Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ráðgátan um Glitfaxa – Misvísandi vitnisburður

Vitnisburður starfsmanna flugturnsins í Keflavík

Mannlíf ræddi á dögunum við Nikulás Sveinsson sem staddur var í flug­turninum í Keflavík daginn sem Glit­faxaslysið átti sér stað. Sagðist hinn 94 ára fyrr­verandi rafvirki á Vellinum, muna hvert einasta orð sem fór á milli flug­turnanna í Reykjavík og Keflavík og vita að flugmaður Glitfaxa hafi í þrígang neitað að lenda í Keflavík, þrátt fyrir ítrekanir um að ekki væri hægt að lenda í Reykjavík sökum veðurs.

En ef gögn um málið eru skoðuð má sjá að Bandaríkja­mennirnir tveir, Robert H. Bauerle og Harry Jacob Getz, sem störfuðu í flug­turninum í Keflavík þann 31. janúar 1951, neituðu fyrir svokölluðum lögreglu­rétti, að hafa boðið Glitfaxa að lenda og er það þvert á það sem Nikulás sagði Mannlífi. „Aðspurður skýrir hann svo frá, að flug­turninn hér hafi ekki beðið þá að aðstoða hina óþekktu flugvél,“ stendur í skýrslu lögreglu­réttarins sem Mannlíf hefur skoðað. Sagði hann að flug­turninn hafi einungis verið beðinn um að svipast um eftir tveimur flugvélum, en þeir hafi bara séð aðra þeirra. Ekki gátu þeir vitað hvora vélina þeir sáu.

Stangast þessi vitnis­burður Bandaríkja­mannanna algjör­lega á vitnis­burð Nikulásar. Ættingjar þeirra sem létust í flug­slysinu, hafa sumir talað um ákveðna þöggun um slysið. Að ekki hafi komið fram nákvæmlega hvað gerðist þennan örlaga­ríka dag fyrir 72 árum, en bent hefur verið á að faðir flug­mannsins, Ólafs Jóhanns­sonar, hafi verið þing­maðurinn og fyrr­verandi ráðherrann Jóhann Þ. Jósefsson frá Vestmanna­eyjum, en hann var meðal annars samgöngu- og iðnaðarmála­ráðherra frá 1949-1950. Skal það látið ósagt hvort þessi tengsl hafi haft einhver áhrif á vitnis­burði Bandaríkja­mannanna tveggja, en þau eru áhugaverð.

Þessi frétt er bútur úr öðrum kafla frétta­skýringar Mannlífs á Glit­faxaslysinu en heildina má lesa í nýjasta helgar­blaði Mannlífs, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim