Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Guðbjörn dó næstum í snjóskafli: „Þolmörk gagnvart bíldruslum í vegkantinum geta verið ótrúleg“

„Á þessum erfiðu stöðum myndast strax snjóskaflar sem ekki eru stórir eða langir. Í einum slíkum dó ég næstum í hræðilegu bílslysi fyrir nokkrum árum, sem ég hef enn ekki jafnað mig á. Ég er því í grunninn sammála „eðlilegum lokunum“ en verð að segja að mikið vantar upp á að snjó­ruðningur hafi verið góður á liðnum árum.“

Þetta segir Guðbjörn Guðbjörnsson, yfir­tollvörður og óperu­söngvari, á Facebook en þar gagnrýnir hann hvernig staðið hefur verið að snjó­ruðningi sem og viðbrögðum við hinni miklu snjókomum undan­farna daga.

„Ég ek Reykja­nesbrautina nær daglega og á sumrin er ég mikið á ferðinni úti á landi þegar ég er að vinna sem leið­sögumaður. Ég bjó lengi í Þýska­landi og Sviss og þekki því einnig ágætlega hvernig umferðin gengur þar fyrir sig. Allsstaðar getur mikið óveður leitt til þess að erfitt getur reynst að ryðja aksturs­leiðir,“ segir Guðbjörn.

Hann segir þó sumt greina löndin frá hvor öðru. „Það sem ég tek hins vegar eftir hér á landi, er að þolmörk vega­gerðarinnar og lögreglu gagnvart bíld­ruslum, sem eru bilaðar í vegkantinum geta verið ótrúleg. Maður er jafnvel að horfa upp á bilaðan bíl dögum saman áður en hann er sóttur. Það sama má sjá núna að fólk er stopp en bíllinn er ekki fjar­lægður.

Á sumrin má sjá að ferðamenn – aðallega erlendir – stöðva bílana þar sem þeir vilja. Annað sem maður tekur eftir er að margir bílar eru illa búnir til vetrar­aksturs. Áróður ákveðinna stjórnmála­afla gegn öllu sem talist getur til bóta fyrir einhvern sem er að ferða á Íslandi – sem er við heimskauta­bauginn – er mjög áberandi,“ segir Guðbjörn.

Hann tekur undir með þeim sem segja hringtorgin við Leifsstöð vandamál. „Það er hárrétt að vanda­málin við að komast að og frá Kefla­víkur­flugvelli eru hringtorgin rétt hjá Flug­stöðinni. Þetta vandamál er búið að vera til staðar í nokkur ár. Þó er rétt að minnast á nokkra staði á brautinni sjálfri þar sem snjór safnar upp í hverjum skaf­renningi og ætti því ekki að koma á óvart,“ segir Guðbjörn.

Hann þekkir þetta á eigin skinni, því líkt og fyrr segir, lenti hann í slæmu bílslysi við þessar aðstæður. „Á þessum erfiðu stöðum myndast strax snjóskaflar sem ekki eru stórir eða langir. Í einum slíkum dó ég næstum í hræðilegu bílslysi fyrir nokkrum árum, sem ég hef enn ekki jafnað mig á. Ég er því í grunninn sammála „eðlilegum lokunum“ en verð að segja að mikið vantar upp á að snjó­ruðningur hafi verið góður á liðnum árum. Fordæma­lausar aðstæður skapast oft á Íslandi vegna legu landsins og náttúru­aflanna og viðbrögð við þeim þarf að skipuleggja og síðan bregðast við en ekki leggja hendur í skaut.“

Annar þekktur söngvari, Bergþór Pálsson, tekur undir með honum í athugasemd og skrifar: „Sammála Guðbjörn, en stundum þurfum við að læra núvitund, anda inn í aðstæður. Það er svo mikil heift í samfélaginu að það skelfir mig. I gær var flugi að miklu leyti aflýst í Banda­ríkjunum út af snjókomu, það gerist á bestu bæjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja