Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Formaður Blaðamannafélagsins: „Bjarni Benediktsson reiðir enn til höggs gegn blaðamönnum“

Sigríður Dögg Auðnsdóttir, formaður BÍ, er ekki sátt við Bjarna Benediktsson fjármála­ráðherra. og segir:

„Bjarni Benediktsson reiðir enn til höggs gegn blaða­mönnum í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. Hann víkur meðal annars að ályktun sem Blaðamanna­félag Íslands og Félag frétta­manna stóðu saman að í febrúar í tengslum við ákvörðun lögreglunnar á Norður­landi Eystra að kalla fjóra blaðamenn til yfirheyrslu vegna skrifa um skæruliða­deild Samherja.“

Hún segir að „tilefni skrifa Bjarna að þessu sinni er grein Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans og eins fjór­menninganna, sem birtist í gær. Mér þykir miður að þurfa að standa í ritdeilum við formann stærsta stjórn­málaflokks landsins, en lít á það sem skyldu mína að standa vörð um rétt blaða­manna til þess að vinna vinnu sína í þágu almennings, en ekki síður að leiðrétta alvarlegar rang­færslur í full­yrðingum Bjarna.“

Sigríður Dögg nefnir að „í fyrr­nefndri færslu segir Bjarni að ályktun blaða­manna og frétta­manna hafi verið byggð á getgátum og röngum forsendum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bjarni heldur því ranglega fram að gagnrýni Blaðamanna­félagsins á ákvörðun lögreglu að kalla fjóra blaðamenn til yfirheyrslu sé byggð á röngum forsendum. Í Facebook-færslu hans frá því í febrúar lætur hann að því liggja að önnur ástæða hafi verið fyrir yfirheyrslunum en að blaða­mennirnir hafi nýtt gögn til að skrifa fréttir – líkt og blaðamenn hafi haft „getgátur“ um.

„Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“ spurði Bjarni.

Það sem blaðamenn vissu á því stigi máls var byggt á upplýsingum frá lögreglu og staðfest í yfirheyrslum yfir fjór­menningunum, líkt og fram kemur í grein Þórðar Snæs í gær, sem og grein Aðalsteins Kjartans­sonar, blaða­manns á Stundinni og vara­formanns Blaðamanna­félags Íslands, sem hann birti einnig í gær. Þeir lýsa því báðir að yfirheyrsla lögreglu hafi einvörðungu snúist um að afla upplýsinga um heimildar­menn, umfjöllunar­efni fréttanna, og fréttamat blaða­mannanna og þeirra ritstjórna sem þeir starfa á. Með öðrum orðum: Þeir voru – þótt Bjarni neiti að trúa því – færðir til yfirheyrslu fyrir það eitt að vinna vinnuna sína.“

Og það er að mati Sigríðar Daggar „einmitt kjarni þess sem Blaðamanna­félagið hefur gagnrýnt. Í milli­tíðinni hafa fjöl­miðlar einnig bent á – og Þórður fjallar um það í grein sinni, sem er tilefni skrifa Bjarna – að saksóknari í málinu segir í greinar­gerð sinni „mikilvægt að lögregla rannsaki mál þar sem reyni á þessi mörk [friðhelgi einka­lífsins og tjáningar­frelsisins] þannig að dómstólum verði gert fært að fjalla efnislega um þessi mörk”.

En kannski er skiljanlegt að Bjarni neiti að trúa því að ástæða yfirheyrslanna sé raun­verulega þessi: að blaða­mennirnir hafi stöðu sakborninga fyrir það eitt að hafa unnið vinnuna sína. Því auðvitað er það fráleitt. Slíkt þekkist ekki í þeim lýðræðis­ríkjum sem við viljum bera okkur saman við, þar sem litið er á vernd heimildar­manna sem hornstein fjölmiðla­frelsis, og þar með lýðræðisins.“

Hún bætir við:

„Við höfum innleitt slíka vernd í lög hér, þar sem blaða­mönnum er beinlínis bannað með lögum að veita upplýsingar um heimildar­menn. Engu að síður hefur lögreglan á Norður­landi eystra kallað blaðamenn til yfirheyrslu til þess að reyna að fá þá til að brjóta þessi grundvallarlög fjölmiðla- og tjáningar­frelsisins. Því eins og Þórður segir frá í grein sinni hefur Blaðamanna­félag Íslands nú fengið í hendur öll þau gögn sem lögreglan hefur afhent sakborningum í þessu máli þessu máli. Og þau sýna svart á hvítu, líkt og sakborningar hafa margoft sjálfir haldið fram, að megin­ástæður yfirheyrslna yfir Þórði Snæ eru þessar:

„Opinber­lega skýrt frá einka­málefnum án þess að ástæður séu fyrir hendi“ (228. grein hegningar­laga), og einnig: „Brot gegn friðhelgi einkalífs annars með því að hnýsast í, útbúa, afla afrita…“ (229. grein hegningar­laga).

Þetta eru nákvæmlega sömu greinar og vísað var til í sameiginlegri yfir­lýsingu fagfélaga blaða­manna. Bjarni hefði ef til vill gagn af því að lesa þá yfir­lýsingu aftur, því í henni er farið vandlega yfir ástæður þess að það er áhyggju­efni í lýðræðis­ríki að lögregla kalli blaðamenn til yfirheyrslu vegna meintra brota á þessum greinum, einkum þar sem Alþingi hefur bætt við lögin sérstökum ákvæðum til að tryggja refsileysi blaða­manna þar sem almannahags­munir eru taldir brýnir. Þetta veit Bjarni að sjálfsögðu, og dómstólar hafa fellt marga dóma um þetta – íslenskir sem alþjóð­legir. Sjálf þekki ég þessi ákvæði vel, þar sem ég átti hlut í einu þessara mála, þar sem unnar voru fréttir upp úr persónu­legum tölvu­póstum milli einstaklinga, sem haldið var fram að hafi verið fengnir með ólögmætum hætti úr einka­tölvu eins þeirra – tölvu­póstamálinu svokallaða.“

Hún bendir á að „málið varðaði þessar sömu tvær greinar hegningar­laganna (þeim hefur lítillega verið breytt síðan) og fór fyrir bæði dómstig hér á landi og að lokum til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu. Alls staðar var niður­staðan sú sama: að taka skuli mið af megin­reglum varðandi frelsi fjölmiðla til þess að miðla upplýsingum um mál sem erindi eiga til almennings og rétt almennings til aðgangs að slíkum upplýsingum.

Þetta er málið í hnotskurn: Réttur almennings til aðgangs að upplýsingum og frelsi fjölmiðla til þess að miðla þeim.“

Sigríður Dögg bendir á að „Alþingi hefur meira að segja hnykkt á refsileysi blaða­manna eftir að dómur féll í tölvu­póstamálinu með því að bæta ákvæðunum við þessar tvær laga­greinar. Það sem Bjarni virðist einnig neita að skilja er að hér er ekki um að ræða mál sem ástæða er til að gera blaðamenn að sakborningum í og kalla þá til yfirheyrslu. Telji einhver á sér brotið í þeim fréttum sem til rann­sóknar eru hjá lögreglu, er sjálfsagt að dómstólar skeri úr um lögmæti þess að birta fréttirnar. Þær voru byggðar á upplýsingum sem sannarlega voru einkagögn, líkt og blaða­mennirnir hafa margoft skýrt frá. Sjálfsagt er að dómstólar skeri úr um hvort almenningur hafi átt rétt á þeim upplýsingum sem þar komu fram og hvort hagsmunir almennings af því að fá þær upplýsingar vegi þyngra en hagsmunir þeirra einstaklinga sem fjallað var um í fréttunum. Til þess að skera úr um það er einfald­lega hægt að meta fréttirnar sjálfar – og óþarfi – og beinlínis skaðlegt, líkt og Evrópu­ráðið hefur meðal annars bent á – að kalla blaðamenn til yfirheyrslu, hvað þá að veita þeim stöðu sakbornings fyrir að vinna vinnuna sína – sem er að gæta hagsmuna almennings og veita stjórn­málamönnum og stór­fyrirtækjum aðhald.“

Segir að lokum:

„Stjórnmála­leiðtogar í lýðræðis­ríkjum hafa á undan­förnum mánuðum verið óþyrmilega minntir á nauðsyn frjálsrar, faglegrar blaða­mennsku, á meðan valdamenn í þeim ríkjum sem hneigjast til ólýðræðislegra stjórnar­hátta leggja stein í götu frjálsra fjölmiðla, takmarka athafna­frelsi þeirra og ofsækja blaðamenn, meðal annars með hjálp lögreglu. Íslenskir stjórn­málamenn standa ekki fyrir utan þessi átök. Ég vona að þeir beri gæfu til að standa með blaða­mönnum þjóðarinnar í barátt­unni fyrir fjölmiðla­frelsi, tjáningar­frelsi og lýðræði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana