Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Félag í eigu Atla Helgasonar er gjaldþrota

Atli Helgason lögmaður.
Atli Helgason lög­maður.

Einka­hluta­félagið Harpia ehf. var úrskurðað gjald­þrota um miðjan síðasta febrúar. Kemur fram að samkvæmt fyrirtækja­skrá Skattsins er eigandi félagsins Atli Helgason lögfræðingur.

Það er DV sem greinir frá því að félagið var stofnað fyrir sjö árum; starfsemi þess var leiga atvinnu­húsnæðis, bygging íbúðar- og atvinnu­húsnæðis, pípu­lagnir sem og uppsetning hitunar- og loftræstikerfa.

Samkvæmt heimildum DV mun rekstur félagsins fyrst og fremst hafa tengst þjónustu Atla við einn skjólstæðinga hans, sem starfar sem iðnaðar­maður.

Atli er lögfræðingur að mennt, en hann hefur þó ekki endur­heimt lögmanns­réttindi; en sinnt verkefnum tengdum lögmennsku.

Eins og frægt er orðið þá var Atli árið 2001 dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað viðskipta­félaga sínum, Einari Erni Birgis­syni, í Öskjuhlíð þann 8. nóvember árið 2000.

Atli hlaut uppreist æru árið 2016; hann hefur því óflekkað mannorð í skilningi laganna.

Fyrir fimm árum úrskurðaði Héraðs­dómur Reykja­víkur að Atli skyldi fá lögmanns­réttindi sín aftur.

Svo fór þó að Lands­réttur sneri þeirri ákvörðun við, sama ár.

Atli kærði ákvörðunina til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu á grund­velli vanhæfis Landsréttar­dómara; var kæra Atla hluti af hinu svokallaða Lands­réttarmáli.

Ríkið gerði sátt við Atla vegna málsins á síðasta ári.

Kemur fram á DV að skipta­stjóri Harpia veitir ekki upplýsingar um gjaldþrot félagsins þar sem svo stutt er liðið frá því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim