Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nokkur góð sparnaðarráð í matarkreppunni: Kranavatnið kostar ekkert og folaldið ódýrt

Matvöru­verð er með því dýrara sem þekkist í Evrópu og hefur hækkað fram úr hófi síðustu misseri.  En það má gera ýmislegt til að lækka matar­körfuna. Inn á grúppunni Sparnaðar tips á Facebook skiptist fólk á góðum ráðum.

Mannlíf tók saman nokkur sparnaðarráð þar sem geta verið mjög gagnleg.

Það klassíska er að fara sjaldnar í búð. Gera innkaupa­lista fyrir vikuna eða jafnvel mánuðinn. Kannaðu hvað er til í frystinum. Passa að ekkert gleymist. Vera með fábreyttara meðlæti. Og ef eitthvað vantar stöku sinnum þá er það líka allt í lagi.

Setja upp matarplan inn á matarplan.is. Þar eru einnig mörg góð sparnaðarráð.

Eitt sem allir eru sammála um er að ostur er orðin mjög dýr. Margir eru hættir að kaupa Fetaost, einnig er sniðugt að rífa sjálfur niður ost frekar en að kaupa rifinn ost. Þar munar um 1000 krónur á kílói ef notaður er venju­legur brauð­ostur. „Farin að sleppa feta­ostinum og rjóma­ostinum, stundum er bara ekki til ostur,” segir Guðrún. Einnig er sniðugt að frysta ostaenda og rífa niður á pizzur og fleira.

Kaupa erlenda, gríska jógúrt sem er mun ódýrari en sú íslenska og nýta hana einnig í staðinn fyrir sýrðan rjóma.

Ekki kaupa vatn. Krana­vatnið kostar ekkert og svo má kreista sítrónu út í til hátíðarbrigða.

Kaupa frosna pizzu frekar en að panta.

Kaupa inn matvæli á síðasta söludegi og elda strax eða frysta. Það má smjör­steikja sveppi og frysta, grilla paprikur í ofni, sjóða rósakál og frysta og svona mætti lengi telja. Velja ódýrstu vöru­merkin. Í Bónus er Euro Shopper og í Krónunni er First Price. En þó er ekki algilt að það sé alltaf ódýrasti kosturinn. Betra að skoða kílóverð til að fullvissa sig um það.

Kaupa folalda­kjöt, kaupa heilan kjúkling og hluta sjálfur niður. Nota kjúklinga og linsu­baunir í staðinn fyrir nautahakk. Elda stóran skammt af lasagne og eiga í frystinum. Nota svínahakk eða folalda­hakk frekar en nautahakk.

Ef fjöl­skyldan er í hádegismat í skóla eða vinnu er snarl vinsælt á kvöldin. Elda hafra­graut eða grjóna­graut. Nota afganga í hrísgrjóna­rétta og eggja­kökur. Einnig mæla margir með því að kaupa Eldum rétt, eða Einn tveir og elda, til dæmis tvisvar í viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim