Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Guðmundur Franklín gerir upp forsetakosningarnar: „Þetta er ofboðslegt skrímsli“

Guðmundur Franklín Jónsson forseta­fram­bjóðandi fjallar um kosninga­baráttuna í nýjasta pistli sínum á samfélags­miðlum. Þar fer hann hörðum orðum um ríkis­stjórnina og fjölmiðla á Íslandi og segir hvoru tveggja ala á sundrungu.

„Það kristallaðist margt í þessari kosninga­baráttu. Hvernig þetta kerfi stendur allt saman. Hann [þ.e. Guðni Th. Jóhannesson, innsk. blm.] er höfuð kerfisins og þótt hann sé ekki höfuð kerfisins þá er honum stjórnað af kerfinu. Kerfið birtist mér bara eins og einn veggur. Og það var merkilegt hvernig fjöl­miðlarnir allir stóðu með forsetanum og kerfinu. Fyrir utan tvo fjölmiðla … Mér tekst samt sem áður að ná þarna í einhver tíu prósent á einhverjum þremur mánuðum. Það er mjög gott og frábært alveg. Kannski með meiri vinnu myndi maður ná meira fylgi,“ segir Guðmundur á mynd­skeiði á samfélags­miðlum, þar sem hann fer yfir forseta­kosningarnar.

„Þeir sem stýra umræðunni eru fjöl­miðlarnir,“ heldur hann áfram. „Fjórða valdið er fjöl­miðlarnir og það kom svo greini­lega fram … hvað þeir sýndu tennurnar og hvað þeir standa fyrir … Það er í raun enginn munur á milli þeirra, þótt það sé blæbrigða­munur. Það er eins og fjór­flokkurinn. Það er í raun einn flokkur. Fjór­flokkurinn og fjórða valdið, þetta er allt það sama, nema angi hvert af öðru. Svo bætist inn í þetta spilling … og spillingin þarf náttúru­lega peninga. Og peningarnir koma úr útgerðinni. Stóru útgerðinni. Frá þessum stóru útgerða­mönnum. Frá þessum stóru félögum sem teygja anga sína út um allan heim og haga sér eins og kóngar í ríki sínu. Þeir stjórna fjór­flokknum og fjöl­miðlunum og öfugt. Þannig að þetta er algjör Hydra. Þetta er rosalegt skrímsli eða kvikindi og það er ofboðs­lega erfitt að höggva af því hausinn því það kemur nýr haus strax upp. Og það er í rauninni með marga hausa, skilurðu.“

„Fólk sem hagar sér svona er ekk­ert annað en pakk og versta teg­und af pakki.“

Vandar Guðmundur Franklín blaða­stéttinni á Íslandi ekki kveðjurnar og segist ekki hafa áttað sig áður á því „hverslags aumingjar íslenskir blaðamenn og frétta­menn eru. Þetta eru algjörir aumingjar, flestir af þeim, flestir af þeim. Auðvitað sannar undan­tekningin regluna, en flestir af þeim eru bara útsendarar og fá borgað fyrir … Þetta eru leigu­pennar. Það hefur ekkert breyst,“ segir hann og les því næst upp úr pistili sem hann hefur skrifað, undir fyrir­sögninni Fjölmiðla­samsteypurnar, fjórða valdið, eru angi af fjór­flokknum, með milli­fyrir­sögninni Óvinir lýðræðis og full­veldis? Þar veltir Guðmundur Franklín meðal annars fyrir sér hvað gerist „þegar 90 prósent af fjöl­miðlum er stýrt af fjórum fyrir­tækjum. Hvað gerist þegar þessum fjórum fyrirækjum er stýrt af sömu pólitísku hugmynda­fræðinni,“ spyr hann. „Hvað gerist þegar fréttir eru ekki lengur hlut­lausar. Hvað gerist þegar maður getur ekki lengur treyst frétta­flutningi og hlutleysi frétta­manna. Hvað gerist þegar fréttir eru ekki lengur trúð­verðugar. Hvað gerist þegar fréttir verða einfald­lega fram­lenging af stefnu stjórn­mála­flokkanna … Hvenær verða fréttir af áróðri … Af hverju nota fjölmiðla­menn alltaf sömu orðin. Er þetta skipulagt? Og þá af hverjum er þetta skipulagt. Af einhverjum á fjöl­miðlunum auðvitað, eða einhverjum svona PR-agentum. Mönnum sem segja að þetta eigi vel við.“

Guðmundur Franklín segir að þetta sama fólk og stýri fjöl­miðlum og sé í pólitík sé á móti samheldni þjóðarinnar. „Þau vilja draga fólk í dilka. Og þau vilja egna fólk upp á móti hvert öðru. Þau gera þetta á ýmsan hátt og lymsku­legan hátt. Þau s.s. vilja sundrungu. Og þetta kjaftæði um samheldni, þetta er bara kjaftæði. Þau vilja sundrungu. Á því lifa þau. Af hverju erum við búin að rífast um kvóta­kerfið í 30 ár? Af hverju erum við búin að rífast um verð­trygginguna í 30 ár? Af hverju erum við búin að rífast um hina og þessa hluti svona lengi? Það væri löngu búið að laga það ef vilji væri fyrir hendi, því get ég lofað ykkur. En þetta pakk vill ekki samstöðu eða samheldni … Fólk sem hagar sér svona er ekkert annað en pakk og versta tegund af pakki.“ Hann segir að sundruð sé þjóðin veik fyrir og engin fyrri­staða þessa fólks og áhrifum þess. Á meðan svo sé geti umrætt fólk leyft sér allt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis