Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir Guðmund staðnaðan í starfi: „Verður að þróa þig með leiknum og það hefur Guðmundur ekki gert“

Guðmundur Þórður Guðmundsson.
Guð­mundur Þórður Guð­munds­son.

Arnar Daði Arnarsson, handbolta­sérfræðingur  telur að HSÍ hafi séð sig knúið til þess að hætta samstarfi sínu við landsliðs­þjálfarann Guðmund Þ. Guðmundsson vegna þeirrar vondu stöðu sem hann var kominn í með liðið.

Arnar Daði gefur lítið sem ekkert fyrir þá yfir­lýsingu að ákvörðunin hafi verið sameiginleg.

Í vikunni greindi HSÍ frá því að Guðmundur Þ. Guðmundsson væri ekki lengur þjálfari karla­lands­liðsins; að báðir aðilar hafi komist að samkomu­lagi um að hætta samstarfinu:

Arnar Daði Arn­ars­son.

„Ég held að þeir hafi einfald­lega verið tilneyddir til að gera þetta á þessum tíma­punkti. Ég hef tilfinningu fyrir því að bæði stjórn HSÍ og landsliðs­nefnd hafi ekki ætlað að láta Guðmund fara eftir HM í janúar. Eftir undir­búnings­vinnu held ég að þegar uppi var staðið hafi stjórn HSÍ komist að þeirri niður­stöðu að það væri ekkert annað í stöðunni en að láta Guðmund fara, eftir samtöl við leikmenn og aðra hafi þau áttað sig á því að staðan innan lands­liðsins hafi verið orðin verri en þau og margir aðrir héldu,“ sagði Arnar Daði Arnarsson í samtali við Frétta­blaðið.

Hann er klár á því að ákvörðunin hafi ekki verið sameiginleg:

„Við þekkjum það úr íþróttunum að það er oft gefið út þegar svona á sér stað. Það var auðvitað engan veginn þannig. Guðmundur var ekki að stíga frá borði sjálf­viljugur.“

Arnar Daði segir stöðu Guðmundar hafa verið slæma:

„Svo segir sagan og þetta er ekki bara einhver ein saga út í bæ. Þetta hefur verið viðloðandi lands­liðið lengi og nú var hún orðin ansi hávær, bæði á meðan HM stóð og svo strax eftir að varð ljóst að Ísland kæmist ekki í 8-liða úrslit.

Manni finnst það alltaf vond staða fyrir þjálfara þegar klefinn er farinn að leka, lands­liðsmenn farnir að heyra í vinum, vanda­mönnum og jafnvel fjölmiðla­mönnum til að benda þeim á veikleika í fari Guðmundar. Þetta er ekki eitthvað sem gerðist núna í janúar. Það hefur ekki myndast nógu mikið traust milli hans og leikmanna. Gengi liðsins hefur verið eftir því og þá missa leikmenn trúna á verkefnið. Eftir því sem hefur liðið á þetta samstarf hefur Guðmundur farið út á hálan ís með því að kasta leik­mönnum undir rútuna í stað þess að taka ábyrgð. Ef fólk horfir á viðtöl hans eftir leiki síðustu ár hefur hann ekki tekið mikla ábyrgð á slæmu gengi liðsins.“

Þá gagnrýnir Arnar Daði Guðmund fyrir að nota ekki fleiri leikmenn; bendir á leik Íslands gegn Ungverjum á HM í janúar, en sá leikur tapaðist, og reyndist það afdrifa­ríkt:

„Þegar uppi er staðið er það þessi leikur á móti Ungverja­landi sem hefur mest áhrif á hvernig gekk í janúar. Þar segir tölfræðin að Guðmundur hafi verið að nota 9-10 leikmenn á meðan aðrir þjálfarar nota 14-16 leikmenn. Hand­boltinn hefur verið að breytast á síðustu árum og þeir sem hafa þorað að gagnrýna Guðmund, einn vinsælasta mann landsins, benda á þessar tölur. Þetta er Guðmundur Þórður í hnotskurn. Hann treystir á sína leikmenn. Það er ákveðin tegund af því hvernig þú þjálfar lið en þú verður að þróa þig með leiknum og það hefur Guðmundur ekki gert. Hann er íhalds­samur. Hann er enn að tala um hvað var gott 2008 og lifir svolítið á fornri frægð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim