Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

MYNDIR – Hinir margstungnu frá Bankastræti Club losna af spítala: „Bræður að eilífu“

„Hollustan skiptir öllu máli,“ segja vinirnir Lúkas Geir og John Sebastian sem voru marg­stungnir í alvarlegri hnífaárás á skemmtistaðnum Banka­stræti Club fyrir helgi. Þeir birtu í dag af sér myndir á samfélags­miðlum þar sem þeir voru greini­lega útskrifaðir af sjúkra­húsi eftir árásina. Undir eina myndina rita þeir:

„Bræður að eilífu.“
Lúkas og John í lyft­unni á spít­al­anum, á heim­leið eftir sjúkra­leg­una.

Sjá einnig: Marg­stunginn á Banka­stræti Club og sendir kveðju frá sjúkra­beði: „Nokkrar stungur, ekkert stress!“

„Þegar ég stend upp þá sé ég bara að það er einhver bútur út úr bakinu mínu – bara hangandi út og þá fattaði ég að ég hefði verið stunginn,“ sagði Lúkas á meðan þeir félagarnir lágu enn inni á sjúkra­húsi með áverka eftir hnífa­árásina. Vinur þeirra, ungur drengur sem kallar sig Luffro, var líka stunginn. Þrátt fyrir að 27 árásar­menn hafi ráðist að honum með hnífum virðist hann hvergi banginn í kveðju sem hann sendir frá sjúkra­beðinu og birti á samfélags­miðlum:

„27 að ráð­ast á 3 og við erum enn labbandi. Nokkrar stungur, ekk­ert stress.“

Sá orðrómur gengur nú fjöllunum hærra að almenningur ætti að halda sig heima um næstu helgi og forðast djamm í miðbænum. Téður orðrómur snýst um það að um helgina megi búast við hefnar­aðgerðum vegna hnífa­árásarinnar á Banka­stræti Club. Í skila­boðum sem sem dreifast nú þvers og kruss um internetið eru þrír staðir orðaðir við árás: Auto, Banka­stræti Club og Lúx.

Luffro blæs hins vegar á þessar sögu­sagnir í skeyti á samfélags­miðlum:

Luffro segir sögu­sagnir um hópárás í mið­borg­inni um helg­ina vera ósannar.

Sjá einnig: Jón var ásamt hnífa­hernum á Banka­stræti Club – Fjölskyldu­meðlimir hafa flúið land vegna árása

Dyra­vörðurinn Jón Pétur Vágseið er einn þeirra sem fór ásamt  fylkingu 27 hettu­klæddra hnífa­manna inn á skemmtistaðinn Banka­stræti Club aðfarar­nótt föstu­dagsins síðastliðinn. Þrír menn slösuðust alvarlega í hnífa­árásinni eftir að hafa verið marg­stungnir. Engar heimildir eru fyrir því að Jón hafi beitt vopni í átökunum. Hann var samkvæmt heimildum Mannlífs, ekki inni í því herbergi þar sem árásirnar áttu sér stað.

Eftir því sem Mannlíf kemst næst er Jón Pétur um þrítugt og rekur fyrirtæki sem býður dyra­vörslu á skemmtistöðum, á viðburðum og hátíðum se, og í einka­samkvæmum. Hann er nokkuð eldri en flestir hnífa­mannanna sem með honum voru í för þetta kvöld. Engar heimildir eru þó fyrir því að Jón hafi beitt vopni þetta kvöld.

21 hefur verið hand­tekinn í tengslum við málið, tólf sitja í gæslu­varðhaldi en lögregla á enn eftir að taka ákvörðum um hvort farið verði fram á gæslu­varðhald yfir þremur. Hinum hefur verið sleppt úr haldi og fimm til sex manna er enn leitað vegna árásarinnar. Þá hafa fjöl­skyldu­með­limir hinna grunuðu árásar­mannanna sætt stöðugum hótunum og á­rásum síðan og ein­hverjir hafa flúið út á land vegna á­standsins.

Sjá einnig: Birgitta Líf opnar sig um hnífa­árásina í nótt: „Þökkum Guði að ekki fór verr“

„Svo bara kemur hópur af grímu­klæddum mönnum bara rushar á okkur. Við héldum að þetta væru svona fimmtán þangað til lögreglan bara sagði við okkur: Svo kemur í ljós að þeir voru 27. Ég held þeir séu bara jealous því við erum með mikla athygli á okkur,“ segir Lúkas og bætir við:

„Ég get sagt þér það að þessir drengir eru búnir að vera með stríð við okkur í svolítið góðan tíma. Því þeir vilja vera mennirnir. Þeir þurfa að vera 27 saman til að ná okkur þremur. Þetta eru bara skíthælar. Við vorum bara á latino-kvöldi.“

Hinir særðu þremenningar eru góðvinir Gabríel Douane Boama, sem strauk úr Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrr á árinu. Afplánar Gabríel nú dóminn í fangelsinu á Hólms­heiði en var hann fyrr á árinu dæmdur í átján mánaða fangelsi. Dómurinn var vegna endur­tekna líkams­árása, þjófnaðar, fíkniefna­lagabrots og brot gegn vald­stjórninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning