Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Heimilishald Brynjars og Soffíu fullkomið: „Löggjöf um heimilisverk með tilheyrandi eftirliti“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

„Við Soffía leggjum mikið upp úr full­komnu heim­il­is­haldi og að jafn­réttis sé gætt í hví­vetna. Okkar mentorar í þessum fræðum eru Þor­steinn kynja­fræð­ingur og frú og það er helgi­stund hjá okkur þegar hlað­varps­þáttur um Karl­mennsk­una fer í loftið. Bestu þætt­irnir eru þegar hjónin tala við hvort annað eða Sóleyju Tómas. Svo er þetta fólk allt svo skemmti­legt eins og alþekkt er hjá rétt­læt­is­ridd­urum“ ritar Brynjar Níelsson fyrrum alþing­is­maður í nýrri færslu á Facebook.

Færslan hefur fengið gríð­ar­leg við­brögð og mörgum fund­ist hún fyndin. Í henni deilir Brynjar og skýtur föstum skotum á þriðju vakt­ina.

Brynjar leiðir les­endur hvernig fyr­ir­komu­lagi þeirra hjóna er háttað: „Leið­bein­ingar sem við fáum frá þessum jafn­rétt­is­fröm­uðum eru teknar svo alvar­lega hjá okkur Soffíu að við höldum excel bók­hald um allt heim­il­is­haldið. Hver keypti inn og eld­aði mat­inn, gekk frá eftir mat­inn, skúraði, þvoði bíl­inn og svo fram­vegis. Meira að segja skráð hvort hafði frum­kvæði að ást­ar­leikjum og hvort lagði meira á sig í leiknum.“

Hann segir farir þeirra hjóna ekki alltaf sléttar af fyr­ir­komu­lag­inu: „Þrátt fyrir þetta verður stundum ágrein­ingur um hvort skrán­ingar séu alveg réttar og nákvæmar og hversu vel verkin voru unnin. Til að leysa þann ágrein­ing teljum við Soffía nauð­syn­legt að komið verði á ein­hverri eft­ir­lits­stofnun á vegum rík­is­ins og sjálf­stæðri úrskurð­ar­nefnd til að leysa úr ágrein­ingi. Heim­il­is­verkin eru nefni­leg ekki einka­mál hjóna og sam­búð­ar­fólks heldur spurn­ing um í hvers konar sam­fé­lagi viljum við búa.“

Brynjar telur starf Þor­steins kynja­fræð­ings mik­il­vægt en van­metið: „Viljum við ekki öll rétt­læti og sann­girni? Frelsi og ábyrgð ein­stak­lings­ins á hér auð­vitað ekk­ert við. Við sem sam­fé­lag verðum að tryggja rétt­læti og sann­girni í heim­il­is­verkum eins og öðru. Óskilj­an­legt að lög­gjaf­inn hafi ekki sett heild­stæða lög­gjöf um heim­il­is­verk með til­heyr­andi eft­ir­liti og þungum við­ur­lögum við öllum brotum.“

Hér að neðan má sjá færslu Brynjars í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027