upplýsingum á vef fyrir­tækisins á Gray Line 70 hópferða­bíla.

„Þetta er eitt­hvað sem eng­inn átti von á. Við erum búnir að taka núm­erin af 80% af flot­anum okkar. Það munar um hverja krónu þegar svona ger­ist; trygg­ingar og bif­reiða­gjöld.“

Þórir segir að greiðslu­fall erlendis, vegna ferða sem þegar hafa verið farnar, geri fyrir­tækinu stjórnvsömuleiðis erfitt fyrir. Ferða­bransinn sé ein stór keðja. „Reikningar sem voru á eindaga í febrúar hafa sumir hverjir ekki verið greiddir. En við erum ekkert að örvænta. Þetta er ákveðin keðja og þessi fyrirtæki úti eru líka að fá afbókanir. Þá kemur hökt á greiðslu­flæðið þeirra.“ Hann segist hafa skilning á þeirri stöðu. Öll fyrirtæki séu að leita leiða til að fjármagna sig.

Gray Line Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Áfall á áfall ofan

Þórir rifjar upp að í fyrra hafi ferða­þjónustu­fyrirtæki orðið fyrir miklu áfalli með falli WOW air. Þá hafi verkfalls­boðun sett strik í reikninginn. „Svo kemur þetta í ár. Þetta er mikið áfall en við vonum það besta.“ Hann segist ekki hafa kynnt sér útspil stjórn­valda til hlítar en er ánægður með það sem hann hefur séð. „Þetta úrræði stjórn­valda er algjört lykil­atriði.“

Spurður hvernig sumarið lítur út, svarar Þórir því til að staðan breytist ört þessa daganna. „Þetta er alltaf að ganga lengra og lengra inn í vertíðina.“ Hann bendir á að flestar sumar­ferðirnar séu bókaðar að vori til. Því sé skaðinn nú þegar nokkur, hvað sumarið varðar.

„Apríl og maí eru farnir. Júní er í voðalega litlum takti,“ segir Þórir þegar hann rýnir í komandi mánuði. Hann segist vonast til þess að markaðurinn taki við sér þegar það versta er yfir­staðið og bindur miklar vonir við markaðs­átakið sem stjórn­völd hafa boðað.

Þórir segir jákvætt viðhorf einkennandi hjá fyrir­tækjum í ferða­þjónustu og starfs­fólki þeirra, á þessum erfiðu tímum. „Það ganga allir í takt og saman erum við sterkari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra