Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Geðþóttaákvörðun læknis rænir von Helgu Rakelar um bætt lífsgæði: „Ég lýsi algjöru frati á LSH“

Helga Rakel Rafnsdóttir er komin með nóg.
Helga Rakel Rafns­dóttir er komin með nóg. Mynd: Skjáskot Facebook

„Í dag nota ég hjólastól og mátturinn fer verulega þverrandi í höndum, vísi­fingur hægri handar er boginn og alveg máttlaus. Ég get ekki að því gert að syrgja það að hafa ekki fengið almennilegan lækni í byrjun. Lækni sem hefði verið til í að taka samtalið með mér, skoða mögu­leikana, styðja mig í því að komast á Tofersen (eða AP101). Svona lækni sem rænir mig ekki voninni, því hún ein og sér flytur fjöll,“ svo ritar Helga Rakel Rafns­dóttir kvikmynda­gerðakona sem heyjar baráttu við taugafrumu­lömunar­sjúkdóminn MND í nýrri færslu á samfélags­miðlinum Facebook.

Lyfið Tofersen

Í færslunni rekur Helga Rakel raunir sínar er varða að fá lækningu og lyf við illvígum MND sjúkdómi sem dró pabba hennar til dauða. Lyfið sem um ræðir heitir Tofersen og gagnast þeim sem eru með SOD1 gena­gallann sem Helga Rakel er með. Lyfið getur dregið úr áhrifum sjúk­dómsins og þar með haft jákvæð áhrif á lífsgæði hennar og hreyfi­getu. Tofersen hefur verið leyft í 36 löndum í gegnum svokallað „Early Access Program“. En Land­spítali Háskóla­sjúkrahús hindrar það hérlendis.

Svekkjandi samskipti við lækninn

Undir lok ár 2021 heyrir Helga Rakel fyrst um lyfið og hefur í kjölfarið samband við tauga­lækninn sinn en varmætt með dræmum undir­tektum að hans hálfu:

„Þann 18. október 2021 skrifa ég lækninum mínum í fyrsta skipti varðandi lyf sem heitir Tofersen og gagnast þeim sem eru með SOD1 gena­gallann. Ég fæ litlar sem engar undir­tektir. Á þessum tíma­punkti eru 7 mánuðir frá því að ég áttaði mig á því að ég væri með MND og 5 mánuðir frá greiningu. Ég geng við staf. Verra er það nú ekki.“

Átta mánuðum síðar teygir Helga Rakel sig aftur til umrædds læknis og sýnir honum jákvæðar niður­stöður rann­sóknar á lyfinu. Á þessum tíma­punkti er Helga Rakel sest í hjólastól og máttur í líkama hennar dvínar hratt. Hún tekur málin í eigin hendur og fær samband við lækni í Svíþjóð sem segir henni að hún þurfi að flytja lögheimili sitt til Svíðþjóðar til að öðlast rétt á þátttöku í rannsókn lyfsins. En þar sem Helga Rakel er einstætt foreldri með lítið bakland er sá möguleiki út úr kortinu.

„13. júní 2022 hef ég aftur samband við tauga­lækninn minn enda eru þá komnar nýjar og jákvæðari niður­stöður úr rann­sóknum á Tofersen. Á þessum tíma­punkti er ég sest í hjólastól en styrkur í höndum er góður. Ég er ákveðin og segist vilja beita öllum tilteknum ráðum til þess að fá að prófa lyfið. Undir­tektir eru enn dræmar. Ég ákveð að gefast ekki upp og fer að skrifa fólki úti í heimi, meðal annars lækni í Umea í Svíþjóð sem þekkir SOD1 gena­gallann vel og er yfir rann­sókninni á Tofersen þar í landi. Hann svarar mér og segir að ég geti ekki fengið að taka þátt nema að ég flytji til Svíþjóðar. Það er auðvitað enginn möguleiki á því fyrir tveggja barna einstætt og hreyfi­hamlað foreldri með lítið bakland. Hann bendir mér líka á að ég geti reynt að komast til Kanada eða Boston til að fá Tofersen þar. Ekki er það nú einfaldara.“

Læknirinn gleymdi að senda svarið

Helgu Rakel hefur ekki bara verið mætt af mótstöðu af hendi læknisins heldur líka skeytingar­leysi. Læknirinn gleymir að senda henni svarið fyrir undanþáðubeiðninni og neitar að taka símtal vegna málsins. Helga Rakel er farin að finna fyrir verulegu máttleysi í höndunum og hver mínúta dýrmæt í barátt­unni við sjúk­dóminn.

“Í kjölfarið fer ég aftur á fund tauga­læknisins hér og fæ hann til þess að senda fyrir mig fyrir­spurn til Biogen varðandi það hvort ég geti fengið undanþágu upp á að fá lyfið í Svíþjóð án þess að hafa þar lögheimili. Svarið er neikvætt en berst mér ekki fyrr en tveimur mánuðum seinna tauga­læknirinn minn hreinlega gleymdi að áfram­senda það á mig. Í svarinu var lækninum mínum boðið upp á símtal til að ræða málin frekar. Hann þáði ekki boðið.

26. september 2022 skrifa ég lækninum mínum aftur og segi honum að ég geti ekki sætt mig við þessa niður­stöðu og að ég vilji halda áfram að reyna að komast á lyfið. Ég fæ ekkert svar í þrjá mánuði þó ég skrifi honum ítrekað. Á þessum tíma­punkti fer máttur í höndum óðum þverrandi. Ég hef jafnframt samband við stjórn MND félagsins varðandi það að þrýsta á þessi mál.“

Orðin of sein

Rétt rúmum mánuði síðar fréttir Helga Rakel af öðrum tauga­lækni innan raða Land­spítala sem er að aðstoða skjólstæðing sinn við að komast á lyfið Tofersen. Niður­staðan í því máli var umsókn að þátttöku í enn betra lyfi, AP101, sem þó var komið skemur á veg í rann­sóknum, en sjúkdómur Helgu Rakelar var kominn of langt á veg til að hún hlyti þátttöku í:

„Um miðjan nóvember kemst ég að því í gegnum MND félagið það eru einn eða tveir læknar á tauga­deild sem eru áhuga­samir um Tofersen. Ég kemst líka að því að á meðan ég var ein að slást við minn lækni um að fá aðstoð þá var annar tauga­læknir á sama gangi búin að vera að aðstoða sinn sjúkling við að komast á Tofersen. Aðstoðin fólst meðal annars í því að skoða málið frá öllum hliðum og taka Skype fundi með helstu rann­sakendum. Niður­staðan af þeirri vinnu varð sú að sá skjólstæðingur ákvað að taka frekar þátt í annarri rannsókn á svipuðu en mögulegra betra lyfi, AP101 sem þó er komin skemur á veg en Tofersen. Á þessum tíma­punkti er ég búin að vera með sjúk­dóminn of lengi til þess að geta tekið þátt í rannsókn á AP101 (Ég hefði verið gjaldgeng nokkrum mánuðum áður).“

Endanleg neitun taugalæknis

Læknirinn neitar Helgu Rakel um frekari aðstoð við að komast á lyfið. Hann vísar í úreltar rann­sóknir og þegar honum er bent á stað­reyndir málsins viðurkennir hann villu sína en heldur sig samt sem áður við ákvörðun sína:

„Í lok nóvember fæ ég endanlega neitun frá mínum tauga­lækni. Hann ætlar ekki að aðstoða mig við að fá Tofersen. Hann rökstyður mál sitt með úreltum niður­stöðum sem eiga ekki lengur við á þessum tíma­punkti. Ég bendi honum á það að greinin sem hann vitnar til sé skrifuð um mitt ár 2021 en hálfu ári seinna komu allt aðrar og betri niður­stöður. Hann viðurkennir það en stendur við sína ákvörðun.“

Annar læknir

Helga Rakel ákveður í kjölfarið að skipta um lækni og hefur engra eftirsjá af ákvörðun sinni. Nýi læknirinn gengur beint í verkið en þá setur Land­spítalann stopp­arann á:

„Sá læknir brettir strax upp ermarnar og reynir að koma mér að í svokölluðu Early Access prógrami hjá Biogen. Því fylgdi smá skrifræði en allt gekk þó upp, nema eitt: LSH hefur nú svarað og kemur í veg fyrir að ég geti fengið aðgang að lyfinu. Þar verður ekki veitt leyfi fyrir Early access að Tofersen fyrr en Evrópska Lyfja­eftirlitið hefur veit blessun sína. Það gæti orðið í lok apríl en það gæti líka orðið miklu seinna.“

Lýsir frati á Landspítalann

Frásögn Helgu Rakelar er einungis brota brot af heildar­sögu og reynslu hennar á málinu:

„Ég lýsi algjöru frati á LSH þegar kemur að því að sinna þessum málum. MND sjúklingum er dreift á fjölda tauga­lækna og fólk með SOD1 gena­gallann er hvert í sínu horni að reyna að bjarga eigin skinni. Fljúga til Boston ef það á pening eða flytja til Svíþjóðar af því að það getur það.

Það er mikið að gerast í rann­sóknum á MND um allan heim, sérstak­lega á SOD1 gena­gallanum. En guð forði LSH frá “veseninu” sem gæti fylgt því að taka þátt í slíku.“

„Ef þú þekkir mann­eskju með SOD1 gena­gall­ann, segðu henni þá að forða sér héðan hið fyrsta“

Helga Rakel bendir fólki með greiningu á sjúk­dómnum eða aðstand­endum að hafa samband við sig og hún muni miðla öllum þeim upplýsingum sem hún hefur:

„Ekki gera læknarnir á tauga­deildinni það. Jú nema kannski einn. En hann ræður engu þannig að það skiptir ekki máli.“

„Að lokum vil ég taka það fram að mín kynni af starfs­fólki MND teymisins á LSH hafa verið mjög góð. Það er hins vegar enginn læknir í þessu teymi. Ég vil einnig taka það fram að kostnaðurinn fyrir LSH á þessu stigi er enginn og að ég er þegar búin að skrifa undir upplýst samþykki fyrir þátttöku,“ ritar Helga Rakel að endingu.

Hér að neðan má lesa færslu Helgu Rakelar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim