Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Mogginn heldur upp á 110 ára afmæli: Fagnað með forseta í skugga stórtaps

Forseti tekur á móti fulltrúum Morgunblaðsins.Til Bessastaða fóru ritstjórarnir Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen, Karl Blöndal aðstoðarritstjóri, Sigurbjörn Magnússon, formaður útgáfustjórnar, og Magnús Kristjánsson auglýsingastjóri.
Forseti tekur á móti full­trúum Morg­un­blaðs­ins.Til Bessa­staða fóru rit­stjór­arnir Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen, Karl Blöndal aðstoð­ar­rit­stjóri, Sig­ur­björn Magn­ús­son, for­maður útgáfu­stjórnar, og Magnús Krist­jáns­son aug­lýs­inga­stjóri. Mynd: Forseti Íslands.

Árvakur, útgef­andi Morg­un­blaðs­ins, fagn­aði í gær 110 ára afmæli útgáf­unnar. Þau tíma­mót eru þó í skugga þess að félagið tap­aði 250 millj­ónum króna á síð­asta ári. Millj­arðar af almannafé hafa verið afskrif­aðir af skuldum félags­ins sem varð tækni­lega gjald­þrota árið 2008 þegar Íslands­banki end­aði með því að afskrifa um 3 millj­arða af skuldum félags­ins, eins og sagt var frá í Kjarn­anum.

Starfs­fólk Morg­un­blaðs­ins safn­að­ist saman í gær­morgun til að fagna þessum umdeildu tíma­mótum. Davíð Oddsson flutti þar ræðu og fleiri stigu á stokk. Stefán Stef­áns­son sið­fræð­ingur og einn umsjón­ar­manna vef­sjón­varps Moggans tók af við þetta tæki­færi við­tal við Harald Johann­es­son og Magnús Krist­jáns­son mark­aðs­stjóra fyrir framan starfs­fólkið.

Þrátt fyrir mikið tap Árvakurs hefur fyr­ir­tækið verið dug­legt við að tryggja sam­keppn­is­stöðu sína. Þannig keyptu Mogga­menn prent­smiðj­una af þrota­búi Frétta­blaðs­ins, eyðilögðu hana, og tryggðu sér þannig ein­okun við prentun dag­blaða. Lestur blaðs­ins hefur hrunið á und­an­förnum árum og er nú varla svipur hjá sjón. Fyr­ir­tæki í eigu auð­kon­unnar Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur hafa að miklu leyti staðið undir tapi af rekstr­inum.

Athygli vakti að Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, bauð for­svars­mönnum Árvakurs á Bessa­staði til sam­sætis. Guðni gjörsigr­aði Davíð á sínum tíma í bar­átt­unni um for­seta­stól­inn. Davíð var ein­stak­lega harð­orður í garð Guðna í kosn­inga­bar­átt­unni. Kaffi­boðið gæti verið vís­bend­ing um sættir og að Guðni ætli hugs­an­lega að bjóða sig fram, þriðja kjör­tíma­bilið. Þá þykir sú nýbreytni til fyr­ir­myndar að bjóða fyr­ir­tækjum sem eiga afmæli til veislu á Bessa­stöðum. Sagt er frá heim­sókn­inni á vef for­seta Íslands.

Forseti tekur á móti full­trúum Morg­un­blaðs­ins.Til Bessa­staða fóru rit­stjór­arnir Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen, Karl Blöndal aðstoð­ar­rit­stjóri, Sig­ur­björn Magn­ús­son, for­maður útgáfu­stjórnar, og Magnús Krist­jáns­son aug­lýs­inga­stjóri.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027