Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Gerir stólpagrín að íslenskum veruleika: „Fólk þorir ekki úr húsi af ótta við að lenda í slysi“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Kristinn Hrafnsson gerir stólpa­grín að íslenskum veruleika og ríkis­stjórninni í nýrri Facebook-færslu.

Ritstjórinn hvíthærði er þekktur fyrir sinn beitta húmor og háðsádeilur og í nýjustu færslu sinni á Facebook er engin undan­tekning þar á. Í henni gerir Kristinn stólpa­grín að ríkis­stjórninni og ástandinu á bráða­móttöku Lands­spítalans í bland við fleira í íslensku samfélagi sem grát­broslegt er. Færslan er hér í heild sinni:

„Ríkis­stjórnin hefur hækkað viðbúnaðar­stig vegna viðvarandi ógnar sem hefur skapast með álagi á bráða­móttöku Land­spítalans. Ótti hefur gripið um sig í samfélaginu vegna þeirrar hættu að geta ekki treyst á viðbragðssþjónustu heilbrigðis­kerfisins. Fólk þorir ekki úr húsi af ótta við að lenda í slysi í hálkunni og bíða klukku­stundum saman eftir aðhlynningu.

Þjóðar­öryggisráð Íslands (ÞÖRÍ) hefur verið kallað til fundar í bönkernum á Kefla­víkur­flugvelli til að fjalla um bráða­vanda bráða­þjónustunnar en hefur ekki komist til þangað til fundar vegna ófærðar á Reykja­nesbraut. Þess í stað hefur ÞÖRÍ tekið boði Samherja um að funda í höfuð­stöðvum fyrir­tækisins við Borgartún gegn beiðni fyrirtæksins um að Brynjar Níelsson og Páll Vilhjálmsson klippi til Skaupið enda fyndnustu menn Íslands.Prófessor í stjórnmála­fræði við Háskólann á Hellu hefur lýst því yfir að þessi vandi ógni stöðug­leika allra NATO ríkja og vill að Varnar­samningurinn við Banda­ríkin sé virkjaður til að leysa málið. „Sem stendur er bráða­móttakan veikasti hlekkurinn í vörnum Vestrænna lýðræðis­ríkja“, segir prófessorinn og vill biðla til vina­þjóðarinnar í vestri að senda hingað liðsafla lækna og hjúkrunar­fólks um leið og búið er að grafa það úr fönn í Böffaló í Banda­ríkjunum.Á meðan býður Ríkis­lögreglu­stjórinn upp á sérstakan fjölskyldu­afslátt af fjöl­skotavopnum í tilefni áramótanna og leggur um leið til lausn á fráflæðis­vanda Bráða­móttökunnar með langtíma­vistunum á Hólms­heiði.Fréttin er í vinnslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna