Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Svaf Lorca hjá óvininum? – Spennandi hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í dag

Federico García Lorca
Federico García Lorca

„Láttu þér ekki detta í huga að koma, þér er ekki óhætt hér.“ Þessi varnaðarorð fékk skáldið Federico García Lorca að heyra þegar hann kvaðst ætla eyða sumrinu árið 1936 á ættar­setrinu skammt fyrir utan borgina Granada. Kvað hann það óhugsandi að sér stafaði hætta af Falangistum sem þá voru við það að hefja valdarán sem síðan leiddi til borgara­styrjaldarinnar á Spáni. Hvað sem því líður, þá var sú styrjöld rétt hafin þegar hann er hand­tekinn í Granadaborg og síðan tekinn af lífi. Fréttin kom flestum í opna skjöldu því bæði var Lorca stór­stjarna í lífanda lífi og, þó hann hefði skrifað eitt og annað sem falangistum þótti miður, var hann ekki yfir­lýstur andstæðingur þeirra. Reyndar var hann stórvinur þess manns sem stofnaði Falangista­flokkinn, José Antonio Primo de Rivera. Og ekki nóg með það heldur halda einir því fram að þeir hafi átt í eldheitu ástar­sambandi. Háskóla­prófessorinn Jesús Cotta hefur fengið bágt fyrir að skrifa um þetta mjög svo eldfima mál. „Ég harma það að mér sé legið á hálsi fyrir að vilja gera Lorca að fasista og José Antonio að homma,“ segir hann. „Það er ekki það sem mér gengur til en gögnin varðandi samband þeirra tala sínu máli og þeir sem andmæla gera það frekar af hugsjón en skynsemi.“ Þar vísar hann til þeirra háværu radda sem telja óhugsandi að þeir tveir hafi átt skap saman vegna ólíkra lífsskoðanna. Ekki er til nein ljósmynd af þeim saman en Cotta hefur eftir Lorca í bók sinni Blýrósir (Rosas de plomo) að þeir félagar hafi farið út að borða um hverja helgi um nokkurt skeið en þó með mikilli leynd, „enda kemur það sér hvorki vel fyrir hann né mig að við sjáumst saman,“ er haft eftir skáldinu.

Jose Antonio Primo de RIvera

Það voru ekki einu tengsl skáldsins við fasistana því Lorca-fjöl­skyldan átti ættingja og vini meðal háttsetra falangista í Andalúsíu. Reyndar var skáldið einmitt í felum heima hjá einum slíkum þegar hann var hand­tekinn. Það er því kannski ekki að undra að hann teldi sig hólpinn þar sem tengslanet hans virtist traust. Þess eru þó engin dæmi, hvort sem vitnað er í verk hans eða ævisögu, að hann hafi verið hlið­hollur fasista­hugsjóninni.

Engum sögum fer af viðbrögðum José Antonios við aftökunni en hann var sjálfur tekinn af lífi í fangelsi í Alicante rúmum tveimur mánuðum á eftir Lorca. Sú borg, sem Íslendingum er af góðu kunn, var þá enn á valdi Lýðveldis­sinna.

Íslendingar kannast líklega flestir við leikrit Lorca einsog Blóðbrullaup og Hús Bernhörðu Alba sem bæði hafa verið sett á svið hérlendis. Engin skortur er á þýðingum á ljóðum hans og má meðal annars finna mikið safn þeirra í bókinni Gustur úr djúpi nætur sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum í Háskóla Íslands gaf út árið 2007. 

Jón Sigurður fjallar um Lorca í þætti sínum Runtað á Rucio en þar er skáldinu fylgt frá því hann ákvað að fara til Granada í sumarfrí þar til hann er svo hand­tekinn og líflátinn. Þar er líka spurt um jarðneskar leyfar skáldsins en þeir sem leita þeirra hafa fundið viðnám þar sem síst skyldi. Þátturinn birtist á vef Mannlífs upp úr klukkan 17 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim