Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Beinafundur í Skagafirði: „Þá kom í ljós höfuðkúpa af manni“

Guðmundur segir að um mannabein sé að ræða –
Guð­mundur segir að um manna­bein sé að ræða – Mynd: Guðmundur Sigurðarson

Guðmundur Sigurðarson, minja­vörður Norður­lands vestra, fékk tilkynningu frá Rarik um mannabein.

Það er ekki á hverjum degi sem fólk finnur mannabein í vinnunni en það kom fyrir starfs­menn Rarik á Norður­landi vestra. Starfs­menn Rarik tilkynntu málið til minja­varðar Norður­lands vestra.

„Við fengum tilkynningu núna rétt fyrir hádegið að þeir voru hérna frá Rarik að leggja heimtaug heim að bænum og rákust á bein sem þeim þóttu eitthvað torkennileg og voru eitthvað búnir að velta vöngum yfir þessu. Þeir héldu aðeins áfram og þá kom í ljós höfuðkúpa af manni, þannig að það fór ekkert á milli mál að þarna væri eitthvað sem þyrfti að skoða. Þeir höfðu samband og við erum hérna núna til að reyna átta okkur á því hvað er í gangi hérna,“ sagði Guðmundur Sigurðarson, minja­vörður Norðlands vestra, um málið í samtali við Feyki og sagði að um óþekktan kirkju­garð væri að ræða.

„Þeir eru reyndar með alveg fram­úrskarandi árangur, Rarik í Skaga­firði, að finna kirkju­garða. Þetta er allavega þriðji garðurinn sem þeir finna held ég. Þeir stela oft þrumunni af fornleifa­fræðingum sem eru að keppast við að leita að þessu og hafa ekkert fyrir því. Þannig það er bara mjög ánægjulegt að þeir láta allavega vita svo það sé hægt að skoða þetta og fylla í eyðurnar í sögunni, fá nánari upplýsingar, það er bara mjög ánægjulegt. Þeir eru ábyrgir í því að láta vita þegar svona kemur upp,“ en beinin fundist á bænum Hóli í Sæmundar­hlíð.

„Það á eftir að meta hvað verður gert með þessi bein sem eru að koma hérna upp, þau eru vel varðveitt en það á eftir að ákveða hvort það sé einhver ástæða til þess að rannsaka þau eitthvað nánar eða hvort þau verði sett niður aftur,“ sagði Guðmundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp