Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Umhverfisvandinn og loftslagsbreytingar ógna samfélagi og lífsskilyrðum komandi kynslóða“

Hjalti Hrafn Hafþórsson heim­spekingur er ekkert að fara í kringum hlutina og segir að „umhverfis­vandinn, loftslags­breytingar og aðrar gagn­verkandi umhverfis­krísur, ógna nú öllu mannlegu samfélagi og lífs­skilyrðum komandi kynslóða á jörðinni.“

Og bætir við:

„Þetta gæti virst vera yfir­drifin stað­hæfing en hún er því miður sá veruleiki sem við stöndum frammi fyrir og er byggð á traustum vísindum.

Loftslags­breytingar munu í náinni framtíð leiða til gífurlegra hamfara. Ef fram fer sem horfir og ekki er gripið inn í uppsöfnun gróðurhúsa­lofttegunda í andrúms­loftinu á afgerandi hátt þá mun hlýna meira á jörðinni á nokkrum áratugum en gerist að öllu jöfnu á mörgum árþúsundum þegar jörðin kemur út úr ísaldar­skeiðum,“ og að „það mun leiða til víðtækrar eyði­leggingar vistkerfa, einkum vegna þurrka sem munu gera gróðursæl svæði að eyði­mörkum, og bráðununar jökla sem leiðir til uppþornunar árkerfa og hækkunar á yfirborði sjávar.

Hjalti færir í tal að „lifandi vistkerfi og efnislegar hringrásir í nátt­úrunni mynda net gagn­verkandi tengsla og þegar margir þræðir slitna byrjar netið að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Að hans mati er umhverfis­vandinn margþættur og orsakir og áhrif mismun­andi vandamála skarast:

„Þó loftslags­breytingar séu mest aðkall­andi vanda­málið þá er ekki rétt að draga úr öðrum umhverfis­vandamálum á borð við notkun eiturefna, jarðvegs­eyðingu, eyðingu vistkerfa, tap á líffræði­legum fjöl­breytileika, efna­mengun, og svo framvegis. Mannkynið er í ósjálfbærum farvegi á mörgum sviðum og stefnir í að raska stórfeng­lega sumum af mikil­vægustu hringrásar­ferlum nátt­úrunnar.“

Hann nefnir að „við höfum gengið svo nærri lífríki plánetunnar að tap á líffræði­legum fjöl­breytileika og tíðni útrýminga er sambærileg við stærstu útrýmingar­skeið jarð­sögunnar.“

Hjalti segir drif­kraftinn á bak við umhverfis­vandann sé það efnahags­lega ferli sem kallað er kapítalismi. Og það er ekki hægt að takast á við loftslags­breytingar og hinn víðari umhverfis­vanda innan kapítalismans:

„Kapítalisminn er rót vandans og getur ekki verið hluti af lausninni án þess að brjóta gegn sínum eigin innri lögmálum. Hvert það samfélag sem vill takast á við umhverfis­vandann getur ekki gert það án þess að takast á við kapítalismann á sama tíma. Samtök og einstaklingar sem berjast fyrir nátt­úrunni geta ekki náð markmiðum sínum án þess að taka stefnuna á nýja samfélags­gerð handan kapítalismans. Það er ekki lengur aðeins réttlætismál fyrir vinnandi stéttir að bylta auðvaldinu heldur er það bókstaf­lega lífs­spursmál fyrir jörðina, náttúru hennar, og allar komandi kynslóðir um ókomna tíð.“

Hann ljær máls á því að „þessar stað­hæfingar ganga líklega þvert á það sem almennt heyrist um loftslags- og umhverfismál og lausnir á þeim. Þær lausnir sem lagðar eru til af stjórn­völdum; stórum umhverfis­verndar­samtökum og fyrir­tækjum og þær lausnir sem rætt er um í fjöl­miðlum lúta nánast eingöngu að því að gera kapítalismann sjálfbærann eða grænan og umskiptin eiga jafnvel að stuðla að grænum hagvexti og hagsæld innan hins kapítalíska kerfis.“

Og bætir við:

„Með öðrum orðum þá hallast umræða um loftlags- og umhverfismál nánast eingöngu að lausnum sem ögra ekki efnahags­legum, pólitískum og menningar­legum valda­tengslum kapítalísks samfélags þrátt fyrir að slíkar lausnir geti ekki tekið á undir­liggjandi drif­kröftum eyði­leggingarinnar.“

Einnig að „kapítalisminn hefur í margar aldir verið fordæmdur og dásamaður sem drif­krafturinn bak við bæði auðlegð okkar og arðrán. En þó liggur ekki alltaf ljóst fyrir hvað átt er við með hugtakinu kapítalismi. Orðið er ekki notað sem nákvæmt hugtak í daglegu tali. Þannig getur það átt við efnahags­kerfi í mjög víðum skilningi – líkt og gert er hér að ofan – frjálsa markaði, pólitísk kerfi eða hugmynda­fræði, ákveðin stétta og valda­tengsl, en einnig ákveðna menningu og gildi. Í þeim tilgangi að útskýra undir­liggjandi drif­krafta kapítalismans getur verið gagnlegt að skilgreina hann nákvæmar.“

Í ofur einfaldaðri mynd má segja að kapítalismi sé ákveðið samband peninga og fram­leiðslu þar sem mögulegt er að ávaxta peninga með því að fjárfesta þeim; umbreyta þeim í kapítal eða auðmagn, í einhverju efnahags­legu ferli, til dæmis fram­leiðslu einhverrar vöru eða þjónustu:

„Það hefur engin ástæðu til þess að setja peninga inn í slíkt efnahagslegt ferli nema sú manneskja búist við að fá meiri pening til baka á endanum. Því verða nauðsyn­lega að vera til meiri peningar í hagkerfinu á morgun en eru til í dag. Hagkerfið verður að vaxa ef kapítalisminn á að ganga upp.“

Hjalti segir þetta vera ástæðuna fyrir því „að um allan heim hafa stjórn­málamenn hagvöxt á heilanum. Vöxtur í kapítalísku hagkerfi er óhjá­kvæmilegur, hann er ekki aukaverkun eða eitthvað sem hægt er að breyta eða takmarka með reglu­verki. Ef hagkerfið er ekki að vaxa verður kreppa, sem þýðir að kapítal­istarnir fá ekki arð af fjár­festingum sínum og draga peningana sína til baka eða flytja þá annað með tilheyrandi gjald­þrotum, samdrætti og atvinnu­leysi í viðkomandi hagkerfi.“

Og nefnir að í samhengi við umhverfismál er „mikilvægt að skilja að kapítalískt hagkerfi vex ekki jafnt og þétt, heldur í veldis­vexti. Það þýðir að eftir því sem á líður vex kerfið hraðar og hraðar. Kerfið sem slíkt tvöfaldar sig reglulega. Í hvert skipti sem stjórn­málamaður fagnar 3,5% hagvexti seinasta árs er hann í raun að segja að eftir 20 ár verði hagkerfið helminginn stærra að því gefnu að það takist að viðhalda slíkum hagvexti. Eftir 40 ár verður hagkerfið svo fjórum sinnum stærra. Eftir 60 ár verður það átta sinnum stærra. Hver sá stjórn­málamaður eða kapítal­isti sem fagnar 3,5% hagvexti er í raun að segja að sextán sinnum stærra hagkerfi með samsvar­andi aukningu í mengun, ágangi á auðlindir og eyðingu vistkerfa sé æskileg framtíð árið 2100.“

Einnig bendir hann á að það sé „óhjákvæmilegt að hagkerfi heimsins rekist á náttúruleg takmörk fyrir vexti. Fyrsta og augljósasta takmörkun sem við höfum nú þegar keyrt í gegnum er geta lofts­lagsins til þess að taka við útblæstri gróðurhúsa­lofttegunda. Því miður eru áhrifin af því lengi að koma fram og á meðan virðist það vera markmið flestra þjóðríkja heims að keyra sitt kapítalíska hagkerfi áfram á fullum krafti sem mun gera afleiðingarnar þeim mun verri.

Fyrir utan stöðugan vöxt hefur kapítalískt kerfi margar aðrar aukaverkanir. Ein er samþjöppun auðs í heiminum til þeirra sem eiga peninga og fjárfesta þeim; þeir ríku verðar ríkari. Í ferlinu er innbyggður stig­vaxandi efnahags­legur ójöfnuður og stétta­skipting. Einnig er mikil­vægur munur á valdi og stöðu þeirra sem leggja auðmagn inn í ferlið og þeirra sem vinna í fram­leiðslu hluta ferlisins; það er að segja stétt kapítal­ista og stétt verka­manna. Mikil­vægar ákvarðanir um lífs­viðurværi og framtíð fólks eru reglulega teknar í krafti og í þágu auðmagnsins án nokkurrar lýðræðislegrar aðkomu þeirra sem ákvörðunin hefur bein áhrif á. Reyndar eru margar af mikil­vægustu ákvörðunum um framtíð plánetunnar og lífs­viðurværi komandi kynslóða teknar af stjórnum fyrir­tækja án nokkurs gagnsæis eða lýðræðislegrar aðkomu almennings.“

Hjalti nefnir að „ef drif­krafturinn í hagkerfinu heilt á litið er fjár­festing peninga, frekar en til dæmis það að mæta grunn­þörfum fólks, þá má kalla kerfið sem slíkt kapítalískt. Í slíku kerfi er tilhneiging til þess að hugsa efnahagslegar ákvarðanir út frá því sem við getum kallað innri rökvísi kapítalismans; það er að fjár­festingar skili arði í náinni framtíð. Stjórnir fyrir­tækja geta þannig tekið ýmsar ákvarðanir um hvernig fram­leiðslu, orku­notkun, auðlinda­námi og losun mengunar er háttað en aðeins svo lengi sem rök eru fyrir því að það skili arði í náinni framtíð. Ef slíkar ákvarðanir fara að taka mið af því hvort mögulegt verði að lifa á jörðinni eftir 200 ár og taka skynsamlegar ákvarðanir út frá sjónar­miðum sjálfbærni sem koma niður á skammtíma gróða þá fara hlutabréf að falla í verði og kapítal­istar færa peningana sína annað. Kapítalískt kerfi mun alltaf hafa stefnu afmarkaða af innri rökvísi kerfisins og hagsmunum auðmagnsins. Það mun alltaf stefna að skammtíma gróða og auknum hagvexti og með því auknum ágangi á náttúruna.“

Þrátt fyrir þetta eru nánast einu lausnirnar sem haldið er að „okkur“ í loftslags- og umhverfis­málum settar fram innan kapítalismans. Og á heildina litið virðist hinn svokallaði græni kapítalismi grundvallast á þeirri tálsýn að kapítalisminn geti frátengt sig nátt­úrunni og skapað vöxt án þess að ofnýta auðlindir eða gefa frá sér mengun ef ríkis­stjórnir innleiði regluverk og hvata­kerfi þar að lútandi:

„En svo lengi sem innri rökvísi kapítalismans er leiðar­ljós allra mikil­vægra ákvarðana er drif­krafturinn alltaf í átt að því að auka arðbærni frekar en sjálfbærni. Hvata­kerfi virka aðeins að því marki að hvatarnir auki arðbærni, annars eru þeir hunsaðir. Ef slíkir hvatar eiga að virka verða þeir á endanum að greiðslu á almannafé inn í kapítalíska hagkerfið til þess eins að viðhalda auðsöfnun hinnar kapítalísku stéttar.“

Hjalti vekur athygli á því að „regluverk aftur á móti tekur því sem gefnu að ríkið geti sett reglur sem hamla þess eigin hagkerfi og farið eftir þeim reglum. Hið vestræna þjóðríki, þó það sé yfirborðs­lega lýðræðislegt, er heltekið af hagsmunum kapítalismans og stétta­hagsmunir auðvaldsins hafa mun meira vægi en atkvæði almennings sem að öllu jöfnu fær að velja á milli flokka með lítillega mismun­andi kapítal­ískar áherslur á nokkurra ára fresti,“ og líka að ef „ríkið innleiðir reglur sem hefta hagvöxt til þess að vernda náttúruna leiðir það til kreppu, atvinnu­leysis og flótta auðmagns frá landinu þegar kapítal­istar ákveða að fjárfesta annarstaðar.

Vegna þess hvernig valdið liggur hjá auðvalds­stéttinni og vegna stöðugt yfir­vofandi kreppu verður ríkis­stjórn í vestrænu lýðræðis­ríki að taka ákvarðanir út frá innri rökvísi kapítalismans og hefur mjög takmarkað svigrúm til að setja regluverk eða skatta. Í flestum tilfellum mun ríkið vernda skammtíma gróða kapítal­ista og áfram­haldandi hagvöxt frekar en náttúruna og framtíðar­velferð sinna eigin borgara.“

Hjalti segir að því sé líka oft haldið fram að kapítalisminn muni stuðla að framþróun nýrrar tækni sem mun bjarga okkur. En tækni­lausnir eru líka óraunsæjar:

„Það er ekki í grundvallar­atriðum hægt að frátengja hagkerfið nátt­úrunni. Flest allar tækni­lausnir eru því ekki lausnir, heldur tilfærsla á vanda­málinu. Ef það á að leysa loftslags­vandann með rafbíla­væðingu hvernig á þá að leysa mengun í fram­leiðslu nikkels og liþíums í bíla­batteríum? Það hentar kapítalismanum ágætlega að halda á lofti tækni­lausnum; það þýðir dýr og flókin framleiðslu­ferli með seljanlega vöru á hinum endanum; það þýðir nýir markaðir og meiri gróði, en er í besta falli gálga­frestur á umhverfis­vandanum. Trú á tækni­framfarir er gífurlega stór þáttur í menningu okkar og svo djúpt innrætt að mörg okkar trúa því nánast blint að tækni­framfarir séu óhjá­kvæmilega hluti af lausninni en geti aldrei verið hluti af vanda­málinu.“

Og bætir við:

„Jafnvel tækni­framfarir sem miða að aukinni skilvirkni skila sér ekki í umhverfis­áhrifum vegna þess að aukin skilvirkni gefur heildar­kerfinu einfald­lega svigrúm til að vaxa hraðar. Vöxtur heildar­hagkerfisins étur þannig upp umhverfis­legan gróða af tækni­framförum. Það er ekki mikið gagn í að byggja sólar­orkuver ef orkan sem það fram­leiðir kemur ekki í staðinn fyrir kola­orkuna heldur bætist einfald­lega við stöðugt vaxandi hagkerfi þar sem þörf er fyrir stöðugt meiri orku; að sama skapi er sparneytnari bílvél ekki að gagnast umhverfinu ef það eru stöðugt fleiri og fleiri bílar á götunni. Jafnvel víðtæk rafbíla­væðing í heiminum, svo mikil að það hefði áhrif á olíuverð, myndi einfald­lega gera olíu að ákjósanlegri og ódýrari orkugjafa í öðrum efnahags­legum ferlum. Í kapítalísku hagkerfi eru öll slík svigrúm til að minnka framleiðslu­kostnað og auka gróða nýtt og líkleg útkoma væri aukin olíu­notkun í heiminum en ekki minni.“

Hjalti talar um lausnir:

„Allir undir­liggjandi drif­kraftar kapítalísks hagkerfis miða að því að hámarka fram­leiðslu og hámarka neyslu og hámarka með því ágang manna á náttúruna í endalausu og stig­vaxandi ferli eyði­leggingar í þágu gróða. Því miður eru ákvarðanir teknar út frá innri rökvísi kapítalismans samsvar­andi félags­legu sjálfs­morði þegar þær eru skoðaðar út frá umhverfis­sjónarmiðum. Það sem við þurfum er að lágmarka fram­leiðslu og neyslu innan þess ramma til að mæta grunn­þörfum allra til mann­sæmandi lífs og getu nátt­úrunnar til þess að endurnýja sig,“ og segir einnig að „ríkjandi stéttir munu seint leggja til lausnir sem grafa undan auði þeirra og valdi; Þess vegna eru þær lausnir á umhverfis­vandanum sem fyrir liggja lítið annað en ófullnægjandi hálfkák. Aðgerðir gegn loftslags­breytingum og öðrum umhverfis­vandamálum eru að öllu jöfnu skipulagðar út frá því hvað er talið mögulegt innan pólitískrar heims­myndar hnattræns kapítalisma. Frá þeim upphafs­punkti er síðan reynt að teygja áætlanir eins langt og mögulegt er í átt að þeim takmörkum sem við þurfum að ná.“

En það dugar þó „sjaldnast til. Við ættum hins vegar að gera vísindin og efnis­legan veruleika að upphafs­punktinum í öllum okkar áætlunum. Gera áætlanir sem miða að því að ná þeim takmörkum sem þarf og aðlaga pólitískan og efnahags­legan veruleika að þeim. Það er auðvitað ekki hægt án þess að grafa undan grund­vallar forsendu kapítalismans, að endalaus auðsöfnun og hagvöxtur séu möguleg, og með því riðla pólitísku og efnahags­legu valda­jafnvægi heimsins. En pólitísku og efnahags­legu valdi er hægt að bylta sama hversu rótgróið það kann að virðast. Efnis­legur veruleiki nátt­úrunnar og lögmál eðlis­fræðinnar eru hins vegar óhagganlegar stað­reyndir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim