Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lýsir ofbeldi starfsfólks á Kleppi: „Það var ekki fylgt neinum reglum eða viðmiðum“

Dæmi er um að starfs­fólki sem og sjúklingum á Klepp­spítala, öryggis- og réttar­geðdeildum Land­spítalans, hafi verið beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi. Auk þess hafa sjúklingar verið lokaðir inni á herbergjum sínum svo vikum og mánuðum skiptir, en þetta fullyrðir Gyða Jóns­dóttir, hjúkrunar­fræðingur í samtali við RÚV í gær. Hún er fyrrum starfs­maður á Klepp­spítala og kveðst hafa séð þessa framkomu ítrekað að hálfu starfs­fólks.

„Maður var vitni að ýmsu og svo fékk maður þetta frá starfs­fólkinu. Það var ekki fylgt neinum reglum eða viðmiðum sem siða­reglur hjúkrunar­fræðinga vísa til,“ segir Gyða.

Í Kastljósi í gærkvöld var rætt við Grím Atlason, framkvæmda­stjóra Geðhjálpar, sem segir að meðferðar­kúltúr í geðlæknis­fræðum virðist byggja á því að sýna völd. Greint var frá því í sjónvarps­fréttum að embætti land­læknis hefur til athugunar alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á öryggis- og réttar­geðdeildum Land­spítalans. Ábendingarnar koma frá núverandi og fyrr­verandi starfs­mönnum á deildunum.

„Þarna er verið að lýsa niður­lægjandi aðferðum við ýmislegt sem kallast meðferð, en er ekkert nema ofbeldi,“ sagði Grímur.

„Það virðist vera að þessi meðferðar­kúltúr á Íslandi byggir að einhverju leyti á að þurfa að sýna einhver völd. Það teljum við að eigi frekar heima inni í bíómyndum sem við horfum á og erum að hneykslast yfir. Nútíminn á ekki að vera þarna. Við þurfum að fara að horfa á nútímann með augum fram­tíðarinnar. Er það þetta sem við viljum að eftir 30-40 ár verði horft til okkar og sagt: Þetta var fólk að gera árið 2021.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Húsið var reist árið 1978
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto