Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sjálfboðaliðar Landsbjargar sigursælir í valinu á manneskju ársins

Mannlíf gaf lesendum sínum kost á að taka þátt í vali á manneskju ársins 2019 með netkosningu á man.is. Valið stóð á milli einstaklinga sem hafa skarað fram úr á liðnu ári og verið áberandi í umræðunni.

Mynd / Sig Ó. Sig|Hildur Guðnadóttir
Mynd / Sig Ó. Sig|Hildur Guðna­dóttir

Niður­stöður eru ljósar og eru félagar Slysavarna­félagsins Lands­bjargar greini­lega ofarlega í hugum og hjörtum fólks og fengu afgerandi kosningu eða 20% atkvæða. Í öðru sæti voru nemendur Hagaskóla með 15% atkvæða og þriðja sæti deila Guðrún Ögmundsdóttir, Haraldur Þorleifsson og Hrafnhildur Gunnars­dóttir með 11% atkvæða hvert.

Slysavarnafélagið Landsbjörg – 1. sæti

Sjálfboða­liðar slysavarna­félagsins Lands­bjargar eru ávallt boðnir og búnir að aðstoða fólk í neyð. Félagið er þver­skurður af íslensku þjóðinni og innan raða þess eru einstaklingar af öllum kynjum, úr öllum starfs­stéttum, alls staðar á landinu. Félagar Lands­bjargar stóðu vaktina í óveðrinu sem geisaði á landinu í desember, sem og í leitum að einstaklingum bæði í lok árs og byrjun ársins 2020.

Zainab Safari, Amíra Snærós Jabali, Sindri Bjarka­son Elín Sara Richter, Magnús Guð­munds­son Mynd / Aldís Páls­dóttir

Nemendur í Hagaskóla – 2. sæti

Amíra Snærós Jabali, Elín Richter, Sindri Bjarkason og og skóla­systkini þeirra börðust hetjulega fyrir því að skóla­systir þeirra, Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar, yrði ekki vísað úr landi. Íslensk stjórn­völd höfðu í tvígang hafnað því að taka mál fjöl­skyldunnar til efnislegrar meðferðar og þar með að skoða mögu­leikann á því að þau ættu þess kost að setjast að hér á landi. Skóla­systkinin neituðu að gefast upp og fjöl­skyldan fékk að lokum dvalar­leyfi.

Guðrún Ögmunds­dóttir Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Guðrún Ögmundsdóttir, baráttukona og fyrrum þingmaður – 3. sæti

Guðrún lést að morgni gamlárs­dags, 69 ára að aldri, eftir baráttu við krabba­mein sem hún greindist með áramótin 2018-2019. Guðrún, sem barðist alla tíð ötullega fyrir réttindum minnihluta­hópa og þeirra sem minna mega sín, sagði í viðtali við Mannlíf að hún væri full þakklætis og stolt af því sem áunnist hefði. Þrátt fyrir að hafa verið sæmd fálka­orðunni og heiðurs­merki Samtak­anna ´78 í fyrra sagði hún stærstu viðurkenninguna vera að skjólstæðingar hennar litu á hana sem eina úr þeirra hópi.

Haraldur Þor­leifs­son. Mynd / Ueno

Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno – 3. sæti

Haraldur Þorleifsson stofnaði fyrir fimm árum stafræna hönnunar­fyrirtækið Ueno, sem í dag er með 65 starfs­menn á Íslandi og í Banda­ríkjunum. Fyrir­tækið er í stöðugum vexti og segir Haraldur fyrirséð að fyrir­tækið muni halda áfram að stækka og þróast. Haraldur sem er fæddur og uppalinn í Vestur­bænum hefur vegna meðfædds vöðva­rýrnunar­sjúkdóms notað hjólastól frá því hann var 25 ára en hann lætur sjúk­dóminn ekki stöðva sig.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarkona – 3. sæti

Kvikmynda­gerðarkonan Hrafnhildur Gunnars­dóttir frumsýndi á árinu þætti sína Svona fólk. Þættirnir eru afrakstur 27 ára viðleitni Hrafnhildar til að skrásetja og varðveita samtíma­heimildir um baráttu homma og lesbía; erfið­leikana, átökin og sigrana. Um leið eru þeir áhugaverð heimild um þær miklu breytingar og framfarir sem hafa orðið í íslensku samfélagi síðustu áratugi. Þættirnir hafa því ótvírætt sögu- og menningarlegt gildi fyrir þjóðina.

Aðrir tilnefndir í stafrófsröð eru:

Myndir / Aðsend, Aldís Páls­dóttir og Arnþór Birk­is­son

Gunnar Karl Ólafsson, James McDaniel og Sveinn Rúnar Einarsson

Gunnar Karl, James og Sveinn Rúnar stigu fram í viðtali við Mannlíf og lýstu reynslu sinni eftir nauðgun og kynferðislegt ofbeldi. Sögðu þeir sögur sínar til að opna umræðuna um kynferðislegt ofbeldi gagnvart karl­mönnum, auka skilning á þeim málum og benda á hversu nauðsynlegt sé að leita sér aðstoðar ef einstaklingar verða fyrir slíku ofbeldi.

Haukur Örn Birg­is­son Mynd / Hallur Karlsson

Haukur Örn Birgisson

Haukur Örn Birgisson, hæstaréttar­lögmaður og formaður Golf­samband Íslands, opnaði sig um sára lífs­reynslu, en hann og Guðríður Magndís Guðmunds­dóttir, sambýlis­kona hans, eignuðust andvana tvíbura eftir 22 vikna meðgöngu. Pistill sem hann skrifaði og viðtal í Mannlíf vöktu mikil viðbrögð, en Haukur sagðist ekki vanur að bera tilfinningar sínar á torg.

Hildur Guðna­dóttir Mynd /EPA

Hildur Guðnadóttir tónskáld

Hildur Guðna­dóttir, tónlistar­kona og tónskáld. Sem kunnugt er hefur Hildur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga á þessu og síðasta ári fyrir tónlist sína í kvik­myndinni Joker og þáttunum marg­rómuðu Chernobyl. Hefur Hildur þannig náð að stilla sér upp í röð með fremstu kvikmynda­tónskáldum í heimi á árinu 2019 og vekur enn mikla athygli á nýju ári.

María Rut og Ingileif Mynd / Facebook

Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristjánsdóttir aktivistar

Hjónin Ingileif Friðriks­dóttir fjölmiðla­kona og María Rut Kristjáns­dóttir, aðstoðar­maður Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur, formanns Viðreisnar, hafa lengi haldið úti hinum vinsæla fræðslu­vettvangi Hinsegin­leikanum. Saman hafa þær átt þátt í að fræða ungmenni um hinsegin veruleika, veita þeim fleiri hinsegin fyrir­myndir og brjóta niður staðalímyndir.

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri

Sigurþóra Bergs­dóttir missti son sinn Berg Snæ Sigurþórsson, sem svipti sig lífi í kjölfar kynferðis­ofbeldis. Í kjölfarið ákvað Sigurþóra að stofna stuðnings­setrið Headspace með það að markmiði að auka þjónustu við ungt fólk sem dettur á milli kerfa í samfélaginu og á erfitt með að finna heild­stæða þjónustu og stuðla að því að ungt fólk í vanda fái aðstoð fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja