Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Níu tonn af hlýju send til Úkraínu: „Þungur hrammur vetrarins færist nú hægt og bítandi yfir“

Níu tonn af vetrar­fötum voru flutt frá Íslandi til Úkraínu í gær. Fatnaðurinn er ætlaður varnar­sveitum Úkraínu sem og almenningi.

Fram kemur í frétt á vef Utan­ríkis­ráðuneytisins að vetrar­fatnaðurinn sé afrakstur þúsunda Íslendinga og kaupa ráðuneytisins á ýmiskonar vetrar­búnaði.

„Utan­ríkis­ráðuneytið auglýsti fyrr í haust eftir vetrar­útbúnaði fyrir varnar­sveitir Úkraínu. Gengið hefur verið frá kaupum á skjól­fatnaði og skóm frá Fjalla­kofanum, 66°N og Dynjanda fyrir tæpar 50 milljónir króna en raunvirði varn­ingsins er um 140 milljónir. Þessi búnaður, auk sjúkra­gagna sem íslenskur aðili hefur gefið, var fluttur með kanadískri herflutningavél áleiðis til Úkraínu í dag. Í farminum eru auk þess rúmlega 3.500 pör af lopa­sokkum sem íslenskur almenningur hefur prjónað fyrir Úkraínu í tengslum við verkefnið Sendum hlýju og aðrar ullar­flíkur sem íslenskt og úkraínskt prjóna­fólk hefur ýmist prjónað eða gefið á svonefndum hannyrða­hittingum,“ segir í fréttinni frá ráðuneytinu.

Ráð­herr­ann.

„Þungur hrammur vetrarins færist nú hægt og bítandi yfir Úkraínu og eins og við höfum séð beita rússnesku innrásar­öflin honum sem vopni í yfir­standandi átökum. Sem herlaus þjóð getur Ísland eðli máls samkvæmt ekki lagt úkraínskum varnar­sveitum til hergögn en við getum hins vegar sent þeim hlýjan skjól­fatnað, sem er ekki síður nauðsyn­legur á ísköldum vígvellinum en hefð­bundin vopn,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra í fréttinni.

Það var svo starfs­fólk Landhelgis­gæslunnar sem pakkaði varn­ingnum um helgina og setti á bretti sem síðan var svo staflað um borð kanadískrar herflutninga­vélar á öryggis­svæðinu á Kefla­víkur­flugvelli. Auk Þórdísar Kolbrúnar fylgdust fulltrúar Sendum hlýju og hannyrða­hittingsins og Jeannette Menzies, sendi­herra Kanada á Íslandi, með því sem fór fram.

„Það er rík ástæða til að þakka öllum þeim sem eiga þátt í að við sendum alla þessa hlýju til Úkraínu í dag. Þar vil ég nefna fyrir­tækin sem við höfum átt í góðu samstarfi við, Landhelgis­gæsluna sem hefur annast umsýslu og kanadíska flug­herinn sem flytur varninginn á áfanga­stað. Og síðast en ekki síst á hannyrða- og prjóna­fólk á Íslandi sérstakar þakkir skildar fyrir að sýna sinn hlýhug í verki með svo áþreifanlegum hætti,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra í frétt ráðuneytisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis