Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ljúffengt vínabrauð með apríkósum

Brioche er franskt brauð með óvenju­lega miklu magni af eggjum og smjöri á móti mjöli í upp­skrift­inni. Þetta gerir það að verkum að brauðið verður létt og mjúkt en með stökkri skorpu.

|Svona
|Svona

Grunndeigið er nokkuð ein­falt en mögu­leik­arnir ótelj­andi. Hægt er að bæta í það súkkulaði, ávöxtum, kon­íaki og fleira góð­gæti til að auka fjöl­breytn­ina. Hér kemur upp­skrift að vín­a­brauði með apríkósum.

Vín­a­brauð með apríkósum
12 stk.

1 upp­skrift brioche-deig (sjá fyrir neðan)
1 upp­skrift vanillu­krem eða 200 g apríkósusulta
egg til að pensla með
1 dós apríkósur
40 g hesli­hnetur, saxaðar

Skiptið deig­inu í 3 parta og fletjið hvern part út í langan og mjóan fern­ing. Skerið utan af og skerið í hornin eins og sýnt er á mynd­inni. Setjið kúf­aða teskeið af vanillu­kremi eða apríkósusultu í miðj­una og snúið hornin inn að miðju.

Svona lítur vín­a­brauðið út áður en það er bakað.

Penslið vel með eggi til að festa endana. Setjið apríkósu í miðj­una og penslið alla enda með eggi, stráið hesli­hnetum ofan á. Látið vín­ar­brauðin hef­ast í 30-60 mín. og bakið þau í miðjum ofni í 15-17 mín. eða þar til þau eru fal­lega gullin.

Vanillukrem

1 dl rjómi
1/3 dl mjólk
1 vanillu­stöng
60 g sykur
4 eggja­r­auður
25 g maizenamjöl (majs­sti­velse)

Setjið rjóma og mjólk í pott. Skerið vanillu­stöng í sundur eftir endi­löngu, skafið kornin úr og setjið korn og stöng í pott­inn ásamt 30 g af sykrinum. Hitið að suðu og látið standa í 10 mín, sigtið. Setjið eggja­r­auður, afgang­inn af sykrinum og maizenamjöl í skál yfir vatns­baði og þeytið saman.

Hellið rjóma­bland­inu út í og hrærið í blönd­unni þar til það verður að þykku kremi. Þetta tekur svo­lít­inn tíma en sýnið þol­in­mæði, kremið er svo gott að vinnan er þess virði.

Brioche-deig

560 g hveiti
1 tsk. salt
50 g sykur
15 g ferskt pressu­ger eða 1 msk. þurr­ger
¾ dl fing­ur­volg mjólk
6 egg
300 g smjör, mjúkt

Setjið hveiti, salt og sykur í hræri­vél­ar­skál og blandið því saman. Leysið gerið upp í mjólk­inni í skál, bætið eggj­unum í skál­ina og þeytið saman með gaffli. Hellið blönd­unni út í hveitið og hnoðið saman í hræri­vél­inni með hnoð­ar­anum í nokkrar mín­útur eða þar til deigið er vel sam­lagað.

Hafið vél­ina í gangi og bætið smjör­inu út í smám saman þar til það hefur bland­ast vel saman við. Setjið klút eða filmu yfir skál­ina og látið hef­ast á hlýjum stað í 30-60 mín. eða yfir nótt. Setjið vel af hveiti á borðið og hnoðið upp í deigið svo auð­velt verði að með­höndla það.

Athugið samt að þetta deig er blautt í sér út af smjör­inu en gott að nota vel af hveiti þegar verið er að fletja það út.

Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Kristinn Magn­ús­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni