Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jón var ásamt hnífahernum á Bankastræti Club – Fjölskyldumeðlimir hafa flúið land vegna árása

Jón var ásamt hnífahernum á Bankastræti Club – Fjölskyldumeðlimir hafa flúið land vegna árása

Dyra­vörð­ur­inn Jón Pétur Vágseið er einn þeirra sem fór ásamt  fylk­ingu 27 hettu­klæddra hnífa­manna inn á skemmti­stað­inn Banka­stræti Club aðfar­arnótt föstu­dags­ins síð­ast­lið­inn. Þrír menn slös­uð­ust alvar­lega í hnífa­árásinni eftir að hafa verið marg­stungnir. Engar heim­ildir eru fyrir því að Jón hafi beitt vopni í átök­unum. Hann var sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, ekki inni í því her­bergi þar sem árás­irnar áttu sér stað.

Sjá einnig: Þessir þrír voru stungnir á Banka­stræti Club – „Þetta eru bara skít­hælar“

Líkt og Mannlíf greindi frá réð­ist 27 manna hnífa­her, sem huldi höfuð sín, á þrjá menn um tví­tugt á Banka­stræti Club. Þre­menn­ing­arnir særð­ust alvar­lega í hnífa­árásinni en eru ekki taldir í lífs­hættu. Hótanir höfðu gengi á milli mann­anna á sam­fé­lags­miðlum fyrir árás­ina.

Eftir því sem Mannlíf kemst næst er Jón Pétur um þrí­tugt og rekur fyr­ir­tæki sem býður dyra­vörslu á skemmti­stöðum, á við­burðum og hátíðum se, og í einka­sam­kvæmum. Hann er nokkuð eldri en flestir hnífa­mann­anna sem með honum voru í för þetta kvöld. Engar heim­ildir eru þó fyrir því að Jón hafi beitt vopni þetta kvöld.

21 hefur verið hand­tek­inn í tengslum við málið, tólf sitja í gæslu­varð­haldi en lög­regla á enn eftir að taka ákvörðum um hvort farið verði fram á gæslu­varð­hald yfir þremur. Hinum hefur verið sleppt úr haldi og fimm til sex manna er enn leitað vegna árás­ar­innar. Þá hafa fjöl­skyldu­með­limir hinna grun­uðu árás­armann­anna sætt stöð­ugum hót­unum og á­rásum síðan og ein­hverjir hafa flúið út á land vegna á­stands­ins.

Sjá einnig: Marg­stung­inn á Banka­stræti Club og sendir kveðju frá sjúkra­beði: „Nokkrar stungur, ekk­ert stress!“

„Þegar ég stend upp þá sé ég bara að það er ein­hver bútur út úr bak­inu mínu – bara hang­andi út og þá fatt­aði ég að ég hefði verið stung­inn,“ segir Lúkas Geir, einn þeirra þriggja gesta sem stungnir voru á skemmti­staðnum Banka­stræti Club fyrir helgi.

Lúkas og félagi hans, John Sebast­ian eru enn á sjúkra­húsi vegna áverka sem þeir hluti í árásinni. Vinur þeirra, ungur drengur sem kallar sig Luffro, var líka stung­inn. Þrátt fyrir að 27 árás­ar­menn hafi ráð­ist að honum með hnífum virð­ist hann hvergi bang­inn í kveðju sem hann sendir frá sjúkra­beð­inu og birti á sam­fé­lags­miðlum:

„27 að ráð­ast á 3 og við erum enn labbandi. Nokkrar stungur, ekk­ert stress.“

„Svo bara kemur hópur af grímu­klæddum mönnum bara rushar á okkur. Við héldum að þetta væru svona fimmtán þangað til lög­reglan bara sagði við okkur: Svo kemur í ljós að þeir voru 27. Ég held þeir séu bara jealous því við erum með mikla athygli á okkur,“ segir Lúkas og bætir við:

Sjá einnig: Birgitta Líf opnar sig um hnífa­árás­ina í nótt: „Þökkum Guði að ekki fór verr“

„Ég get sagt þér það að þessir drengir eru búnir að vera með stríð við okkur í svo­lítið góðan tíma. Því þeir vilja vera menn­irnir. Þeir þurfa að vera 27 saman til að ná okkur þremur. Þetta eru bara skít­hælar. Við vorum bara á latino-kvöldi.“

Hinir særðu eru góð­vinir Gabríel Douane Boama, sem strauk úr Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrr á árinu. Afplánar Gabríel nú dóm­inn í fang­els­inu á Hólms­heiði en var hann fyrr á árinu dæmdur í átján mán­aða fang­elsi. Dómurinn var vegna end­ur­tekna lík­ams­árása, þjófn­aðar, fíkni­efna­laga­brots og brot gegn vald­stjórn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina