Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rannsókn lokið á Blönduós-málinu: „Náði tökum á árásarmanninum er hann var að hlaða vopnið“

Héraðsaksóknari fellur frá ákæu sakborninga ógnaratburðs er átti sér stað á Blönduósi í ágúst síðastliðnum.
Hér­að­sak­sókn­ari fellur frá ákæu sak­born­inga ógn­ar­at­burðs er átti sér stað á Blöndu­ósi í ágúst síð­ast­liðnum.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Norður­landi eystra segir að „rannsókn á skotárás á Blönduósi þann 21.08.2022 er lokið.

Rann­sóknin hefur leitt í ljós að árásar­maðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásar­þola á Blönduósi og gekk um vopnaður afsagaðri hagla­byssu, með sjö haglaskot meðferðis.“

Lögreglan segir að árásar­maðurinn „sá að gestir voru á heimilinu, fór út úr húsinu og hélt húsráð­andi á eftir honum. Utandyra kom til orða­skipta og átaka sem enduðu með því að árásar­maðurinn skaut húsráð­anda í kvið og særði alvarlega.

Árásar­maðurinn fór þá aftur inn í húsið og skaut eiginkonu húsráð­anda í höfuð þar sem hún stóð í stofu og lést hún samstundis.“

Kemur fram að „rannsókn hefur leitt í ljós að húsráð­andi náði tökum á árásar­manninum þar sem hann var að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráð­anda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásar­manninum. Kom til mikilla átaka á milli sonarins og árásar­mannsins en í ljós kom að árásar­maðurinn var með veiðihníf í vasa.

Átökin enduðu á þann veg að árásar­maðurinn lét lífið.“

Einnig segir í tilkynningunni að „réttar­krufning hefur leitt í ljós að dánar­orsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst. Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðar­línu og óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna byssu­manns inni í húsinu kl. 05.27.

Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar.

Lögregla var komin á vettvang kl. 05.53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðar­beiðni.“

Þá er sagtfrá því að „rannsókn hefur ekki leitt í ljós að eitthvað eitt ákveðið atvik hafi orðið til þess að árásar­maðurinn mætti vopnaður á heimili árásar­þola. Hann var einn að verki, allsgáður og hafði átt vinsamleg og virk samskipti við árásar­þola fyrir árásina. Tilkynnt var um ferðir árásar­mannsins við heimili árásar­þola og nágrenni þann 27.07.2022 þar sem hann hafði verið með hagla­byssu í fórum sínum. Árásar­maðurinn afhenti lögreglu þau skotvopn sem voru skráð á hann og leitaði aðstoðar heilbrigðis­kerfis.

Rannsókn hefur leitt í ljós að hann var kominn aftur á Blönduós 12.08.2022.“

Segir lögreglan að „við rannsókn á skot­árásinni kom í ljós að árásar­maðurinn hafði tvisvar sinnum verið í garði við hús árásar­þola í júlí og tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn.

Rann­sóknin á skot­vopninu hefur leitt í ljós að hagla­byssan var skráð í eigu fyrir­tækis sem seldi skotvopn og varð gjald­þrota árið 2008. Þrjár hagla­byssur voru enn skráðar á fyrir­tækið; byssan sem árásar­maðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og þriðja byssan Maveric M-88 hagla­byssa sem er ófundin.

Málið var afhent embætti héraðs­saksóknara til ákvörðunar í dag.

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra veitir ekki frekari upplýsingar um málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim