Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

„Gríðarlegur“ ávinningur 47 milljarða króna jarðganga: „Styrkja byggð og atvinnulíf á Seyðisfirði“

Svar Innviðaráðuneytis – Gríðarlegur samfélagslegur ávinningur
Svar Inn­við­a­ráðu­neytis – Gríð­ar­legur sam­fé­lags­legur ávinn­ingur

Fyrir­hugaður kostnaður að Fjarðar­heiðar­göngum er 47 milljarðar króna. Innviðar­ráðherra boðar frumvarp þess efnis að gjaldtaka verði tekin upp í öllum jarð­göngum landsins sem standa eigi undir framkvæmda­kostnaði Fjarðar­heiðarganga og annarra framtíðar jarðganga.

Í samtali í sjónvarps­fréttum Stöðvar 2, þann 12. júlí síðastliðinn, nefnir Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra að samfélags­legur ávinningur ganganna sé gríðar­legur. Mannlíf hafði samband við innviða­ráðuneyti til að fá nánari útlistingu á hver sá ávinningur væri.

Rjúfa vetrareinangrun Seyðisfjarðar

Í svari frá ráðuneytinu segir: „Tilgangurinn með jarð­göngum undir Fjarðar­heiði er að gera samgöngur á Austur­landi áreiðanlegar og öruggari og rjúfa vetrar­einangrun Seyðis­fjarðar. Göngin munu hafa gríðar­lega jákvæð áhrif á samfélagið á svæðinu. Þau munu hvort tveggja styrkja byggð og atvinnulíf á Seyðis­firði og Austur­landi og efla framtíðar­möguleika svæðisins sem eins atvinnu- og þjónustu­svæðis.“

Fjallvegur fullnægir ekki kröfum

„Um Fjarðar­heiði liggur nú hæsti fjall­vegur á Íslandi til þéttbýlis­staðar þar sem aðeins er um eina vegtengingu að ræða, og er eftir því snjó­þungur. Vegna snjó­þyngsla og veður­aðstæðna yfir veturinn fullnægir vegurinn alls ekki kröfum sem gera þarf til vegar sem tengir saman nálæg byggðarlög. Einnig eru brattar brekkur beggja vegna heiðarinnar sem eru oft verulegur farar­tálmi fyrir flutninga­bíla og fólksbíla.“

Efla ferðaþjónustu

„Á Egils­stöðum er miðstöð verslunar og þjónustu, miðstöð áætlunar­flugs á Austur­landi og þar eru ýmsar opinberar stofnanir, skólar og fyrirtæki. Þessa þjónustu sækja Seyðfirðingar allt árið um kring eins og aðrir Austfirðingar. Sérstakur ávinningur felst í að auðvelda ferðir fólksbíla og flutninga­bíla þeirra sem koma með Norrænu og efla þannig ferða­þjónustu og flutninga­leiðir.“

Aukið umferðaöryggi

„Að loknum framkvæmdum verður mögulegt að halda veginum á milli Héraðs og Seyðis­fjarðar opnum allan ársins hring. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðar­öryggi vegfarenda, tryggja greiðari samgöngur og bæta vega­samband, bæta sambúð vegar og umferðar við íbúa og umhverfi.“

Hringtenging Seyðis- Mjóa- og Norðfjarðar

„Einnig er áformað að vinna að undir­búningi á göngum milli Seyðis­fjarðar og Mjóafjarðar og síðan frá Mjóafirði til Norð­fjarðar og þannig verði komið á hringtengingu á svæðinu. Slík hringtenging mun hafa í för með sér enn frekari ávinning fyrir allt Austur­land. Mið-Austur­land styrkist sem atvinnu­svæði og hringtenging eykur samstarf milli svæða í ýmsum samfélags­málum og í ferða­þjónustu. Framkvæmdir af þessu tagi auðvelda líka samstarf í sameinuðum sveitar­félögum eða styðja við frekari sameiningu.“

Hér má skoða skýrslu áhrif ganganna frá júní 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram