Anna Kristjánsdóttir skelfur úr kulda í Spánarfríi sínu.
Eins og lesendur Mannlífs vita er Anna Kristjánsdóttir, vélstjóri og húmoristi, í fríi á meginlandi Spánar. Í nýjustu dagbókarfærslu hennar kvartar hún undan kulda.
„Dagur 1687 – Kuldaskræfa liggur undir feldi.Ég skil ekki eitt. Það eru allir að tala um að það sé svo hlýtt og notalegt á Spáni að hingað flykkjast Íslendingar í tugþúsundatali í þeim erindum að eiga hér vetrardvöl og hafa margir þeirra fjárfest í húsum eða íbúðum hérna til að geta notið vetrarins í ákjósanlegu loftslagi. Mér er þetta óskiljanlegt.“
Anna segist hafa komið fjórum sinnum til meginlands Spánar og í hvert skipti skolfið úr kulda.
„Ég hefi komið fjórum sinnum til meginlands Spánar. Fyrst vorið 2018, en síðan aftur haustið 2022, í febrúar 2023 og núna síðari hluta marsmánaðar 2024. Í öll skiptin hefi ég verið skjálfandi úr kulda mestallan tímann, þó síst vorið 2018 er ég fékk tvo sæmilega og ásættanlega sólardaga af þeim sjö sem ég dvaldi hérna í það skiptið. Best að taka fram til að fyrirbyggja misskilning, að þetta hefur ekkert með gestgjafa minn að gera, en hún hefur gert allt sem í hennar valdi stendur til að halda á mér hlýju.“
Að lokum spyr Anna sjálfa sig spurningar:
„Fyrir bragðið spyr ég mig þess, er eitthvað að termóstatinu hjá mér eða er fólk að skrökva að mér um vistina á sólarströnd? Þeir Íslendingar sem ég hefi hitt hér eru sannfærðir um hið fyrrnefnda, að ég sé kuldaskræfa.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir