Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Skemmdarvargur fremur myrkraverk á Stúdentagörðunum: „Ég ætlaði varla að trúa því sem að kom næst“

Skemmdarvargurinn er uppátækjasamur, því miður.
Skemmd­ar­varg­ur­inn er upp­á­tækja­samur, því miður. Mynd: Twitter

Skemmdar­vargur er laus á Stúdenta­görðunum en hefur hann gert íbúum þar lífið leitt að undan­förnu. Félags­stofnun stúdenta ætlar að setja upp mynda­vélar.

Arnar nokkur tvítaði nýlega á Twitter þar sem hann segir frá því að hann sé enn í grúppu íbúa Stúdenta­garðanna þó hann sé nú fluttur þaðan. Hann hafði séð umræðu þar um einstakling sem á síðustu dögum hefur valdið tjóni og óþægindum á Stúdenta­görðunum á Suður­götunni.

Sökudólgurinn virðist ætíð vinna verk sín á nóttunni en meðal þess sem einstaklingurinn hefur gert er að fylla lyftuna af húsgögnum svo fólk hafi neyðst til að fara niður stigann, hann hefur sett grjót í þvottavél í sameigninni og sett hana af stað og þannig eyðilagt vélina. Þá hefur hann einnig tekið rennandi blaut föt úr þvotta­vélum og hent á gólfið sem og „tók allskyns heimilis­áhöld og dagblöð, setti í aðra þvottavél með næstum heilum dúnk af þvotta­efni nokkrum dögum seinna og stíflaði hana,“ eins og Arnar orðaði það og bætti við: „Það er nú beðið eftir viðgerðum og hvort hún sé í lagi.“ Þá sagði Arnar einnig frá uppátæki einstaklingsins sem kom honum mjög á óvart: „Ég ætlaði varla að trúa því sem að kom næst. Aðilinn tók risastórt grjót, setti í eina af fjórum sameignar­þvotta­vélina og setti hana af stað. Hún er núna ónýt.“

Mannlíf heyrði í starfs­manni Stúdenta­garða og spurði hvort búið væri að hafa hendur í hári skemmdar­vargsins.

„Nei, við vitum ekki hver er að verki en erum vissulega að vinna hörðum höndum að komast að því. Við erum að vinna í því núna að setja upp mynda­vélar, vonandi hefur það eitthvað að segja. Nú ef ekki væri næsta skref að setja upp vakt í húsið til að hafa hendur í hári þessa aðila en ég á nú von á því að mynda­vélarnar dugi til.“ Aðspurður hvort starfs­maðurinn teldi um einn einstakling að ræða eða fleiri svaraði hann: „Ég hef bara ekki hugmynd um það en ég myndi halda bara einn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram